1. gr.
1. mgr. 7. gr. samþykktarinnar verður svohljóðandi:
Á fyrsta fundi kýs bæjarstjórn forseta og tvo varaforseta og skal kjörtímabil þeirra vera hið sama og bæjarstjórnar, nema bæjarstjórn ákveði að kjósa í embættin til eins árs í senn.
2. gr.
Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Grindavíkurbæjar hefur sett skv. ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 18. júní 2015.
F. h. r.
Elín Pálsdóttir.
Stefanía Traustadóttir.
|