Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 251/2016

Nr. 251/2016 21. mars 2016

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 192/1993, um innskatt, með síðari breytingum.

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Skattaðili sem fer fram á leiðréttingu innskatts til hækkunar samkvæmt ákvæðum 1. og 2. mgr. 13. gr., sbr. 14. gr., og ákvæði til bráðabirgða II í reglugerð þessari, sbr. reglugerð nr. 1237/2015, skal gera grein fyrir sundurliðun leiðréttingarfjárhæðar á sérstakri skýrslu á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður. Skýrslu þessari skal skila til ríkisskattstjóra eigi síðar en á gjalddaga þess uppgjörstímabils þegar leiðrétting á sér stað.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 16. gr., sbr. 49. gr., laga nr. 50/1988, um virðis­auka­skatt, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 21. mars 2016.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Hlynur Ingason.


B deild - Útgáfud.: 22. mars 2016