Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1252/2022

Nr. 1252/2022 17. nóvember 2022

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 666/2001, um öryggi farþegaskipa í innanlandssiglingum, með síðari breytingum.

1. gr.

I. viðauki reglugerðarinnar, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71, 11. nóvember 2021, bls. 302 og öðlaðist gildi með reglugerð nr. 1348/2021, breytist í samræmi við framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1180 frá 11. janúar 2022 um leið­réttingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/45/EB um öryggisreglur og staðla fyrir farþega­skip sem birt var í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, 3. nóvember 2022, bls. 338.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 40. gr. og 41. gr. skipalaga, nr. 66/2021 og öðlast þegar gildi. Reglugerðin er sett til innleiðingar á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1180 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/45/EB um öryggisreglur og staðla fyrir farþegaskip. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 261/2022, frá 23. september 2022.

 

Innviðaráðuneytinu, 17. nóvember 2022.

 

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Eggert Ólafsson.


B deild - Útgáfud.: 21. nóvember 2022