Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 900/2017

Nr. 900/2017 12. október 2017

REGLUGERÐ
um tilkynningu atvika í almenningsflugi sem og greiningu á og eftirfylgni með þeim.

1. gr.

Markmið.

1. Markmiðið með reglugerð þessari er að bæta öryggi í flugi með því að tryggja tilkynningu, söfnun, geymslu, verndun, skipti á, miðlun og greiningu viðeigandi öryggisupplýsinga um almenn­ings­flug.

Þessi reglugerð tryggir:

  a) að gripið sé tímanlega til öryggisaðgerða, eftir því sem við á, á grundvelli greiningar á upplýsingum sem hefur verið safnað,
  b) að aðgengi að öryggisupplýsingum sé viðhaldið með því að innleiða reglur um trún­aðar­kvöð og viðeigandi notkun upplýsinga og með samræmdri og aukinni vernd fyrir tilkynnendur og einstaklinga, sem tilgreindir eru í tilkynningum um atvik, og
  c) að áhætta í tengslum við flugöryggi sé tekin til athugunar og að brugðist sé við henni á Evrópska efnahagssvæðinu og á landsvísu.

2. Meginmarkmiðið með því að tilkynna atvik er að koma í veg fyrir slys og flugatvik, ekki að skipta sök eða ábyrgð.

2. gr.

Efni og gildissvið.

1. Í þessari reglugerð er mælt fyrir um reglur:

  a) um tilkynningu atvika, sem stofna eða, ef ekki er gripið til aðgerða eða gerðar úrbætur, gætu stofnað í hættu loftfari, farþegum þess eða öðrum einstaklingum, tækjabúnaði eða upp­settum búnaði, sem hefur áhrif á starfrækslu loftfars, og tilkynning annarra viðeigandi öryggis­tengdra upplýsinga í þessu samhengi,
  b) um greiningu og framhaldsaðgerðir að því er varðar tilkynnt atvik og aðrar öryggistengdar upplýsingar,
  c) um vernd fagfólks í flugi,
  d) um viðeigandi notkun öryggisupplýsinga sem hefur verið safnað,
  e) um skráningu upplýsinga í miðlæga, evrópska gagnasafnið og
  f) um nafnleynd við miðlun upplýsinga til hagsmunaaðila í þeim tilgangi að láta slíkum aðilum í té upplýsingarnar, sem þeir þurfa á að halda, til að auka flugöryggi.

2. Þessi reglugerð gildir um atvik og aðrar öryggistengdar upplýsingar þar sem almenningsloftför eiga í hlut.

3. Reglugerð þessi gildir einnig fyrir loftför sem um getur í II. viðauka við reglugerð (EB) nr. 216/2008.

3. gr.

Lögbært stjórnvald.

Samgöngustofa er lögbært stjórnvald samkvæmt reglugerð þessari og skulu atvik í almenningsflugi tilkynnt Samgöngustofu í samræmi við ákvæði reglugerðar þessarar.

4. gr.

Refsiákvæði.

Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða refsingu samkvæmt 141. gr. laga nr. 60/1998, um loftferðir, með síðari breytingum.

5. gr.

Innleiðing EES-gerða.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi EES-gerðir, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 376/2014 frá 3. apríl 2014 um tilkynningu atvika í almenningsflugi sem og greiningu á og eftirfylgni með þeim, um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 996/2010 og um niðurfellingu tilskipunar Evrópu­þings­ins og ráðsins 2003/42/EB og reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1321/2007 og (EB) nr. 1330/2007, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 275/2015 frá 30. október 2015. Reglu­gerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 376/2014 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 74 frá 10. desember 2015, bls. 491-516.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1018 frá 29. júní 2015 um skrá þar sem flokkuð eru atvik í almenningsflugi sem falla undir tilkynningarskyldu samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 376/2014, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 276/2015 frá 30. október 2015. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1018 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74 frá 10. desember 2015, bls. 517-533.

6. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 47. gr. og 47. gr. a, sbr. 145. gr. laga nr. 60/1998, um loft­ferðir, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 53/2006 um tilkynningarskyldu flugslysa, alvarlegra flugatvika og atvika, með síðari breytingum.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 12. október 2017.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Björn Freyr Björnsson.


B deild - Útgáfud.: 26. október 2017