Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 690/2013

Nr. 690/2013 4. júlí 2013
SAMÞYKKT
um stjórn sveitarfélagsins Skútustaðahrepps.

I. KAFLI

Um skipan sveitarstjórnar, sjálfstjórn hennar og verkefni sveitarfélagsins.

1. gr.

Skipan sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn sveitarfélagsins Skútustaðahrepps er skipuð fimm fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna.

2. gr.

Sjálfstætt stjórnvald.

Skútustaðahreppur er sjálfstætt stjórnvald, sem er stjórnað af lýðræðislega kjörinni sveitarstjórn í umboði íbúa sveitarfélagsins.

3. gr.

Verkefni sveitarfélagsins.

Skútustaðahreppur annast þau lögmæltu verkefni sem því honum falin í lögum, sbr. og leiðbeinandi auglýsingu frá ráðuneyti sveitarstjórnarmála.

Skútustaðahreppur vinnur að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum tíma.

Skútustaðahreppi er heimilt að taka að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa hans, enda sé það ekki falið öðrum að lögum.

II. KAFLI

Um sveitarstjórn.

4. gr.

Hlutverk sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn fer með stjórn sveitarfélagsins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. síðari breytingar, annarra laga og samþykkt þessari.

Sveitarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur og ráðstöfun eigna og um framkvæmd verkefna sveitarfélagsins.

5. gr.

Verkefni sveitarstjórnar.

Meðal verkefna sveitarstjórnar er:

  1. Að sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að fylgt sé viðeigandi reglum í störfum sveitarfélagsins.
  2. Að kjósa oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar, sbr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga, nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla sveitarstjórnarlaga og að ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun hjá sveitarfélaginu, sbr. VII. kafla sveitarstjórnarlaga.
  3. Að setja sveitarstjórn siðareglur, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
  4. Að ákveða stjórnskipan sveitarfélagsins, ráða sveitarstjóra, sbr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga og aðra starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður sveitarfélagsins, sbr. 56. gr. laganna.
  5. Að móta stefnu fyrir starfsemi sveitarfélagsins, deilda og stofnana, setja starfsemi sveitarfélagsins reglur, setja samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  6. Að fara með fjárstjórnarvald sveitarfélagsins, sbr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga og gera fjárhagsáætlanir, sbr. 62. gr. sömu laga.
  7. Að bera ábyrgð á fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja, sbr. 77. gr. sveitarstjórnarlaga og VII. kafla samþykktar þessarar og taka ákvarðanir um verulegar skuldbindingar sveitarfélagsins til lengri tíma.
  8. Að hafa eftirlit með framkvæmd samstarfsverkefna og þjónustusamninga, sbr. IX. kafla sveitarstjórnarlaga.
  9. Að veita íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess upplýsingar um málefni sem snerta hagi þeirra og um samstarf sem sveitarfélagið hefur við önnur sveitarfélög, sbr. 103. gr. sveitarstjórnarlaga.
  10. Sveitarstjórn staðfestir erindisbréf fyrir nefndir, ráð og stjórnir þar sem kveðið er á um hlutverk þeirra, valdsvið, starfshætti og framsal til fullnaðarákvörðunar og starfshætti þeirra í samræmi við lög, reglugerðir og almennar samþykktir sveitarstjórnar.

6. gr.

Ný sveitarstjórn tekur til starfa.

Nýkjörin sveitarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag. Jafnlengi heldur fráfarandi sveitarstjórn umboði sínu, með þeim takmörkunum sem leiðir af lögum um kosningar til sveitarstjórna. Nýkjörin sveitarstjórn hefur einungis umboð til töku ákvarðana um málefni sveitarstjórnarinnar eða sveitarfélagsins eftir að hún tekur við störfum.

Sá fulltrúi í nýkjörinni sveitarstjórn sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórn boðar til fyrsta fundar ekki síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar. Hann stýrir fundi þar til oddviti hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar setið jafnlengi í sveitarstjórn fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari málsgrein.

Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.

7. gr.

Kjör oddvita og varaoddvita.

Á fyrsta fundi kýs sveitarstjórn oddvita og einn varaoddvita. Skal kjörtímabil þeirra vera hið sama og sveitarstjórnar.

Njóti oddviti eða varaoddviti ekki lengur stuðnings sveitarstjórnar skal kjósa í þau embætti að nýju. Hið sama á við ef oddviti eða varaoddviti forfallast varanlega eða fær lausn frá starfi. Tilkynna skal kosningu oddvita og varaoddvita til ráðuneytis þegar að því loknu.

Sá telst rétt kjörinn oddviti sem fær atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju. Við aðra umferð telst sá rétt kjörinn sem fær meirihluta atkvæða þeirra fulltrúa sem sitja fundinn eða ef viðkomandi er sá eini sem fær atkvæði. Fáist ekki niðurstaða við aðra umferð skal kosið þriðja sinni en þá á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu við aðra umferð. Ef nauðsynlegt reynist skal varpa hlutkesti um það milli hverra tveggja verður kosið. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti.

Þegar að lokinni kosningu oddvita skal kjósa varaoddvita. Kosning varaoddvita fer fram með sama hætti og oddvita.

III. KAFLI

Fundir sveitarstjórnar og fundarsköp.

8. gr.

Fundir sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Skútustaðahrepps heldur almennt reglulega fundi sveitarstjórnar á skrifstofu sveitarfélagsins, annan og fjórða fimmtudag í mánuði.

Aukafundi skal halda þegar oddviti eða sveitarstjóri telur það nauðsynlegt eða ef þriðjungur sveitarstjórnarfulltrúa óskar þess.

Sveitarstjórn Skútustaðahrepps er heimilt að fella niður reglulegan fund sinn, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mótatkvæðalaust á næsta fundi sveitarstjórnar á undan.

Sveitarstjórn Skútustaðahrepps er heimilt að fella niður reglulega fundi sveitarstjórnar vegna sumarleyfis.

9. gr.

Boðun sveitarstjórnarfunda.

Sveitarstjóri boðar sveitarstjórnarfundi. Fundarboð skal alla jafna senda rafrænt og berast sveitarstjórnarmönnum ekki síðar en tveimur sólarhringum fyrir fund.

Aukafund skal boða ekki síðar en tveimur virkum dögum eftir að ósk þar um barst þeim er boða skal fund. Fundarboð vegna aukafundar skal berast sveitarstjórnarmönnum svo fljótt sem auðið er og ekki síðar en sólarhring fyrir fund.

Fundarboði skal fylgja dagskrá fundar og þau gögn sem eru nauðsynleg til að sveitarstjórnarmenn geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind.

10. gr.

Dagskrá sveitarstjórnarfundar.

Sveitarstjóri semur dagskrá sveitarstjórnarfundar, í samráði við oddvita, og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar s.s. kosningar oddvita sveitarstjórnar, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarstjórnar, svo og ráðningu sveitarstjóra og helstu stjórnendur sveitarfélagsins og endurskoðenda þess.
  2. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins.
  3. Ályktanir og tillögur sem fram koma í fundargerðum, sbr. 2. tölul. hér að framan og þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar, skal tilgreina sérstaklega í dagskrá.
  4. Önnur mál sem falla undir verksvið sveitarstjórnar og sveitarstjóri eða oddviti ákveða að taka á dagskrá eða einhver sveitarstjórnarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá.

Sveitarstjórnarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal tilkynna sveitarstjóra það skriflega/rafrænt a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.

11. gr.

Tilkynning til íbúa um fundi sveitarstjórnar.

Í upphafi kjörtímabils sveitarstjórnar tekur sveitarstjórn ákvörðun um hvar og hvenær sveitarstjórnarfundir eru haldnir, sbr. 8. gr. samþykktar þessarar, og skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitarfélagsins með tryggum hætti.

Íbúum sveitarfélagsins skal kynnt með opinberri auglýsingu eða með auglýsingu á vefsíðu sveitarfélagsins um fyrirhugaða fundi sveitarstjórnar ásamt dagskrá, innan sömu tímafresta og við á um sveitarstjórnarmenn, enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi.

12. gr.

Opnir fundir sveitarstjórnar.

Fundir sveitarstjórnar eru opnir, en heimilt er að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls. Oddviti eða sveitarstjórn getur jafnframt ákveðið að ræða fyrir luktum dyrum tillögu um lokun fundar.

Þrátt fyrir að fundi sé lokað er heimilt að ákveða að tilteknir starfsmenn sveitarfélagsins séu viðstaddir.

13. gr.

Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.

Sveitarstjórn getur enga ályktun gert nema meira en helmingur sveitarstjórnarmanna sé viðstaddur á fundi.

Á sveitarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.

14. gr.

Tvær umræður í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn skal hafa tvær umræður, með a.m.k. einnar viku millibili um:

  1. Samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra.
  2. Staðfestingu ársreiknings.
  3. Stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til sveitarfélagsins í heild eða meirihluta þess.
  4. Tillögu um sameiningu við annað sveitarfélag skv. 2. mgr. 120. gr. sveitarstjórnarlaga.

Þá skal sveitarstjórn hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins skv. 62. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við fjárhagsáætlanir.

15. gr.

Fundarsköp og ritun fundargerða.

Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð sveitarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.

Um ritun fundargerða sveitarstjórnar skal að öðru leyti farið eftir leiðbeiningum um ritun fundargerða sveitarstjórna, samanber auglýsingu þess efnis nr. 22/2013, sem settar hafa verið samkvæmt 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.

Meginreglur fundarskapa skulu vera eftirfarandi:

  1. Fundarstjórn. Oddviti stjórnar umræðum á fundum sveitarstjórnar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Hann sér um að fundargerðir séu færðar og að allar tillögur og ályktanir séu rétt og nákvæmlega bókaðar, svo og hverja afgreiðslu þær hljóta.
    Oddviti sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum sveitarstjórnar. Hann úrskurðar um skilning á fundarsköpum samkvæmt samþykkt þessari en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar sveitarstjórnar.
  2. Vald oddvita. Skylt er sveitarstjórnarmanni að lúta valdi forseta í hvívetna varðandi það að gætt sé góðrar reglu.
    Ef sveitarstjórnarmaður ber aðra menn brigslum eða víkur verulega frá umræðuefninu skal oddviti víta hann. Ef sveitarstjórnarmaður er víttur tvisvar á sama fundi getur oddviti lagt til við sveitarstjórn að hann verði sviptur málfrelsi það sem eftir er fundar. Skal sú tillaga afgreidd umræðulaust.
    Ef sveitarstjórnarmaður hlýðnast ekki úrskurði oddvita eða almenn óregla kemur upp á fundi skal oddviti gera hlé um stundarsakir eða ef nauðsyn krefur fresta eða slíta fundi.
    Ef áheyrandi á sveitarstjórnarfundi raskar fundarfriði getur oddviti vísað honum úr fundarsal.
    Leyfi forseta þarf til að taka myndir í fundarsal sveitarstjórnar.
  3. Afgreiðsla mála. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í þeirri röð sem dagskrá kveður á um nema sveitarstjórn eða oddviti ákveði að önnur röð skuli höfð. Oddviti getur ákveðið að tiltekið mál í fundargerð sem er á dagskrá verði gert að sérstökum dagskrárlið á fundinum. Heimilt er að taka mál á dagskrá þótt ekki sé þess getið í fundarboði, enda samþykki 2/3 viðstaddra sveitarstjórnarmanna þau afbrigði.
  4. Málfrelsi sveitarstjóra. Sveitarstjóri skal sitja fundi sveitarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í sveitarstjórn.
  5. Málfrelsi. Sveitarstjórnarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum sveitarstjórnar.
    Sveitarstjórnarmaður sem taka vill til máls skal óska heimildar oddvita. Að jafnaði skulu menn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Heimilt er að víkja frá þessu ef um er að ræða sveitarstjóra eða framsögumann svo og sveitarstjórnarmann sem gera vill stutta athugasemd, bera af sér ámæli eða veita andsvar. Ef tveir eða fleiri kveða sér samtímis hljóðs ákveður oddviti í hvaða röð þeir tala.
    Sveitarstjórnarmanni er heimilt að flytja mál sitt úr sæti sínu nema oddviti ákveði annað.
  6. Ávarp ræðumanns. Sveitarstjórnarmaður skal beina máli sínu til oddvita.
    Sveitarstjórnarmaður skal ávarpa einstaka sveitarstjórnarmenn með fullu nafni.
    Þegar til umræðu er fundargerð skal ræðumaður taka fram hvaða lið í fundargerð hann óskar að ræða.
    Ekki má lesa prentað mál nema oddviti leyfi.
  7. Hve oft má tala. Sveitarstjórnarmaður má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó sveitarstjórnarmanni að taka oftar til máls, til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn oddvita. Sveitarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls.
  8. Ræðutími. Ef oddviti telur umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers sveitarstjórnarmanns verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða að umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver sveitarstjórnarmaður getur og borið fram slíkar tillögur. Sveitarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál meira en svo að hún standi skemur en í tvær klukkustundir ef einhver sveitarstjórnarfulltrúi kveður sér hljóðs.
  9. Tillögur og afgreiðsla. Sveitarstjórnarmaður getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar. Oddviti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu í samræmi við almennar reglur um fundarsköp.
    Oddviti sker úr því hvernig atkvæðagreiðslum um tillögur skuli hagað.
  10. Réttur til bókunar. Þeir sem hafa rétt til að taka þátt í umræðum í sveitarstjórn eiga rétt á að fá bókaðar í fundargerð stuttar athugasemdir um afstöðu til þeirra mála sem til umræðu eru.
  11. Atkvæðagreiðsla. Atkvæðagreiðsla á sveitarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Sveitarstjórnarmaður greiðir atkvæði úr sæti sínu. Oddviti biður þá sveitarstjórnarmenn sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar oddviti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir oddviti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.
    Ef mál er svo vaxið að oddviti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.
    Oddviti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber oddvita að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur fulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá sveitarstjórnarmanna í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða sveitarstjórnarmaður greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal oddviti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar sveitarstjórnarmaður, þegar oddviti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða á móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.
    Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef sveitarstjórnarmaður óskar og sveitarstjórn samþykkir.
  12. Kosningar. Kosningar sem fara fram í sveitarstjórn, skv. 43. gr. sveitarstjórnarlaga, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar, sé þess óskað. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við oddvitakjör.
    Sveitarstjórn ber að hafa í huga ákvæði 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga varðandi kynjahlutfall.

16. gr.

Hæfi til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála.

Um hæfi sveitarstjórnarmanna, nefndarfulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins til þátttöku í meðferð eða afgreiðslu mála þar sem á, eða til greina kemur, að taka stjórnvaldsákvörðun skv. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gilda ákvæði stjórnsýslulaga sé ekki öðruvísi ákveðið í sveitarstjórnarlögum. Viðkomandi telst þó aðeins vanhæfur sé hann eða hafi verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að einum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar. Þá verður starfsmaður sveitarfélagsins ekki vanhæfur vegna vanhæfis yfirmanns ef eðli máls eða uppbygging stjórnkerfis sveitarfélagsins þykir ekki gefa tilefni til slíks.

Í öðrum tilvikum en skv. 1. mgr. ber sveitarstjórnarmanni, nefndarfulltrúa eða starfsmanni sveitarfélagsins að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Þessi regla tekur einnig til gerðar samninga fyrir hönd sveitarfélagsins.

Sveitarstjórnarmenn eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum sveitarstjórnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.

Sveitarstjórnarmenn eða nefndarmenn sem jafnframt eru starfsmenn sveitarfélagsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa eða taka ákvörðun í tilteknu máli sem lagt er fyrir sveitarstjórn eða nefnd eru alltaf vanhæfir þegar sveitarstjórnin eða nefndin fjallar um málið. Þetta á þó ekki við um sveitarstjóra.

Ákvæði 4. mgr. á ekki við þegar sveitarstjórn eða viðkomandi nefnd fjallar um og afgreiðir ársreikninga, fjárhagsáætlanir, skipulagsáætlanir og aðrar almennar áætlanir sveitarfélagsins, enda eigi sveitarstjórnarmaður eða nefndarmaður ekki sérstakra og verulegra hagsmuna að gæta umfram aðra við afgreiðslu viðkomandi málefnis.

Sveitarstjórnarmaður, nefndarfulltrúi eða starfsmaður sveitarfélagsins sem veit hæfi sitt eða annars orka tvímælis skal án tafar vekja athygli oddvita, formanns nefndar eða næsta yfirmanns á því.

Sveitarstjórn tekur ákvörðun um hæfi sveitarstjórnarmanns til meðferðar og afgreiðslu einstakra mála. Sveitarstjórnarmaður sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt. Nefnd tekur ákvörðun um hæfi nefndarmanns. Nefndarmaður sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.

Sveitarstjórnarmaður eða nefndarmaður sem er vanhæfur til meðferðar máls má ekki taka þátt í meðferð þess eða hafa áhrif á það með öðrum hætti og skal ávallt yfirgefa fundarsal við meðferð þess og afgreiðslu.

17. gr.

Varamenn í sveitarstjórn.

Varamenn taka sæti í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir. Hafi kosning farið fram með hlutbundinni kosningu taka varamenn sæti í þeirri röð sem listi var skipaður og að öðru leyti í samræmi við 21. gr. sveitarstjórnarlaga.

IV. KAFLI

Réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna.

18. gr.

Skyldur sveitarstjórnarmanna.

Sveitarstjórnarmanni ber skylda til að taka þátt í öllum sveitarstjórnarfundum og fundum í nefndum og ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli.

Aðal- og varamönnum í sveitarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins, sem og til annarra trúnaðarstarfa á vegum sveitarfélagsins. Sá sem verið hefur oddviti heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan sveitarstjórnar jafnlangan tíma eða lengur getur skorast undan kosningu til þess starfs jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið með höndum. Ósk um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi nefnd eða trúnaðarstarf fer fram.

Hverjum sveitarstjórnarmanni er skylt að inna af hendi störf sem sveitarstjórn felur honum og varða verkefni sveitarstjórnarinnar.

Sveitarstjórnarmenn skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

19. gr.

Réttur sveitarstjórnarmanna.

Sveitarstjórnarmenn eru sjálfstæðir í störfum sínum. Þeir eru einungis bundnir af lögum og eigin sannfæringu um afstöðu til einstakra mála.

Sveitarstjórnarmaður á rétt á að tekið verði á dagskrá sveitarstjórnarfundar hvert það málefni sem sérstaklega varðar hagsmuni sveitarfélagsins eða verkefni þess.

Mál sem ekki er tilgreint á boðaðri dagskrá sveitarstjórnarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á viðkomandi fundi án samþykkis 2/3 hluta fundarmanna.

Sveitarstjórnarmenn hafa málfrelsi á fundum sveitarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í fundarsköpum sveitarstjórnar. Þeir hafa tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum sveitarstjórnar.

Vilji sveitarstjórnarmaður ekki una úrskurði oddvita um stjórn fundar og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til sveitarstjórnar sem sker úr án umræðna.

20. gr.

Aðgangur að gögnum.

Vegna starfa sinna í sveitarstjórn á sérhver sveitarstjórnarmaður rétt á að kynna sér gögn og upplýsingar sem fyrir liggja í stjórnsýslu sveitarfélagsins og varða málefni sem komið geta til umfjöllunar í sveitarstjórn.

Sveitarstjórnarmaður skal eiga eðlilegan aðgang að skrifstofu og stofnunum sveitarfélagsins í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi sveitarfélagsins og rekstur.

Sveitarstjórnarmaður skal beina beiðni um aðgang að gögnum, skv. 1. mgr. til sveitarstjóra eða oddvita. Í slíkri beiðni skal koma fram sem skýrust afmörkun þeirra gagna sem um ræðir. Afgreiðsla beiðna skal alla jafna fara fram innan þriggja vinnudaga frá því beiðni berst. Varði beiðni mikið umfang gagna eða ef gögn geta verið undanþegin upplýsingarétti almennings, skal sveitarstjóri eða oddviti, leggja til að sveitarstjórnarmaður kynni sér gögn á skrifstofu sveitarfélagsins en fái ekki afrit þeirra.

Sveitarstjórnarmaður skal beina beiðni um aðgang að skrifstofu og stofnunum sveitarfélagsins til sveitarstjóra eða oddvita, sbr. 2. mgr. Varði beiðni stofnun sem sérstakur fyrirsvarsmaður er fyrir skal beiðni einnig kynnt þeim aðila. Sveitarstjórnarmaður skal alla jafna hafa fengið tækifæri til að nýta rétt sinn innan fimm vinnudaga frá því beiðni berst.

21. gr.

Siðareglur og góðir starfshættir.

Sveitarstjórnarmaður skal í störfum sínum fara eftir þeim siðareglum sem sveitarstjórn setur sér, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.

22. gr.

Lausn frá störfum.

Telji sveitarstjórnarmaður sig ekki geta gegnt skyldum í sveitarstjórn án óhæfilegs álags, getur hann óskað eftir því við sveitarstjórn að hún:

  1. létti af honum störfum eða
  2. veiti honum lausn úr sveitarstjórn um tiltekinn fyrirfram ákveðinn tíma eða til loka kjörtímabils.

Þegar sveitarstjórnarmaður flytur úr sveitarfélaginu um stundarsakir má sveitarstjórn ákveða, að ósk hans, að hann skuli víkja úr sveitarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í sveitarfélaginu. Slík ákvörðun skal tekin áður en sveitarstjórnarmaður flytur um stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein missir sveitarstjórnarmaður kjörgengi við skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi.

Missi sveitarstjórnarmaður kjörgengi skal hann víkja úr sveitarstjórn. Ef sveitarstjórnarmaður missir fjárforræði skal sveitarstjórn veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

23. gr.

Boðun varamanna.

Þegar aðalmaður er vanhæfur til meðferðar máls í sveitarstjórn skal boða varamann hans til meðferðar þess og afgreiðslu. Að afgreiðslu máls lokinni tekur aðalmaður sæti sitt á viðkomandi fundi á ný. Verði innköllun varamanns ekki við komið getur vanhæfur sveitarstjórnarmaður krafist þess að umræðu og afgreiðslu máls verði frestað til næsta fundar. Frestun nær þó ekki fram að ganga ef 2/3 hlutar viðstaddra sveitarstjórnarfulltrúa greiða atkvæði gegn frestun eða ef frestun hefur í för með sér að gengið sé gegn lögbundnum afgreiðslutíma máls.

Þegar aðalmaður getur ekki mætt til fundar eða þarf að víkja af fundi af heilsufarsástæðum eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum tekur varamaður hans sæti í sveitarstjórn á þeim fundi. Aðalmaður skal tilkynna forföll til fundarboðanda, eins fljótt og auðið er og óska eftir því að varamaður verði boðaður. Forföll samkvæmt þessari málsgrein taka ávallt til viðkomandi fundar í heild, eða til loka fundar sé um það að ræða.

Þegar fyrirséð er að aðalmaður í sveitarstjórn mun taka hlé frá störfum vegna atvika sem greinir í 2. mgr. í a.m.k. einn mánuð skal varamaður hans taka sæti í sveitarstjórninni frá og með næsta fundi, enda séu þá ástæður forfalla enn til staðar. Þegar forföllum lýkur tekur aðalmaður sæti sitt að nýju frá og með næsta fundi.

Þegar aðalmaður fellur frá, missir kjörgengi eða fær lausn frá starfi í sveitarstjórn skal varamaður hans taka sæti í sveitarstjórn frá og með næsta fundi.

24. gr.

Þóknun o.fl.

Sveitarstjórnarmaður skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í sveitarstjórn. Ef um langan veg er að fara milli heimilis sveitarstjórnarmanns og fundarstaðar sveitarstjórnar skal sveitarstjórnarmaður fá hæfilega greiðslu vegna ferðakostnaðar. Takist sveitarstjórnarmaður á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnarinnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.

Sveitarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

Sveitarstjórnarmaður má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar greinar.

25. gr.

Réttindi og skyldur varamanna.

Ákvæði þessa kafla, um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna, eiga einnig við um varamenn þegar þeir taka sæti í sveitarstjórn.

V. KAFLI

Fastanefndir, ráð og stjórnir.

26. gr.

Kosning í fastanefndir og kjörtímabil.

Sveitarstjórn kýs fulltrúa í nefndir eftir því sem fyrir er mælt í lögum og samþykkt þessari. Slíkar nefndir teljast fastanefndir sveitarstjórnar.

Kjörtímabil fastanefnda er hið sama og sveitarstjórnar, nema annað leiði af lögum eða samþykkt þessari.

Að loknum sveitarstjórnarkosningum halda fastanefndir þó umboði sínu þar til nýkjörin sveitarstjórn hefur kjörið nýja nefnd í þeirra stað en með sömu takmörkunum valdheimilda og fyrri sveitarstjórn sætti að afloknum kosningum, sbr. 12. gr. og 2. mgr. 37. gr. sveitarstjórnarlaga.

27. gr.

Kosning og kjörgengi.

Kosningar í fastanefndir sveitarstjórnar, nefndir fyrir hluta sveitarfélagsins, nefndir til að fara með einstök verkefni eða málaflokka og aðrar nefndir og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef þess er óskað. Framkvæmd kosninga skal þá vera í samræmi við ákvæði 44. og 45. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ef ekki er kosið hlutfallskosningu til nefndar, sbr. 1. mgr. 43. gr., sveitarstjórnarlaga, skal sveitarstjórn gæta þess að fullnægja kröfum um kynjahlutfall skv. 2. tölul. 44. gr. laganna við skipun í viðkomandi nefnd.

Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir sem hafa kosningarrétt í sveitarfélaginu, nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga.

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. Sveitarstjórn getur þó ákveðið að víkja frá þessu ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starfið er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum vegna nefndarsetu.

28. gr.

Valdsvið nefnda og framsal sveitarstjórnar til fastanefnda
á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála.

Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum sveitarstjórnar.

Öllum nefndum skulu sett erindisbréf.

Sveitarstjórnin getur falið nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið sveitarstjórn til ákvörðunar og skal slíkt valdframsal ákveðið sérstaklega í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.

29. gr.

Afgreiðsla á fundargerðum.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna skulu lagðar fyrir sveitarstjórn til kynningar eða afgreiðslu og staðfestingar. Fundargerðum skal skilað á skrifstofu sveitarstjórnar eigi síðar en þremur sólarhringum eftir fund.

Þær ályktanir eða tillögur í fundargerðum sem þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar eru lagðar fyrir sem sérstök mál og eru afgreidd með formlegum hætti.

Ályktun nefndar sem hefur fjárútlát í för með sér skal lögð fyrir sveitarstjórn eftir því sem fyrir er mælt í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.

30. gr.

Fundir nefnda og ályktunarhæfi.

Fundir nefnda skulu almennt haldnir fyrir luktum dyrum. Nefnd er heimilt að opna fundi sína komi fram ósk um slíkt svo fremi sem lög eða eðli máls hamli því ekki.

Ákvörðun um opinn fund skal tekin á fyrri fundi nefndarinnar og fá þar samþykki allra fundarmanna.

Á dagskrá opins nefndarfundar verða einungis til umfjöllunar málefni sem varða umtalsverða og/eða almenna hagsmuni íbúa sveitarfélagsins, og geta ekki varðað mál sem undanþegin kunna að vera upplýsingarétti almennings.

Opinn nefndarfund skal auglýsa með dreifibréfi til allra heimila í sveitarfélaginu og með auglýsingu á heimasíðu sveitarfélagsins.

Um fundi nefnda, ályktunarhæfi og atkvæðagreiðslur gilda ákvæði III. kafla samþykktar þessarar og sveitarstjórnarlaga eftir því sem við getur átt.

31. gr.

Fundarstjórn og fundargerðir.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.

Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Nefnd getur ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða, nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitarstjórnar, sbr. 15. gr. samþykktar þessarar.

32. gr.

Varamenn.

Varamenn taka sæti í nefndum í þeirri röð sem þeir eru kosnir.

Þegar kosið er til nefndar hlutbundinni listakosningu eða listi hefur verið sjálfkjörinn og aðalmaður í nefnd er forfallaður taka varamenn þess lista sem aðalmaður er kjörinn af sæti í nefnd í þeirri röð sem þeir skipa listann eftir að endurröðun á hann hefur farið fram skv. 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar til sveitarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista við hlutbundna kosningu í nefnd sveitarstjórnar geta þeir komið sér saman um að varamenn á listanum vegna nefndarkosningarinnar, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista og sá aðalmaður í nefnd sem um ræðir, taki sæti hans í nefndinni í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri sama framboðslista og aðalmaður tilheyrði þegar kosning í nefnd fór fram taka varamenn af listanum sæti eftir venjulegum reglum.

Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta sveitarstjórnarfundi eftir að nefndarkosning fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í nefnd að nýju.

33. gr.

Boðun varamanna.

Um boðun varamanna á nefndarfundi gilda ákvæði 23. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á.

Þegar aðalmaður í nefnd fellur frá, missir kjörgengi, fær lausn frá nefndarstarfi eða forfallast varanlega frá því að sitja í nefnd tekur varamaður hans sæti í nefndinni nema sveitarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju, ella skipar sveitarstjórn nýjan varamann til setu í nefndinni.

Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar um varamenn taka einnig til varaáheyrnarfulltrúa eftir því sem við getur átt.

34. gr.

Lausn frá nefndarsetu og endurskipun.

Fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins, sem ekki eru aðal- eða varamenn í sveitarstjórn, er heimilt að segja af sér nefndastörfum hvenær sem er á kjörtímabili. Aðrir fulltrúar geta óskað eftir því við sveitarstjórn að þeim verði veitt lausn tímabundið eða út kjörtímabilið og metur hún þá hvort skilyrði til þess séu fyrir hendi.

Sveitarstjórn getur hvenær sem er á kjörtímabili ákveðið að skipta um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sem hún kýs eða skipar ef ekki er um það ágreiningur innan sveitarstjórnar eða málefnalegar ástæður mæla með slíkri breytingu, svo sem ef nefndarmaður, án lögmætra forfalla, mætir ekki á fundi nefndar eða brýtur gegn þagnarskyldu. Enn fremur getur sveitarstjórnarmaður krafist þess að nefnd verði endurskipuð telji hann ástæðu til. Sveitarstjórn er þó heimilt að hafna slíkri beiðni ef hún er bersýnilega tilefnislaus að því tilskildu að 2/3 fundarmanna greiði atkvæði með tillögu um höfnun. Við framangreindar breytingar á skipan fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins skal kjósa alla fulltrúa að nýju og fer þá um kjör þeirra skv. 1. mgr. 43. gr. sveitarstjórnarlaga nema enginn ágreiningur sé innan sveitarstjórnar um breytingarnar.

Breytingar á nefndaskipan samkvæmt þessari grein skulu fullnægja skilyrðum 2. tölul. 44. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga um kynjahlutföll.

35. gr.

Áheyrnarfulltrúar.

Framboðsaðila sem fulltrúa á í sveitarstjórn, en nær ekki kjöri í fastanefnd, er heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til þátttöku í fundum nefnda.

Um áheyrnarfulltrúa á fundum nefnda gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um aðra nefndarmenn. Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi skulu fullnægja kjörgengisskilyrðum í viðkomandi nefnd.

36. gr.

Þóknun.

Sveitarstjórn er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins hæfilega þóknun fyrir þau störf, samkvæmt mati sveitarstjórnar, í samræmi við reglur sem hún setur. Sveitarstjórn er með sama hætti heimilt að ákveða að greiða áheyrnarfulltrúum þóknun fyrir störf þeirra í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins.

37. gr.

Önnur réttindi og skyldur.

Nefndarmönnum er skylt að sækja fundi nefndar.

Ákvæði III. og IV. kafla samþykktar þessarar gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á. Réttindi takmarkast þó eftir eðli máls við það sem fulltrúum er þörf á vegna starfa í viðkomandi nefnd.

38. gr.

Aðrar nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að.

Sveitarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að samkvæmt viðkomandi lögum eða samþykktum. Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar eiga við um slíka fulltrúa eftir því sem við getur átt.

Að því leyti sem nefnd, ráð eða stjórn lögaðila, sem sveitarstjórn kýs fulltrúa til skv. 1. mgr., fer með framkvæmd eða ábyrgð á verkefni sem sveitarfélaginu væri ekki sjálfu heimilt að sinna, þá er fulltrúi sveitarfélagsins í viðkomandi nefnd, ráði eða stjórn ekki bundinn af fyrirmælum sveitarstjórnarinnar um þau störf. Hið sama á við að því leyti sem það leiðir af lögum sem gilda um rekstur og starfsemi viðkomandi lögaðila.

39. gr.

Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að.

Sveitarstjórnin kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð, stjórnir og embætti:

A. Fulltrúar kjörnir til fjögurra ára í fastanefndir á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum.

  1. Skólanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Hlutverk nefndarinnar er að fara með málefni grunn-, leik- og tónlistarskóla skv. erindisbréfi.
  2. Félags- og menningarmálanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Hlutverk nefndarinnar er að fjalla um málefni félagsþjónustu, fatlaðra, aldraðra, jafnréttismál, forvarnir, áfengis- og vímuvarnir og húsnæðismál. Nefndin fjallar jafnframt um æskulýðs- og íþróttamál og menningarmál þar með talið almenningsbókasafn.
  3. Skipulags- og umhverfisnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Hlutverk nefndarinnar er að fjalla um skipulagsmál, umhverfis-, samgöngu- og hreinlætismál. Einnig fjallar nefndin um málefni veitna.
  4. Atvinnumálanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Hlutverk nefndarinnar er að fjalla um atvinnumál og málefni landbúnaðarins þar með talið eyðingu vargs. Þá fjallar nefndin um fasteignir í eigu sveitarfélagsins, kaup, viðhald, nýbyggingar o.fl.
  5. Kjörstjórn við sveitarstjórnar- og alþingiskosningar. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara.
  6. Fjallskilastjórar. Tveir.
  7. Grenjaskyttur. Tvær.

B. Fulltrúar kjörnir til fjögurra ára í sameiginlegar fastanefndir og sameiginlegir fulltrúar með öðrum sveitarfélögum í fastanefndum, kjörnir eftir samkomulag um tilnefningu.

Kjör á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum:

  1. Búfjáreftirlitsnefnd á svæði BSSÞ (Búnaðarsambands Suður Þingeyinga). Einn fulltrúi.
  2. Eldvarnareftirlitsnefnd með Þingeyjarsveit. Einn aðalmaður og einn til vara.
  3. Héraðsnefnd Þingeyinga. Einn aðalmaður og einn til vara.
  4. Stjórn Sorpsamlags Þingeyinga með Þingeyjarsveit. Einn aðalmaður.
  5. Stjórn Hvamms, dvalarheimilis aldraðra. Einn aðalmaður og einn til vara.

C. Kjörnir til fjögurra ára á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitar­stjórnar­kosningum.

  1. Aðalfundur Eyþings. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara.
  2. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Einn aðalmaður og einn til vara.

D. Tilnefningar.

  1. Svæðisráð norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs. Einn aðalmaður.

Sveitarstjórn fer með verkefni annarra lögbundinna nefnda en framangreindra.

Kjörtímabil fulltrúa Skútustaðahrepps í fastanefndum, er hið sama og sveitarstjórnarinnar, nema annað sé ákveðið í lögum eða samþykktum. Að loknum sveitarstjórnarkosningum halda fastanefndir þó umboði sínu þar til nýkjörin sveitarstjórn hefur kjörið nýja nefnd í þeirra stað, en með sömu takmörkunum valdheimilda og fyrri sveitarstjórn sætti að afloknum kosningum, sbr. 6. gr. samþykktar þessarar.

VI. KAFLI

Sveitarstjóri og aðrir starfsmenn sveitarfélagsins.

40. gr.

Ráðning sveitarstjóra.

Sveitarstjórn er heimilt að ráða sveitarstjóra til þess að annast framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar og verkefni sveitarfélagsins. Sveitarstjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við sveitarstjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin. Ráðningartími sveitarstjóra skal að jafnaði vera sá sami og kjörtímabil sveitarstjórnar.

41. gr.

Hlutverk oddvita.

Ef ekki er ráðinn sérstakur sveitarstjóri hefur oddviti með höndum daglega stjórn sveitarfélagsins, undirbýr fundi sveitarstjórnar, annast framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar og annarra málefna sveitarfélagsins, svo sem bréfaskipti, gjaldheimtu og reikningshald. Um hlutverk oddvita vísast jafnframt til ákvæða samþykktar þessarar um hlutverk framkvæmdastjóra.

Laun oddvita skulu ákveðin sérstaklega af sveitarstjórninni. Skulu launin endurskoðuð reglulega í samræmi við almennar launabreytingar í landinu.

Ef um er að ræða sérstakar, umfangsmiklar og tímabundnar framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins sem oddviti sér um, á hann rétt á sérstakri þóknun fyrir þau störf samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar. Láti oddviti í té húsnæði og aðra aðstöðu vegna skrifstofuhalds og fundarhalda í þágu sveitarfélagsins á hann rétt á sérstakri greiðslu fyrir þá þjónustu.

Varaoddviti gegnir staðgengilshlutverki fyrir oddvita.

42. gr.

Hlutverk sveitarstjóra.

Sveitarstjóri er æðsti yfirmaður annars starfsliðs sveitarfélagsins. Hann skal sjá um að stjórnsýsla sveitarfélagsins samræmist lögum, samþykktum og viðeigandi fyrirmælum yfirmanna.

Sveitarstjóri skal sitja fundi sveitarstjórnar. Þar hefur hann málfrelsi, tillögurétt og rétt til bókana en ekki atkvæðisrétt nema hann sé jafnframt kjörinn fulltrúi í sveitarstjórninni. Hann hefur jafnframt rétt til setu á fundum nefnda og ráða sem sveitarstjórn skipar.

Sveitarstjóri skal sjá um að fundir sveitarstjórnar og nefnda sveitarstjórnar séu vel undirbúnir, m.a. í þeim tilgangi að mál sem þar eru afgreidd séu vel upplýst. Hann sér einnig um að ákvarðanir þær sem teknar eru af hálfu sveitarstjórnar og annarra nefnda komist til framkvæmda, hafi sveitarstjórn ekki falið það öðrum.

Sveitarstjóri er prókúruhafi sveitarfélagsins. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni sveitarfélagsins prókúru að fengnu samþykki sveitarstjórnar. Prókúruhafar skulu vera fjár síns ráðandi.

Sveitarstjóri undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki sveitarstjórnar þarf til.

43. gr.

Ráðning í æðstu stjórnunarstöður.

Sveitarstjórn ræður starfsmenn í stjórnunarstöður hjá Skútustaðahreppi og veitir þeim lausn frá starfi.

44. gr.

Um ráðningu annarra starfsmanna.

Um ráðningu annarra starfsmanna fer eftir reglum sem sveitarstjórn setur.

45. gr.

Þagnarskylda starfsmanna.

Starfsmenn Skútustaðahrepps og aðrir sem sveitarfélagið ræður til vinnu við ákveðin verkefni eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

46. gr.

Um starfskjör og réttindi starfsmanna.

Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna Skútustaðahrepps fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og ákvæðum ráðningarsamninga.

VII. KAFLI

Fjármál sveitarfélagsins.

47. gr.

Fjárstjórnarvald sveitarstjórnar.

Einvörðungu sveitarstjórn getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjármál sveitarfélagsins. Til slíkra málefna teljast m.a. ákvarðanir um eftirtalin atriði séu ekki gerðar beinar undantekningar þar á með lögum:

  1. staðfestingu ársreiknings,
  2. fjárhagsáætlun næstkomandi árs,
  3. fjárhagsáætlun til fjögurra ára,
  4. viðauka við fjárhagsáætlanir skv. 2. og 3. tölul.,
  5. lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins,
  6. sölu eigna sveitarfélagsins og annarra réttinda þess,
  7. álagningu skatta og gjalda,
  8. ráðningu eða uppsögn endurskoðanda.

48. gr.

Afgreiðsla og form fjárhagsáætlunar.

Sveitarstjórn skal á hverju ári afgreiða fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og næstu þrjú ár þar á eftir. Sveitarstjóri eða oddviti, hafi sveitarstjóri ekki verið ráðinn, leggur tillögu um fjárhagsáætlun fyrir sveitarstjórn eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Sveitarstjórn skal fjalla um hana á tveimur fundum sem fram skulu fara með minnst tveggja vikna millibili. Að lokinni umræðu sveitarstjórnar skal afgreiða tillöguna, þó ekki síðar en 15. desember ár hvert.

Fjárhagsáætlanir skulu gefa glögga mynd af rekstri sveitarfélagsins, efnahag og breytingum á handbæru fé. Einnig skal þar koma fram greinargott yfirlit um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjárheimildir sveitarfélagsins. Við gerð fjárhagsáætlana skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs og stofnana sveitarfélagsins við upphaf áætlunartímabilsins.

Sveitarstjórn skal senda ráðuneytinu fjárhagsáætlun innan fimmtán daga frá afgreiðslu hennar, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga. Sama á við um viðauka við fjárhagsáætlun.

49. gr.

Bindandi áhrif ákvörðunar um fjárhagsáætlun ársins.

Ákvörðun sem sveitarstjórn tekur skv. 48. gr. samþykktar þessarar og 62. gr. sveitarstjórnarlaga um fjárhagsáætlun næstkomandi árs er bindandi regla um allar fjárhagslegar ráðstafanir af hálfu sveitarfélagsins. Aðrir geta þó ekki byggt sjálfstæðan rétt til fjárframlaga eða annarrar fyrirgreiðslu sveitarfélagsins á fjárhagsáætlunum.

Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráðstafanir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í fjárhagsáætlun í þegar samþykktri áætlun. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.

Þrátt fyrir 2. mgr. má í undantekningartilvikum gera þær ráðstafanir sem skylt er samkvæmt lögum eða öðrum bindandi réttarreglum án þess að sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka, enda þoli þær ekki bið. Viðhlítandi heimildar sveitarstjórnar skal þá afla svo fljótt sem auðið er. Skal erindi um slíka heimild lagt fyrir þegar á næsta fundi sveitarstjórnarinnar.

50. gr.

Fjármálareglur og viðmið um afkomu sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveitarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum, sbr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga og ákvæði reglugerðar um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga og sett er á grundvelli hennar.

51. gr.

Ábyrg meðferð fjármuna og heimildir til fjárskuldbindinga.

Sveitarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna sveitarfélagsins og varðveita fjármuni með ábyrgum hætti, svo sem á innlánsreikningum fjármálastofnana eða með því að kaupa ríkistryggð verðbréf. Um heimildir til fjárfestinga í hagnaðarskyni fer skv. ákvæðum 65. gr. sveitarstjórnarlaga.

Áður en sveitarstjórn tekur ákvörðun um fjárfestingu, framkvæmd eða aðra skuldbindingu sem nemur hærri fjárhæð en 20% af skatttekjum sveitarfélagsins yfirstandandi reikningsár er skylt að gera sérstakt mat á áhrifum hennar á fjárhag sveitarfélagsins, sbr. ákvæði 66. gr. sveitarstjórnarlaga.

Um heimildir Skútustaðahrepps til veðsetninga og að gangast í ábyrgðir fer skv. 68. og 69. gr. sveitarstjórnarlaga.

52. gr.

Ársreikningur.

Gera skal ársreikning fyrir sveitarsjóð, stofnanir sveitarfélagsins og fyrirtæki þess. Jafnframt skal gera samstæðureikning fyrir sveitarfélagið, þ.e. sveitarsjóð, stofnanir þess og fyrirtæki með sjálfstætt reikningshald, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga. Ársreikningur skal gerður samkvæmt lögum um ársreikninga, reglum settum samkvæmt þeim lögum og sveitarstjórnarlögum, sem og góðri reikningsskilavenju.

Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður og samþykktur af sveitarstjóra sveitarfélagsins og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir 15. apríl ár hvert.

Sveitarstjórn skal hafa lokið staðfestingu ársreiknings sveitarfélagsins, stofnana og fyrirtækja þess eigi síðar en 15. maí ár hvert.

Ársreikning sveitarfélagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála og Hagstofu Íslands ekki síðar en 20. maí ár hvert.

53. gr.

Endurskoðun ársreikninga.

Sveitarstjórn ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun ársreikninga hjá sveitarfélaginu. Endurskoðun fer eftir lögum um endurskoðendur, lögum um ársreikninga og alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum, sem og fyrirmælum 72. og 73. gr. sveitarstjórnarlaga.

VIII. KAFLI

Samráð við íbúa – Þátttökulýðræði.

54. gr.

Samráð við íbúa.

Sveitarstjórn skal leitast við að tryggja íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess möguleika til að taka þátt í og hafa áhrif á stjórn sveitarfélagsins og undirbúning stefnumótunar, sbr. ákvæði X. kafla sveitarstjórnarlaga.

Sveitarstjórn skal sérstaklega vinna að því að íbúar sveitarfélagsins geti fengið greinargóðar upplýsingar um áætlanir sem sveitarfélagið hefur til meðferðar og önnur mál sem hafa verulega þýðingu fyrir sveitarfélagið. Í því skyni verði eftir því sem best hentar veittar upplýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins, dreifibréf send á heimili í sveitarfélaginu eða haldnir borgarafundir.

55. gr.

Almenn atkvæðagreiðsla að frumkvæði íbúa.

Ef 33,3% þeirra sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu óska almennrar atkvæðagreiðslu skv. 108. gr. sveitarstjórnarlaga skal sveitarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því að slík ósk berst.

Um framkvæmd undirskriftasöfnunar, hlutverk sveitarstjórnarinnar og framkvæmd almennrar atkvæðagreiðslu fer skv. 107. og 108. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

56. gr.

Gildistaka.

Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Skútustaðahrepps hefur sett skv. ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn og fundarsköp Skútustaðahrepps nr. 701/2011.

Innanríkisráðuneytinu, 4. júlí 2013.

F. h. r.

Hermann Sæmundsson.

Stefanía Traustadóttir.

      B deild - Útgáfud.: 18. júlí 2013