Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 247/2018

Nr. 247/2018 2. mars 2018

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 928/2013 um inntöku nýnema og inntökupróf í lagadeild Háskóla Íslands.

1. gr.

Í stað orðanna „síðasta próf sem umsækjandi tók“ í lok 2. málsl. 4. mgr. 5. gr. kemur: það próf sem gaf besta niðurstöðu.

2. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum félags­vísinda­sviðs, eru settar samkvæmt heimild í 3. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 9. mgr. 102. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 2. mars 2018.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 5. mars 2018