Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1334/2022

Nr. 1334/2022 1. desember 2022

AUGLÝSING
um veiðigjald 2023.

 

Veiðigjald á landaðan afla frá og með 1. janúar til 31. desember 2023 nemur í krónum á hvert kílógramm óslægðs afla þeim fjárhæðum sem hér segir:

  Tegund kr./kg
  Djúpkarfi 5,45
  Gulllax / stóri gulllax 2,18
  Grálúða / svarta spraka 31,82
  Hlýri 11,32
  Humar / leturhumar 80,33
  Karfi/gullkarfi 9,41
  Keila 3,02
  Kolmunni 2,49
  Langa 9,02
  Langlúra 18,60
  Loðna 5,54
  Makríll 3,48
  Rækja/djúprækja 10,49
  Síld 3,34
  Skarkoli 32,74
  Skötuselur 31,30
  Sólkoli/þykkvalúra 36,15
  Steinbítur 14,95
  Ufsi 7,61
  Ýsa 19,82
  Þorskur 19,17

 

Veiðigjald fyrir hvern hval er sem hér segir: i) langreyður 65.035 kr., ii) hrefna 10.406 kr. Veiðigjald á sjávargróður er sem hér segir: 650 kr. á hvert landað tonn klóþangs, hrossaþara og stórþara (blautvigt).

Auglýsing þessi, sem sett er að fenginni tillögu embættis ríkisskattstjóra skv. 4. gr. laga um veiðigjald nr. 145/2018, sbr. einnig 8. gr. sömu laga, öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Matvælaráðuneytinu, 1. desember 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

 

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 2. desember 2022