Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 471/2017

Nr. 471/2017 26. maí 2017

AUGLÝSING
um breytingu á gjaldskrá Orkubús Vestfjarða ohf. fyrir hitaveitur, nr. 743/2008.

Samkvæmt lögum nr. 40/2001 um stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða og orkulögum nr. 58/1967 hefur ráðuneytið staðfest eftirfarandi breytingu á gjaldskrá Orkubús Vestfjarða ohf., fyrir hitaveitur, er taki gildi við birtingu í Stjórnartíðindum.

Gjaldskrá Orkubús Vestfjarða ohf., fyrir hitaveitur, nr. 743/2008, með síðari breytingum, breytist þannig:

Hitaveitur

    Án vsk. Orkuskattur M. 11% vsk.
H90 og H99. Hitun íbúðarhúsnæðis.        
Minnst 74° hiti frá kyndistöð        
Orkugjald kr./kWst 7,90 0,16 8,94
Fastagjald kr./ári 33.350 667 37.759
Rúmmetragjald kr./m³ 35,50 0,71 40,19
         
H94 og H95. Hitun íbúðarhúsnæðis.        
Minnst 72° hiti frá kyndistöð        
Orkugjald kr./kWst 7,90 0,16 8,94
Fastagjald kr./ári 33.350 667 37.759
Rúmmetragjald kr./m³ 30,43 0,61 34,45
         
H98. Sala um varmaskipti.        
Orkugjald kr./kWst 4,96 0,10 5,62
Fastagjald kr./ári 333.513 6.670 377.603
Rúmmetragjald kr./m³ 21,33 0,43 24,15
         
I90, I91 og H70. Reykhólar.        
Fastagjald kr./ári 33.350 667 37.759
Rúmmetragjald kr./m³ 207,27 4,15 234,67
         
I98 og H78. Vatnsmagn.        
Sundlaugar og gróðurhús        
Fastagjald kr./ári 33.350 667 37.759
Rúmmetragjald kr./m³ 69,02 1,38 78,14

Greiða skal í ríkissjóð sérstakan skatt af heitu vatni. Heimilt er að miða innheimtu skatts af heitu vatni við áætlaða sölu. Fjárhæð skatts af heitu vatni skal vera 2,0% af smásöluverði.

Tengigjöld hitaveitu.

    Án vsk. M. 11% vsk.
20 mm stál og 25 mm Pex kr. 231.937 257.450
25 mm stál og 32 mm Pex kr. 301.519 334.686
32 mm stál og 40 mm Pex kr. 463.876 514.902
50 mm stál kr. 695.814 772.354
80 mm stál kr. 2.783.260 3.089.419
Aukamæligrind hitaveitu kr. 72.894 80.912
Uppsetning orkumælis kr. 40.255 44.683

Orkubúinu er heimilt að takmarka aðgang að heitavatnskerfi ef orkuöflun gefur tilefni til.

Sé fyrirsjáanlegt vegna fjarlægðar eða annarra aðstæðna að kostnaður við lagningu heimæðar verði meiri en 50% hærri en gildandi gjaldskrá, skal greiða þann áætlaða kostnað sem er umfram 50%.

Sé ný heimæð ekki tekin í notkun eða veitu lokað, í 6 mánuði eða lengur má búast við aftengingu heimæðar. Hafi notkun aldrei hafist á nýrri heimæð eða fallið niður í veitum sem hafa verið í notkun, í að minnsta kosti 5 ár, telst heimæð aflögð og þarf að greiða fullt tengigjald til að notkun geti hafist. Fyrir skemmri tíma greiðist fastagjald fyrir þann tíma sem liðinn er frá aftengingu auk endurtengingargjalds (uppsetning orkumælis).

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 26. maí 2017.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 31. maí 2017