Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1201/2015

Nr. 1201/2015 16. desember 2015

REGLUR
um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2016.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2016 eru settar skv. 118. gr. nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning fyrir tekjuárið 2016.

Búsafurðir til heimanota og önnur endurgjaldslaus afhending þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrar­tekna hjá búinu.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2016 er sem hér segir:

Tegund Krónur   Eining
Mjólk   84   pr. lítra
Egg 512   pr. kg
Kartöflur 102   pr. kg
Rófur 143   pr. kg
Gulrætur 305   pr. kg
Lambakjöt 652   pr. kg
Kjöt af veturgömlu fé 265   pr. kg
Annað kjöt af sauðfé 180   pr. kg
Ungnautakjöt 790   pr. kg
Annað kjöt af nautgripum 464   pr. kg
Folaldakjöt 305   pr. kg
Annað kjöt af hrossum 120   pr. kg
Grísakjöt 416   pr. kg
Annað svínakjöt 293   pr. kg
Kjúklingar 429   pr. kg
Annað fuglakjöt 640   pr. kg
Lax og silungur 650   pr. kg
Annar fiskur 300   pr. kg

Reykjavík, 16. desember 2015.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2015