Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 416/2018

Nr. 416/2018 27. apríl 2018

REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 270/2018, um hrognkelsaveiðar árið 2018.

1. gr.

3. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Veiðisvæði og veiðitímabil.

Grásleppuveiðileyfi hvers báts skal gefið út til 44 samfelldra daga og skal bundið við ákveðið veiði­svæði og veiðitímabil eins og hér greinir:

  1. Faxaflói, frá línu réttvísandi vestur frá Garðskagavita 64°04,90 N 022°41,40 V að línu rétt­vísandi vestur frá Dritvíkurtanga (-flögum) 64°45,00 N 023°55,30 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 1. apríl til og með 24. júní.
  2. Breiðafjörður, svæði 1 frá línu réttvísandi vestur frá Dritvíkurtanga (-flögum) 64°45,00 N 023°55,30 V að línu réttvísandi vestur frá Bjargtöngum 65°30,20 N 024°32,10 V. Innan veiði­tímabilsins frá og með 1. apríl til og með 24. júní. Breiðafjörður, svæði 2 innan línu sem dregin er úr Krossnesvita vestan Grundarfjarðar 64°58,30 N 023°21,40 V í Lambanes vestan Vatns­fjarðar 65°29,30 N 023°12,60 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 20. maí til og með 12. ágúst.
  3. Vestfirðir, frá línu réttvísandi vestur frá Bjargtöngum 65°30,20 N 024°32,10 V að línu rétt­vís­andi norður frá Horni (grunnpunktur 1) 66°27,40 N 022°24,30 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 1. apríl til og með 24. júní.
  4. Húnaflói, frá línu réttvísandi norður frá Horni (grunnpunktur 1) 66°27,40 N 022°24,30 V að línu réttvísandi norður frá Skagatá 66°07,20 N 020°05,90 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 20. mars til og með 12. júní.
  5. Norðurland, frá línu réttvísandi norður frá Skagatá 66°07,20 N 020°05,90 V að línu réttvísandi austur frá Fonti á Langanesi (grunnpunktur 9) 66°22,70 N 014°31,90 V. Innan veiði­tímabilsins frá og með 20. mars til og með 12. júní.
  6. Austurland, frá línu réttvísandi austur frá Fonti á Langanesi (grunnpunktur 9) 66°22,70 N 014°31,90 V að línu réttvísandi austur frá Hvítingum (grunnpunktur 18) 64°23,90 N 014°28,00 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 20. mars til og með 12. júní.
  7. Suðurland, frá línu réttvísandi austur frá Hvítingum (grunnpunktur 18) 64°23,90 N 014°28,00 V að línu réttvísandi vestur frá Garðskagavita 64°04,90 N 022°41,40 V. Innan veiðitímabilsins frá og með 20. mars til og með 12. júní.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. apríl 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 30. apríl 2018