Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 964/2020

Nr. 964/2020 17. september 2020

REGLUR
um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli með viðmiðunardagsetningar frá 30. júní 2020 til 29. september 2020.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátrygg­inga­félaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.

 

2. gr.

Upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla.

Samkvæmt 1. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi skal vátryggingaskuld vera samtala besta mats á skuldbindingum og áhættuálagi. Reglur þessar eru settar til að innleiða framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) þar sem fram koma tæknilegar upp­lýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla samkvæmt 2. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016. 

 

3. gr.

Innleiðing reglugerðar.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1145 frá 31. júlí 2020 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 30. júní 2020 til 29. september 2020 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga.

Með vísan til heimildar 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016 vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) í Stjórnartíðindum Evrópu­sambandsins (e. Official Journal of the European Union), OJ, deild L, nr. 250, þann 3. ágúst 2020, bls. 1-120: https://eur-lex.europa.eu/eli/reg_impl/2020/1145/oj.

 

4. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 1. mgr. 78. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 100/2016. Reglurnar öðlast þegar gildi.

 

Seðlabanka Íslands, 17. september 2020.

 

  Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir,
framkvstjóri skrifstofu bankastjóra.

                                                     

                                                 


B deild - Útgáfud.: 6. október 2020