Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1226/2019

Nr. 1226/2019 19. desember 2019

AUGLÝSING
um fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu og persónuafslátt árið 2020.

Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármála- og efnahagsráðuneytið árlega fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er saman­lagt hlutfall tekjuskatts sam­kvæmt lögum, nr. 90/2003, um tekjuskatt og meðal­hlutfall útsvars eins og það er sam­kvæmt ákvörð­unum sveitarstjórna, sbr. lög, nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga.

Tekjuskattshlutfall á árinu 2020 verður 20,6% af tekjuskattsstofni að 4.042.995 kr., 22,75% af tekjuskattsstofni frá 4.042.996 kr. að 11.350.472 kr. og 31,8% af tekjuskattsstofni frá 11.350.473 kr. Meðalútsvar á árinu 2020 samkvæmt fyrir­liggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,44%. Innheimtuhlutfall í stað­greiðslu á árinu 2020 verður því 35,04% af tekjuskattsstofni að 4.042.995 kr., 37,19% af tekjuskattsstofni frá 4.042.996 kr. að 11.350.472  kr. og 46,24% af tekju­skatts­stofni frá 11.350.473  kr.

Samkvæmt A-lið 67. gr., sbr. ákvæði til bráðabirgða LXI, laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2020 vera 655.538 krónur, eða 54.628 krónur að meðaltali á mánuði.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 19.  desember 2019.

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.


B deild - Útgáfud.: 23. desember 2019