Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1319/2022

Nr. 1319/2022 14. nóvember 2022

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 991/2022, um merkingar á umbúðum sem fylgja skulu nikótínvörum, rafrettum og áfyllingum fyrir þær.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir orðinu „viðvörunarmerking“ í 3. mgr. kemur: á umbúðum rafrettna og áfyllinga og eftir atvikum nikótínvara, öðrum en nikótínpúðum.
  2. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Viðvörunarmerking á umbúðum nikótínpúða skal birtast á toppi og botni dósa sem og á safn­umbúðum nikótínpúða og skal vera staðsett með þeim hætti að við opnun á umbúðum verði viðvörunarmerkingin ekki rifin í tvennt eða ólæsileg.

 

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir orðinu „þyngd“ kemur: eða minnkandi magni.
  2. Á eftir orðunum „um nikótíninnihald vörunnar og“ í 1. mgr. kemur: eftir atvikum.
  3. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Heimilt er að flokka efni sem gefa bragð undir samheitinu „Bragðefni“.

 

3. gr.

Á eftir orðunum „að undangengnu samráði við“ í 8. gr. reglugerðarinnar kemur: heilbrigðis­ráðuneytið og.

 

4. gr.

2. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast ákvæði reglugerðarinnar, önnur en 6. gr., ekki gildi varðandi nikótín­vörur fyrr en 1. mars 2023.

 

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 8. gr. og 2. mgr. 16. gr. laga nr. 87/2018, um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, tekur þegar gildi.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 14. nóvember 2022.

 

Willum Þór Þórsson.

Ásta Valdimarsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2022