Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Leiðréttingar:

Leiðrétt 25. janúar 2017:
HTML-texti: Í stað „Jafréttissjóði“ í heiti reglnanna komi: Jafnréttissjóði.


Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 965/2016

Nr. 965/2016 28. október 2016

REGLUR
um úthlutun styrkja úr Jafréttissjóði Íslands.

1. gr.

Tilgangur.

Starfræktur er sérstakur sjóður, Jafnréttissjóður Íslands, sem nýtur framlaga af fjárlögum í fimm ár, 2016–2020. Tilgangur sjóðsins er að fjármagna eða styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu.

2. gr.

Stjórn og skipulag.

Alþingi kýs fimm manna stjórn sjóðsins og jafn marga til vara til fimm ára samkvæmt þingsályktun um Jafnréttissjóð Íslands.

Stjórn sjóðsins skiptir með sér verkum og setur sér starfsreglur.

Velferðarráðuneytið sér um umsýslu og vörslu sjóðsins og aðstoð að öðru leyti.

Stjórn Jafnréttissjóðs Íslands gerir tillögur til félags- og húsnæðismálaráðherra um veitingu styrkja hverju sinni. 

3. gr.

Fjármunir og greiðsluáætlun.

Ríkissjóður leggur sjóðnum til 100 milljónir króna fyrir hvert starfsár samkvæmt sérstökum lið á fjárlögum. Sjóðstjórn semur greiðsluáætlun fyrir sjóðinn ár hvert þar sem gerð er grein fyrir kostn­aði við umsýslu hans, fjölda styrkveitinga og fjárhæð þeirra. Kostnaður vegna starfsemi sjóðs­ins er greiddur úr honum.

4. gr.

Styrkveitingar.

Styrkir Jafnréttissjóðs Íslands eru veittir einu sinni á ári og skal úthlutun fara fram 19. júní ár hvert. Sjóðstjórn ákveður fjölda styrkja og skulu þeir að jafnaði vera á bilinu 10–25 ár hvert. Að meginstefnu til skulu styrkirnir veittir til verkefna og rannsókna á þeim sviðum sem tilgreind eru í þingsályktun um Jafnréttissjóð Íslands, nr. 13/144. 

5. gr.

Auglýsing um styrkveitingar.

Fyrir 1. febrúar ár hvert auglýsir stjórn Jafnréttissjóðs Íslands eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.

Í auglýsingu skal tilgreina þær kröfur sem gerðar eru til umsókna og fyrir hvaða tíma þær skuli berast sjóðnum. Í starfsreglum stjórnar Jafnréttissjóðs er kveðið nánar á um efni auglýsingar. 

6. gr.

Skyldur styrkþega.

Styrkþegar skulu gera grein fyrir framvindu verkefna og ráðstöfun fjár samkvæmt nánari reglum sjóðstjórnar. Verði breyting á framvindu verkefnis eða rannsóknar skulu styrkþegar tilkynna sjóð­stjórn skriflega þar um. Stjórnin tekur afstöðu til þess hvort breyting á framvindu hafi áhrif á styrk­veitingu verkefnis eða rannsóknar. Verði misbrestur á eða önnur skilyrði stjórnar fyrir styrk­veitingu ekki uppfyllt er heimilt að fara fram á endurgreiðslu styrksins. Sé styrks ekki vitjað innan tveggja ára frá dagsetningu tilkynningar fellur hann niður. Niðurstöður verkefna og rannsókna sem hlotið hafa styrk samkvæmt reglum þessum skulu birtar almenningi samkvæmt nánari fyrirmælum sjóðstjórnar.

7. gr.

Meðferð umsókna.

Farið er með allar umsóknir og fylgigögn sem trúnaðarmál. Upplýsingar um verkefni og reikninga skulu undanþegnar trúnaðarskyldu nema trúnaðar sé sérstaklega óskað og sjóðstjórn samþykki. Öllum umsóknum skal svarað skriflega.

8. gr.

Reikningar og endurskoðun.

Reikningsár Jafnréttissjóðs Íslands er almanaksárið. Ríkisendurskoðun endurskoðar reikninga sjóðs­ins.

9. gr.

Gildistaka.

Reglum þessum verður í fyrsta sinn beitt við úthlutun styrkja 19. júní 2017.

Velferðarráðuneytinu, 28. október 2016.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Bolli Þór Bollason.


B deild - Útgáfud.: 15. nóvember 2016