Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 444/2018

Nr. 444/2018 17. apríl 2018

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands.

1. gr.

Í stað orðanna „félags- og mannvísindadeildar“ í fyrirsögn 1. gr. reglnanna kemur: félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideildar.

2. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fenginni tillögu félags­vísinda­sviðs, eru settar samkvæmt heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast gildi 1. júlí 2018.

Háskóla Íslands, 17. apríl 2018.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 4. maí 2018