Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 71/2021

Nr. 71/2021 15. janúar 2021

GJALDSKRÁ
Bláskógaveitu (hitaveitu), Bláskógabyggð.

1. gr.

Gjaldskrá þessi gildir fyrir orkuveitusvæði Bláskógaveitu og eru fjárhæðir í gjaldskránni án virðisaukaskatts.

 

2. gr.

Afnotagjöld af heita vatninu eru sem segir:

 

Daggjald/mælagjald/hemlagjald
Stærð mælis/hemils DN 15 mm 41,45 kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 20 mm 42,52 kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 25 mm 64,40 kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 32 mm 66,78 kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 40 mm 110,34 kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 50 mm 166,29 kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 65 mm 204,05 kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 80 mm 238,04 kr./dag
     
Heitt vatn um rennslismæli, Biskupstungum
H1A. Almenn notkun, íbúðarhús/sumarhús 117,95 kr./m³
H3A. Garðyrkja/Hitaveitan Brúin 29,06 kr./m³
V4A. Verslun, iðnaður og opinberar byggingar 88,47 kr./m³
     
Heitt vatn um hemil, Biskupstungum.
L1. Garðyrkja 12,69 kr./mínútulítra á dag
L2. Íbúðarhús/sumarhús 104,44 kr./mínútulítra á dag
L3. Verslun, iðnaður og opinberar byggingar 43,94 kr./mínútulítra á dag
H1D. Hemlagjald 89,41 kr./mínútulítra á dag
     
Heitt vatn um rennslismæli, Laugardal.
H1L. Almenn notkun, íbúðarhús/sumarhús 117,95 kr./m³
H3L. Garðyrkja 29,06 kr./m³
V4L. Verslun, iðnaður og opinberar byggingar 88,47 kr./m³
     
Heitt vatn um hemil, Laugardal.
H2. Íbúðarhús/sumarhús 104,44 kr./mínútulítra á dag
H4. Mýrarhúsaskógur 104,44 kr./mínútulítra á dag
       

 

3. gr.

Tengigjöld Bláskógaveitu eru sem hér segir:

Íbúðarhús að 450 m³ 390.814 kr. m³, umfram m³ 293 kr.
Opinberar byggingar og iðnaðarhús að 450 m³ 390.814 kr. m³, umfram m³ 84 kr.
Gróðurhús og stórnotendur 6.599 kr. mínútulítrinn lágmark 61 m/l
Sumarhús 662.416 kr. fast gjald

 

4. gr.

Tengigjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við byggingarvísitölu. Grunnvísitala (grunnur 2010) nóvembermánaðar 2020, 148,4 stig. Bláskógaveitu er heimilt að breyta tengigjöldum í samræmi við breytingu á nefndri vísitölu.

 

5. gr.

Lágmarksnotkun fyrir sumarhús er 642 rúmmetrar á ári og ávallt skal greiða fyrir þá notkun samkvæmt gjaldskrá. Fari ársnotkun sumarhúss fram yfir 642 rúmmetra á ári, skal greiða fyrir hvern umframrúmmetra skv. gjaldskrá ásamt lágmarksnotkunargjaldi. Fastagjald greiðist óháð notkun.

 

6. gr.

Lágmarksstilling á hemli verður 3 l/m.

 

7. gr.

Bláskógaveita hefur rétt til að loka fyrir afhendingu á heitu vatni til húsveitu viðskiptamanns sem vanrækt hefur að greiða hitaveitugjöld skv. gjaldskrá þessari. Allan kostnað af lokun og opnun á ný greiðir sá sem vanskilunum veldur, hverju sinni 15.500 kr.

 

8. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt var af framkvæmda- og veitustjórn Bláskógaveitu þann 11. nóvember 2020 og staðfest af sveitarstjórn Bláskógabyggðar þann 7. janúar 2021, er hér með stað­fest samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 151/2020.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. janúar 2021.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 29. janúar 2021