Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 20. maí 2015 í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkt tillögu að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga (miðhverfis) Helgafellshverfis sem varðar lóðirnar Vefarastræti 32-38 og 40-46. Tillagan felur í sér tilslökun á kröfum um bílastæði, sýndir eru byggingarreitir fyrir bílakjallara og gerð grein fyrir fjölgun bílastæða ofanjarðar innan lóða. Ofangreind breyting á deiliskipulagi hefur hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 1. júlí 2015,
Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.
|