- Frestur til að skila umsóknum um lækkun á fyrirframgreiðslu ársins 2016, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1238/2015, er til 2. apríl nk. vegna manna, en til 31. maí 2016 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið sendar rafrænt á netfangið [email protected] fyrir lok umsóknarfrests.
- Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skatt- eða gjaldstofnar vegna tekjuársins 2015 séu a.m.k. 25% lægri en þeir stofnar sem fyrirframgreiðslan ákvarðast af, þ.e. tekjuárið 2014, og að álögð gjöld 2016 muni af þeim sökum að lágmarki verða 50.000 kr. lægri en við álagningu 2015.
- Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun á fyrirframgreiðslu með framlagningu skattframtals 2016 ásamt lögboðnum fylgiskjölum. Ársreikningar skulu fylgja skattframtölum rekstraraðila. Hafi umsækjandi skilað rafrænu framtali 2016 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni.
- Vakin er athygli á því að heimilt er að óska eftir endurupptöku á ákvörðun ríkisskattstjóra innan þriggja mánaða frá dagsetningu úrskurðar.
- Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1238/2015 og taka þegar gildi.
Reykjavík, 5. janúar 2016.
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.
|