I. KAFLI
Gildissvið og stjórnsýsla.
1. gr.
Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um viðbótarhúsnæðisstuðning til tekju- og eignaminni Grindvíkinga vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
2. gr.
Markmið.
Markmið reglugerðar þessarar er að stuðla að fjárhagslegu og félagslegu öryggi með því að styðja tímabundið sérstaklega við tekju- og eignaminni Grindvíkinga til að lækka húsnæðiskostnað á meðan leitað er varanlegri lausna á húsnæðisvanda þeirra.
3. gr.
Yfirstjórn.
Forsætisráðherra fer með yfirstjórn viðbótarhúsnæðisstuðnings samkvæmt reglugerð þessari.
4. gr.
Framkvæmdaraðili.
Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ sem starfar samkvæmt lögum nr. 40/2024 annast framkvæmd viðbótarhúsnæðisstuðnings til tekju- og eignaminni Grindvíkinga samkvæmt reglugerð þessari. Þegar teknar eru ákvarðanir um réttindi og skyldur samkvæmt reglugerðinni gilda stjórnsýslulög, nr. 37/1993.
Á þeim sem annast framkvæmd reglugerðarinnar af hálfu stjórnvalda hvílir þagnarskylda skv. X. kafla stjórnsýslulaga.
Kostnaður við framkvæmd reglugerðarinnar greiðist úr ríkissjóði.
5. gr.
Ákvarðanir um viðbótarhúsnæðisstuðning eru endanlegar á stjórnsýslustigi.
Ákvarðanir framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ um framkvæmd reglugerðar þessarar eru endanlegar á stjórnsýslustigi og verður ekki skotið til æðra stjórnvalds.
II. KAFLI
Orðskýringar.
6. gr.
Orðskýringar.
Merking eftirfarandi orða í reglugerð þessari er sem hér segir:
- Heimilismenn: Allir þeir sem búa í hinu leigða húsnæði og eiga þar skráð lögheimili, sbr. þó 2. málsl. 2. mgr. 10. gr.
- Húsnæði: Íbúðarhúsnæði eða annað húsnæði sem leigt er til íbúðar hér á landi utan Grindavíkurbæjar.
- Húsnæðiskostnaður: Sá hluti leigufjárhæðar sem greiddur er fyrir leiguafnot af húsnæði, sbr. 2. mgr. 14. gr.
- Umsækjandi: Heimilismaður sem er aðili að leigusamningi um húsnæðið og sækir um viðbótarhúsnæðisstuðning á grundvelli þess samnings fyrir hönd allra heimilismanna.
- Viðbótarhúsnæðisstuðningur: Mánaðarlegar greiðslur til lækkunar á húsnæðiskostnaði tekju- og efnaminni Grindvíkinga á leigumarkaði vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
III. KAFLI
Umsókn um viðbótarhúsnæðisstuðning og upplýsingaskylda.
7. gr.
Umsókn um viðbótarhúsnæðisstuðning.
Umsækjandi skal sækja um viðbótarhúsnæðisstuðning til framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ.
Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og skulu nauðsynleg gögn fylgja henni. Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ er heimilt að kalla eftir frekari upplýsingum og gögnum sem hún telur þörf á til að staðreyna rétt umsækjanda til viðbótarhúsnæðisstuðnings. Heimilismenn, 18 ára og eldri, skulu undirrita umsóknina til staðfestingar á þeim upplýsingum sem þar koma fram.
Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ skal gefa umsækjanda hæfilegan frest til að veita nauðsynlegar upplýsingar og gögn til þess að unnt sé að taka afstöðu til umsóknar um viðbótarhúsnæðisstuðning. Veiti umsækjandi ekki umbeðnar upplýsingar og gögn innan tilskilins frests, þrátt fyrir leiðbeiningar þess efnis, er framkvæmdanefndinni heimilt að synja umsókninni. Samhliða beiðni um upplýsingar skal umsækjandi upplýstur um afleiðingar þess veiti hann ekki umbeðnar upplýsingar og gögn innan frestsins.
8. gr.
Upplýsingaskylda umsækjanda og annarra heimilismanna.
Umsækjandi skal veita framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ allar þær upplýsingar og gögn þeim til staðfestingar sem óskað er eftir og nauðsynlegar eru til að staðreyna rétt hans til viðbótarhúsnæðisstuðnings.
Umsækjandi og aðrir heimilismenn, 18 ára og eldri, skulu veita skriflegt umboð fyrir því að framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ afli nauðsynlegra upplýsinga og gagna til að afgreiða umsókn um viðbótarhúsnæðisstuðning og framfylgja reglugerð þessari að öðru leyti.
Umsækjandi skal upplýsa framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans eða heimilismanna eða önnur þau atriði sem kunna að hafa áhrif á rétt hans til viðbótarhúsnæðisstuðnings samkvæmt reglugerð þessari á þeim tíma sem hann fær greiddan viðbótarhúsnæðisstuðning.
9. gr.
Heimild til upplýsingaöflunar.
Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ er heimilt að fengnu skriflegu umboði umsækjanda og annarra heimilismanna, 18 ára og eldri, sbr. 2. mgr. 8. gr., að afla upplýsinga frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, skattyfirvöldum, Þjóðskrá Íslands, sveitarfélögum, sýslumönnum, leigusölum hins leigða húsnæðis og stjórnvöldum sem fara með framkvæmd laga um almannavarnir, nr. 82/2008, sem og upplýsinga úr leiguskrá húsnæðisgrunns Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, sem nauðsynlegar eru til að unnt sé að framfylgja reglugerð þessari, sbr. einnig 6. gr. laga um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, nr. 40/2024. Í þessu sambandi skal Húsnæðis- og mannvirkjastofnun upplýsa framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ hafi stofnunin upplýsingar um breytingar á högum heimilismanna miðað við upphaflegar upplýsingar samkvæmt umsókn um húsnæðisbætur.
Þeir aðilar sem tilgreindir eru í 1. mgr. skulu láta framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ í té upplýsingar sem óskað hefur verið eftir en lagaákvæði um þagnarskyldu takmarka ekki skyldu til að veita upplýsingarnar. Upplýsingar og gögn sem framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ óskar eftir og unnt er að láta í té skal veita án endurgjalds og á því formi sem óskað er, sbr. þó 3. mgr. 19. gr. laga um skráningu einstaklinga, nr. 140/2019.
Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ getur aflað upplýsinga skv. 1. mgr. rafrænt eða á annan hátt sem framkvæmdanefndin ákveður. Tryggja skal að upplýsingaöflun og vinnsla persónuupplýsinga gangi ekki lengra en þörf krefur til að unnt sé að framfylgja reglugerð þessari.
Telji umsækjandi eða annar heimilismaður upplýsingar sem framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ aflar frá aðilum sem tilgreindir eru í 1. mgr. rangar skal viðkomandi tilkynna nefndinni um það og leggja fram gögn því til staðfestingar.
IV. KAFLI
Skilyrði viðbótarhúsnæðisstuðnings.
10. gr.
Skilyrði viðbótarhúsnæðisstuðnings.
Viðbótarhúsnæðisstuðningur samkvæmt reglugerð þessari skal veittur að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
- Umsækjandi hafi verið með lögheimili eða tímabundið aðsetur í Grindavíkurbæ 10. nóvember 2023 en verið gert að yfirgefa heimili sitt á grundvelli laga um almannavarnir.
- Samanlagðar árstekjur heimilismanna, 18 ára og eldri, nemi að hámarki eftirfarandi fjárhæðum, sem taka mið af fjölda heimilismanna, óháð aldri:
Fjöldi heimilismanna, óháð aldri |
Hámark samanlagðra árstekna heimilismanna, 18 ára og eldri |
1 |
11.476.421 kr. |
2 |
15.263.648 kr. |
3 |
17.788.461 kr. |
4 |
19.280.391 kr. |
5 |
20.887.094 kr. |
6 eða fleiri |
22.493.788 kr. |
Miða skal við tekjur sem koma til á sama tímabili innan hvers almanaksárs og greiðslur viðbótarhúsnæðisstuðnings standa yfir. Þar sem réttur til viðbótarhúsnæðisstuðnings miðast við hluta úr almanaksári skulu tekjumörk skv. 1. mgr. vera hlutfallsleg miðað við heilt almanaksár þannig að þau miðist við fjölda þeirra mánaða innan almanaksársins sem veita rétt til viðbótarhúsnæðisstuðnings. Með tekjum er í reglugerð þessari átt við allar tekjur skv. II. kafla laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, að teknu tilliti til frádráttar skv. 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 30. gr. og frádráttar skv. 31. gr. sömu laga.
- Samanlagðar eignir allra heimilismanna, 18 ára og eldri, nemi að hámarki 20 millj. kr.
Miða skal við eignir samkvæmt síðasta skattframtali nema umsækjandi sýni fram á breytta eignastöðu við umsókn um greiðslur viðbótarhúsnæðisstuðnings. Með eignum er í reglugerð þessari átt við allar eignir skv. 72. gr. laga um tekjuskatt að frádregnum skuldum skv. 1. mgr. 75. gr. sömu laga, sbr. þó 2. málsl. 2. mgr. þeirra laga.
- Umsækjandi eða annar heimilismaður hafi sótt um húsnæðisbætur samkvæmt lögum um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, fyrir hönd þeirra heimilismanna sem tilgreindir eru í umsókn, skilyrði húsnæðisbóta eru uppfyllt, sbr. þó 2., 3., 5. og 6. mgr., og heimilismenn samkvæmt umsókn um viðbótarhúsnæðisstuðning eru hinir sömu og samkvæmt umsókn um húsnæðisbætur.
- Umsækjandi eða annar heimilismaður hafi sótt um sérstakan húsnæðisstuðning, sbr. 2. mgr. 45. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, fyrir hönd þeirra heimilismanna sem tilgreindir eru í umsókn, í því sveitarfélagi þar sem húsnæðið er, og heimilismenn samkvæmt umsókn um viðbótarhúsnæðisstuðning eru hinir sömu og samkvæmt umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning.
- Umsækjandi og, eftir því sem við á, aðrir heimilismenn sæki félagslega ráðgjöf hjá framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ og skuldbindi sig til að vinna eftir einstaklingsmiðaðri áætlun, nema sérstakar aðstæður réttlæti, sbr. 11. gr.
- Fyrir liggi umboð umsækjanda og annarra heimilismanna, 18 ára og eldri, til upplýsingaöflunar, sbr. 2. mgr. 8. gr.
Þrátt fyrir skilyrði c-liðar 1. mgr. er heimilt að veita viðbótarhúsnæðisstuðning nemi samanlagðar eignir allra heimilismanna, 18 ára og eldri, allt að 50 millj. kr. en tekjur viðkomandi standa ekki undir greiðslubyrði af fasteignaláni til íbúðarkaupa.
Þrátt fyrir skilyrði d-liðar 1. mgr. er heimilt að veita viðbótarhúsnæðisstuðning þótt ekki séu uppfyllt skilyrði húsnæðisbóta um íbúðarhúsnæði, sbr. 1. mgr., c- og d-lið 2. mgr., b- og/eða c-lið 3. mgr. 9. gr. laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, og/eða skilyrði d-liðar 2. mgr. 9. gr. sömu laga um lengd leigusamnings, enda sé umsækjandi aðili að leigusamningi um húsnæðið sem hafi verið skráður í leiguskrá húsnæðisgrunns Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Hið sama gildir sé skilyrði a-liðar 2. mgr. 9. gr. laga um húsnæðisbætur, um að heimilismenn eigi skráð lögheimili í húsnæðinu, ekki uppfyllt þegar slík skráning er ekki heimil skv. 3. mgr. 2. gr. laga um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018, þar sem húsnæðið er ekki skráð sem íbúðarhúsnæði í fasteignaskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Einnig er heimilt að veita viðbótarhúsnæðisstuðning þótt ekki sé uppfyllt skilyrði d-liðar 3. mgr. 9. gr. laga um húsnæðisbætur um að enginn heimilismanna njóti réttar til vaxtabóta, enda sé hann vegna fasteignar í Grindavíkurbæ.
Viðbótarhúsnæðisstuðningur samkvæmt reglugerð þessari verður ekki veittur:
- teljist umsækjandi eða aðrir þeir sem umsækjandi tilgreinir sem heimilismenn í umsókn þegar til heimilismanna samkvæmt samþykktri umsókn um viðbótarhúsnæðisstuðning, sbr. þó 5. og 6. mgr.,
- þegar viðbótarhúsnæðisstuðningur er þegar greiddur vegna sama húsnæðis.
Þrátt fyrir skilyrði a- og d-liðar 1. mgr. skal barn yngra en 18 ára sem hefur tímabundið aðsetur hjá fósturforeldrum vegna tímabundins fósturs samkvæmt barnaverndarlögum teljast til heimilismanna á heimili foreldra eða forsjáraðila þess. Hið sama á við þegar barn yngra en 18 ára hefur tímabundið aðsetur á heimavist eða námsgörðum enda eigi barnið skráð lögheimili hjá foreldri eða forsjáraðila, sbr. þó 5. mgr.
Búi foreldrar eða forsjáraðilar barns ekki saman skal barnið þrátt fyrir skilyrði d-liðar 1. mgr. teljast búsett á lögheimili sínu sem og í húsnæði þess foreldris eða forsjáraðila sem það á ekki lögheimili hjá enda dvelji barnið hjá foreldrinu eða forsjáraðilanum í að lágmarki 30 daga á ári samkvæmt samningi um umgengni sem sýslumaður hefur staðfest, sbr. 6. mgr. 46. gr. barnalaga, nr. 76/2003, úrskurði sýslumanns um umgengni skv. 47. gr. eða 47. gr. a sömu laga, dómi eða dómsátt. Telst barnið þá sem heimilismaður hjá báðum foreldrum sínum eða forsjáraðilum til 18 ára aldurs.
Viðbótarhúsnæðisstuðningur fellur niður frá og með næstu mánaðamótum eftir að umsækjanda býðst varanlegri lausn á húsnæðisvanda sínum að mati framkvæmdanefndarinnar. Standi umsækjanda ekki til boða að nýta sér viðkomandi úrræði strax er framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ þó heimilt að framlengja viðbótarhúsnæðisstuðninginn tímabundið, svo sem fram að afhendingu hagkvæmara húsnæðis.
11. gr.
Einstaklingsmiðuð félagsleg ráðgjöf.
Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ skal veita umsækjanda og, eftir því sem við á, öðrum heimilismönnum einstaklingsmiðaða félagslega ráðgjöf á meðan viðbótarhúsnæðisstuðnings nýtur við og kemur hún í stað félagslegrar ráðgjafar félagsþjónustu sveitarfélaga skv. V. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Markmið ráðgjafarinnar er að veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál og viðeigandi stuðning að öðru leyti í því skyni að stuðla að fjárhagslegu og félagslegu öryggi viðkomandi og velferð. Sérstaklega skal greina ástæður húsnæðisvanda viðkomandi og leita varanlegri lausna þar á, ásamt því að tengja viðkomandi við félagsleg úrræði í sínu sveitarfélagi, eftir því sem við á.
Skal framkvæmdanefndin vinna einstaklingsmiðaða áætlun í samstarfi við viðkomandi á grundvelli heildstæðrar ráðgjafar á eftirfarandi sviðum:
- fjármálaráðgjöf,
- aðstoð við leit að viðeigandi húsnæði eða öðrum varanlegri lausnum á húsnæðisvanda viðkomandi,
- atvinnu- og virkniráðgjöf,
- sálfélagslegur stuðningur við úrvinnslu áfalla,
- önnur félagsleg ráðgjöf sem almennt er veitt skv. 17. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Umsækjanda, og eftir atvikum öðrum heimilismönnum, er skylt að sækja fundi um félagslega ráðgjöf og eftirfylgni með einstaklingsmiðaðri áætlun viðkomandi. Sæki viðkomandi ekki slíka fundi skal framkvæmdanefndin fresta greiðslum viðbótarhúsnæðisstuðnings þar til úr hefur verið bætt, nema forföll séu réttlætanleg að mati nefndarinnar. Hið sama gildir sýni viðkomandi ekki fram á að unnið sé eftir áætluninni, nema sérstakar aðstæður réttlæti að mati nefndarinnar.
Réttur til viðbótarhúsnæðisstuðnings fellur niður hafi umsækjandi, eða eftir atvikum aðrir heimilismenn, ekki sótt fundi og/eða sýnt fram á að viðkomandi vinni eftir áætlun sinni í 60 daga nema sérstakar aðstæður réttlæti að mati nefndarinnar.
V. KAFLI
Útreikningur viðbótarhúsnæðisstuðnings.
12. gr.
Mánaðarlegar greiðslur viðbótarhúsnæðisstuðnings.
Viðbótarhúsnæðisstuðningur samkvæmt reglugerð þessari er mánaðarleg greiðsla sem greiðist til umsækjanda, sbr. 4. tölul. 6. gr., og skal ákvarðaður og reiknaður miðað við fjölda heimilismanna, óháð aldri, sbr. 1. tölul. 6. gr. Grunnfjárhæð viðbótarhúsnæðisstuðnings miðast við fjárhæð sértæks húsnæðisstuðnings eftir fjölda heimilismanna skv. 1. mgr. 13. gr. laga um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ, nr. 94/2023. Húsnæðisbætur samkvæmt lögum um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, sérstakur húsnæðisstuðningur samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, og hámarkshlutdeild ríkisins í húsnæðiskostnaði, sbr. 14. gr., koma til lækkunar á grunnfjárhæðum viðbótarhúsnæðisstuðnings.
13. gr.
Fjárhæð viðbótarhúsnæðisstuðnings.
Grunnfjárhæð viðbótarhúsnæðisstuðnings tekur mið af fjölda heimilismanna, óháð aldri, og er sem hér segir:
Fjöldi heimilismanna, óháð aldri |
Grunnfjárhæð viðbótarhúsnæðisstuðnings |
1 |
180.000 kr. |
2 |
237.600 kr. |
3 |
279.000 kr. |
4 |
302.400 kr. |
5 |
326.592 kr. |
6 eða fleiri |
352.800 kr. |
Frá grunnfjárhæð viðbótarhúsnæðisstuðnings skv. 1. mgr. skal draga fjárhæð húsnæðisbóta sem heimilismenn eiga rétt til samkvæmt lögum um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, og fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings sem heimilismenn eiga rétt til samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, eigi heimilismenn rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi og/eða húsnæðisbótum.
Hefjist leigutími síðar en fyrsta dag mánaðar eða ljúki fyrir síðasta dag mánaðar skal réttur til viðbótarhúsnæðisstuðnings vegna þess mánaðar vera hlutfallslegur miðað við heilan mánuð þannig að hann miðist við fjölda daga í mánuðinum sem falla innan leigutíma sem hlutfall af heildarfjölda daga í mánuðinum.
Breytingar á forsendum viðbótarhúsnæðisstuðnings skulu hafa áhrif á rétt til viðbótarhúsnæðisstuðnings frá og með næstu mánaðamótum á eftir. Framkvæmdanefndin skal byggja útreikning á rétti til viðbótarhúsnæðisstuðnings á nýjustu upplýsingum á hverjum tíma, sbr. 8. og 9. gr.
14. gr.
Áhrif húsnæðiskostnaðar á fjárhæð viðbótarhúsnæðisstuðnings.
Viðbótarhúsnæðisstuðningur samkvæmt reglugerð þessari getur aldrei numið hærri fjárhæð en jafngildir 90% af húsnæðiskostnaði vegna viðkomandi húsnæðis.
Með húsnæðiskostnaði í reglugerð þessari er átt við þann hluta leigufjárhæðar sem greiddur er fyrir leiguafnot af húsnæði. Aðrar greiðslur og kostnaðarþættir sem leigjanda ber að greiða samkvæmt samningi eða lögum, svo sem fyrir hita, vatn, rafmagn, hússjóð, viðhald o.fl., teljast ekki til húsnæðiskostnaðar í skilningi reglugerðar þessarar.
VI. KAFLI
Greiðsla viðbótarhúsnæðisstuðnings.
15. gr.
Greiðsla viðbótarhúsnæðisstuðnings.
Viðbótarhúsnæðisstuðningur greiðist umsækjanda fyrsta dag hvers almanaksmánaðar og er greiddur eftir á fyrir leigutíma undanfarandi almanaksmánaðar eða hluta úr almanaksmánuði, hefjist leigutími síðar en fyrsta dag almanaksmánaðar eða ljúki fyrir síðasta dag almanaksmánaðar. Samningar aðila um fyrirframgreiðslu húsnæðiskostnaðar breyta engu hér um.
Viðbótarhúsnæðisstuðningur kemur til greiðslu í fyrsta skipti fyrsta dag næsta almanaksmánaðar eftir að réttur til stuðnings hefur verið staðreyndur. Viðbótarhúsnæðisstuðningur skal þó reiknast frá og með þeim almanaksmánuði þegar framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ móttekur umsókn um viðbótarhúsnæðisstuðning vegna leigutíma þess almanaksmánaðar eða hluta úr almanaksmánuði, hafi leigutími hafist síðar en fyrsta dag almanaksmánaðar. Óheimilt er að greiða viðbótarhúsnæðisstuðning lengra aftur í tímann. Þrátt fyrir 1. og 2. málsl. verður viðbótarhúsnæðisstuðningur aðeins greiddur vegna almanaksmánaðar eða hluta úr almanaksmánuði þegar leigutími er hafinn og kemur til greiðslu fyrsta dag næsta almanaksmánaðar á eftir.
Viðbótarhúsnæðisstuðningur skal falla niður frá og með næstu mánaðamótum eftir að skilyrði reglugerðar þessarar eru ekki lengur uppfyllt, sbr. þó 4. mgr. 16. gr. Viðbótarhúsnæðisstuðningur skal þó falla niður frá og með þeim degi þegar leigusamningur fellur úr gildi.
Heimilt er að greiða viðbótarhúsnæðisstuðning samkvæmt reglugerð þessari vegna húsnæðiskostnaðar sem fellur til vegna leigu húsnæðis á tímabilinu 1. apríl 2025 til og með 30. nóvember 2025.
16. gr.
Heimilismaður verður 18 ára.
Verði heimilismaður 18 ára á því tímabili þegar greiddur er viðbótarhúsnæðisstuðningur skal framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ afla umboðs hans fyrir öflun nauðsynlegra upplýsinga og gagna skv. 9. gr. þegar hann verður 18 ára.
Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ er heimilt að fresta greiðslum viðbótarhúsnæðisstuðnings tímabundið í allt að 60 daga frá og með fyrsta degi annars almanaksmánaðar eftir að heimilismaður varð 18 ára þar til umboð hans skv. 1. mgr. liggur fyrir. Framkvæmdanefndin skal tilkynna umsækjanda að lágmarki 30 dögum áður en heimilismaður verður 18 ára að fyrirhugað sé að halda eftir greiðslum berist ekki umboð heimilismanns skv. 1. mgr.
Þegar umboð skv. 1. mgr. liggur fyrir skal framkvæmdanefndin endurmeta rétt til viðbótarhúsnæðisstuðnings á grundvelli nýrra upplýsinga um tekjur og eignir allra heimilismanna, 18 ára og eldri, sbr. 1. mgr. 19. gr.
Berist framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ ekki umboð heimilismanns skv. 1. mgr. innan þeirra tímamarka sem gilda um frestun greiðslna skv. 2. mgr. skal réttur umsækjanda til viðbótarhúsnæðisstuðnings falla niður.
VII. KAFLI
Eftirlit og endurreikningur viðbótarhúsnæðisstuðnings.
17. gr.
Eftirlit.
Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ skal reglulega sannreyna þær upplýsingar sem ákvörðun um rétt til viðbótarhúsnæðisstuðnings byggist á.
18. gr.
Frestun greiðslna.
Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ er heimilt að halda eftir greiðslu viðbótarhúsnæðisstuðnings sem umsækjanda hefur áður verið ákvörðuð í allt að 60 daga frá því að greiðsluna átti að inna af hendi þegar framkvæmdanefndin hefur rökstuddan grun um að umsækjandi eða annar heimilismaður uppfylli ekki lengur skilyrði reglugerðar þessarar, hafi fengið ofgreiddan viðbótarhúsnæðisstuðning eða hafi ekki sinnt upplýsingaskyldu skv. 8. gr. Þegar slíkur grunur vaknar skal framkvæmdanefndin án ástæðulauss dráttar og minnst fimm virkum dögum fyrir næsta greiðsludag viðbótarhúsnæðisstuðnings skv. 1. mgr. 15. gr. tilkynna umsækjanda að fyrirhugað sé að halda eftir greiðslu.
Komist framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ að því að umsækjandi hafi átt rétt á þeirri greiðslu, að hluta eða öllu leyti, sem haldið var eftir skv. 1. mgr. ber framkvæmdanefndinni að greiða þá fjárhæð í síðasta lagi næsta greiðsludag skv. 1. mgr. 15. gr. ásamt vöxtum fyrir það tímabil sem féð var í vörslu nefndarinnar. Skulu vextirnir vera jafnháir vöxtum skv. 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001.
Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. fer skv. 16. gr. um meðferð máls þegar heimilismaður verður 18 ára á því tímabili þegar greiddur er viðbótarhúsnæðisstuðningur.
19. gr.
Endurreikningur og leiðrétting á viðbótarhúsnæðisstuðningi.
Rétt til viðbótarhúsnæðisstuðnings má endurskoða hvenær sem er og endurreikna fjárhæð stuðningsins þannig að hann sé í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna. Leiði endurreikningur til breytinga á fjárhæð viðbótarhúsnæðisstuðnings skal leiðrétta fjárhæðina.
Hafi umsækjandi fengið hærri viðbótarhúsnæðisstuðning en honum bar á umræddu tímabili skal framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ draga ofgreiddan viðbótarhúsnæðisstuðning frá síðar tilkomnum viðbótarhúsnæðisstuðningi sama aðila. Að jafnaði skal miðað við að ekki sé dregin frá hærri fjárhæð en sem nemur 25% af viðbótarhúsnæðisstuðningi í hverjum mánuði.
Hafi umsækjandi ekki fengið viðbótarhúsnæðisstuðning sem honum bar eða fengið lægri viðbótarhúsnæðisstuðning en honum bar skal framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ greiða umsækjanda þá fjárhæð sem vangreidd var ásamt vöxtum fyrir það tímabil sem féð var í vörslu framkvæmdanefndarinnar. Skulu vextirnir vera jafnháir vöxtum skv. 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001. Hafi viðbótarhúsnæðisstuðningur verið vangreiddur vegna skorts á upplýsingum frá umsækjanda falla vextir niður.
Ofgreiddur viðbótarhúsnæðisstuðningur sem endurgreiddur er samkvæmt reglugerð þessari skal renna í ríkissjóð.
20. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 9. gr., sbr. einnig 2. mgr. 3. gr., laga um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, nr. 40/2024, öðlast þegar gildi og skal gilda til 31. desember 2025.
Forsætisráðuneytinu, 10. apríl 2025.
Kristrún Frostadóttir.
|