Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 442/2023

Nr. 442/2023 24. apríl 2023

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um peningamarkaðssjóði.

1. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópu­sambands­ins, sbr. 3. gr. laga nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið og bókun 1 við EES-samn­inginn:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/990 um breytingu á og við­bætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1131 að því er varðar einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun (STS-verðbréfun) og eignatryggð skammtímabréf, kröfur um eignir sem mótteknar eru sem hluti af endurhverfri verðbréfasölu og aðferðafræði við lánshæfismat. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 37 frá 27. maí 2021, bls. 68-75.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1383 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2018/990 að því er varðar kröfur fyrir eignir sem peningamarkaðssjóðir taka við sem hluta af endurhverfri verðbréfasölu. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi ESB nr. 30 frá 20. apríl 2023, bls. 1-2.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 22/2020 frá 7. febrúar 2020 um upptöku reglu­gerðar skv. a-lið 1. mgr. í IX. viðauka (frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 13 frá 16. febrúar 2023, bls. 46.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 150/2022 frá 29. apríl 2022 um upptöku reglu­gerðar skv. b-lið 1. mgr. í IX. viðauka (frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 61 frá 22. september 2022, bls. 109.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 15. gr. laga nr. 6/2023, um peningamarkaðssjóði, öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 24. apríl 2023.

 

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Elísabet Júlíusdóttir.


B deild - Útgáfud.: 9. maí 2023