Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 580/2021

Nr. 580/2021 18. maí 2021

REGLUGERÐ
um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 26. októ­ber 2007, öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 frá 24. mars 2021 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/634 frá 15. apríl 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar umbreytingar­fyrirkomu­lag, færslurnar fyrir Breska konungsríkið og hjálendur krúnunnar Guernsey, Mön og Jersey og skrána yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn mjólkurafurðir, sem gerð er krafa um að fái sérstaka meðhöndlun til að draga úr áhættu vegna gin- og klaufa­veiki, til Sambands­ins.

 

2. gr.

Ofangreindar framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar eru birtar sem fylgiskjal 1 og 2 við reglugerð þessa.

 

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 54/1990, um innflutning dýra, lög nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lög nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lög nr. 60/2006, um varnir gegn fisk­sjúkdómum og lög nr. nr. 71/2008, um fiskeldi. Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitar­félaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 66/1998, um dýra­lækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. nr. 71/2008, um fiskeldi, öll með síðari breytingum.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 18. maí 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 21. maí 2021