Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1595/2023

Nr. 1595/2023 12. desember 2023

GJALDSKRÁ
fyrir hundahald í Dalvíkurbyggð.

1. gr.

Við skráningu hunda skal greiða skráningargjald kr. 3.709.

 

2. gr.

Árlega skal greiða eftirlitsgjald vegna hunda kr. 11.411. Gjaldið á að standa undir kostnaði vegna ormahreinsunar og eftirlits. Ef framvísað er staðfestingu á að ormahreinsun hafi verið fram­kvæmd lækkar eftirlitsgjaldið um 50%.

 

3. gr.

Af hundum sem handsamaðir eru og fluttir í gæludýrageymslu Dalvíkurbyggðar samkvæmt 14. gr. samþykktar um hundahald í Dalvíkurbyggð nr. 1234/2020 skal eigandi greiða handsömunar-, fóður‑ og vist­unar­gjald áður en honum er afhentur hundurinn á ný. Ef hundur er ekki örmerktur samkvæmt 9. gr. sömu samþykktar ber einnig að greiða þann kostnað gegn beiðni til dýralækna sem framkvæma slíkt.

 

4. gr.

Við afhendingu handsamaðs hunds ber að innheimta kr. 7.130 vegna handsömunar og gjald fyrir fóður og vistun samkvæmt kostnaði. Gjald fyrir örmerkingu hunda fer eftir gjaldskrá viðkom­andi dýralæknis hverju sinni.

 

5. gr.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í 5. mgr. 25. gr.laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng­unarvarnir og samþykkt um hunda­hald í Dalvíkurbyggð nr. 1234/2020 og öðlast gildi við birtingu.

 

6. gr.

Gjaldskráin uppfærðist haustið 2023 um 4,9% samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar. Samþykkt í umhverfis- og dreifbýlisráði Dalvíkurbyggðar 20. október 2023 og í sveitarstjórn Dalvíkur­byggðar. 28. nóvember 2023.

Gjaldskrá þessi öðlast gildi 1. janúar 2024 og fellur þá gjaldskrá sama efnis nr. 470/2023 úr gildi.

 

Dalvíkurbyggð, 12. desember 2023.

 

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2023