1. gr.
Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að fallast á tillögu hlutaðeigandi ráðherra, sbr. umsögn Samkeppniseftirlitsins, um að eftirtaldir lögaðilar skuli ekki falla undir gildissvið laganna, og skal undanþága hvors þeirra endurskoðuð eigi síðar en 1. júlí 2022:
- Landsbankinn hf.
- Landsvirkjun sf.
2. gr.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og öðlast þegar gildi.
Forsætisráðuneytinu, 1. júlí 2019.
Katrín Jakobsdóttir.
Ragnhildur Arnljótsdóttir.
|