Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1552/2021

Nr. 1552/2021 21. desember 2021

GJALDSKRÁ
fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykjavíkurborg.

1. gr.

Innheimta skal gjald fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykjavíkurborg svo sem nánar greinir í gjaldskrá þessari.

 

2. gr.

Gjald fyrir blandaðan heimilisúrgang:

Gjald­flokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
A.1 120 l spartunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 21.000
A.2 120 l spartunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 27.100
A.3 240 l grá tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 34.200
A.4 240 l grá tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 42.500
A.5 660 l ker, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 94.050
A.6 660 l ker, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 116.875
     
    kr./losun
A.7 3 m³ gámur 20.100
A.8 4 m³ gámur 24.800
A.9 5 m³ gámur 29.400

 

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, pappírsefni:

Gjald­flokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
B.1 240 l blá tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 10.200
B.2 240 l blá tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 15.600
B.3 660 l blátt ker, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 28.050
B.4 660 l blátt ker, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 42.900
     
    kr./losun
B.5 3 m³ gámur 6.300
B.6 4 m³ gámur 6.300
B.7 5 m³ gámur 6.300

 

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, plastefni:

Gjald­flokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
C.1 240 l græn tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 10.600
C.2 240 l græn tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 16.000
C.3 660 l grænt ker, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 29.150
C.4 660 l grænt ker, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 44.000
     
    kr./losun
C.5 3 m³ gámur 6.700
C.6 4 m³ gámur 6.800
C.7 5 m³ gámur 6.900

 

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, lífúrgangur:

Gjald­flokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
D.1 120 l brún tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 13.200
D.2 120 l brún tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 19.300
     
    kr./losun
D.3 3 m³ gámur 16.200

 

Gjaldi fyrir tunnur og ker er ætlað að standa undir kostnaði við ílát, hirðu og förgun eða endur­vinnslu úrgangs. Gjaldi fyrir gáma er ætlað að standa undir kostnaði við hirðu og förgun eða endurvinnslu.

Aðrir gjaldaliðir:

Merktir pokar fyrir tilfallandi umfram blandaðan úrgang: 1.282 kr./stk.

Gjald fyrir aukalosun: 4.700 kr./ferð auk 1.650 kr./ílát sem losað er.

Gjald fyrir aukalosun djúpgáma: 4.700 kr./ferð auk losunargjalds djúpgáma hér að framan.

Gjald vegna reksturs grenndar- og endurvinnslustöðva: 17.850 kr./íbúð. Gjaldi vegna grenndar- og endurvinnslustöðva er ætlað að standa undir kostnaðarhlutdeild Reykjavíkurborgar í rekstri grenndar- og endurvinnslustöðva SORPU bs.

Umsýslugjald vegna breyttrar þjónustu, akstur og skráning íláta, er 3.500 kr. fyrir hvert sinn sem óskað er breytinga.

 

3. gr.

Gjalddagi gjalda skv. 2. gr. er útgáfudagur reiknings og eindagi 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga, séu gjöld ekki greidd á eindaga.

 

4. gr.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi. Innheimtudeild Reykjavíkurborgar annast innheimtu gjalda samkvæmt þessari gjaldskrá.

Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af borgarstjórn Reykjavíkur með heimild í 5. mgr. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum og 2. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, með síðari breytingum og öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá fyrir sorphirðu í Reykjavíkurborg nr. 860/2021.

 

Borgarstjórinn í Reykjavík, 21. desember 2021.

 

Dagur B. Eggertsson.


B deild - Útgáfud.: 27. desember 2021