Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 6/2016

Nr. 6/2016 5. janúar 2016

GJALDSKRÁ
Veitna ohf. á veitusvæðum Orkuveitu Reykjavíkur, heitt vatn.

1. gr.

Almennt.

Gjaldskrá þessi gildir fyrir heitt vatn á veitusvæðum Orkuveitu Reykjavíkur. Greiða skal í ríkissjóð sérstakan skatt af heitu vatni, 2% af smásöluverði. Heimilt er að miða innheimtu skattsins við áætlaða sölu. Virðisaukaskattur bætist við öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, 11% af vatni til húshitunar og laugarvatns en 24% til annarra nota.

Á veitusvæði Orkuveitu Reykjavíkur gilda mismunandi taxtar í þéttbýli og dreifbýli.

2. gr.

Almennir taxtar, mæld notkun.

Taxti Tegund Veitusvæði Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
H1A Einingaverð Sala í þéttbýli 122,75 2,46 138,98 kr./m³
J1A Einingaverð Sala í dreifbýli 162,00 3,24 183,42 kr./m³

Taxtarnir gilda fyrir alla húshitun, almenna heimilisnotkun og snjóbræðslu.

Heitt vatn er selt samkvæmt rúmmetramælingu.

Ekki er veittur afsláttur vegna takmörkunar á afhendingu heits vatns.

Orkuveitu Reykjavíkur er ekki skylt að veita afslátt af sölu heits vatns vegna lágs hitastigs þess á afhendingarstað enda geri Orkuveita Reykjavíkur þær ráðstafanir sem má ætlast til af henni til að halda hitastiginu í eðlilegu horfi.

Sækja skal skriflega um alla taxta aðra en ofangreinda taxta.

Heimilt er að innheimta 30% af áætluðum vatnskaupum hjá þeim húseigendum sem ekki eru farnir að kaupa heitt vatn um heimæð ári eftir að hún er tilbúin til notkunar.

3. gr.

Almennir taxtar, fast verð.

Taxti Tegund Stærð mælis Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
H1A Fast verð A: 15 mm til 20 mm 40,47 0,81 45,82 kr./dag
H1B Fast verð B: 25 mm til 50 mm 84,56 1,69 95,74 kr./dag
H1C Fast verð C: 65 mm og stærri 171,37 3,43 194,03 kr./dag
             
Taxti Tegund Stærð mælis Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
J1A Fast verð A: 15 mm til 20 mm 45,82 0,92 51,88 kr./dag
J1B Fast verð B: 25 mm til 50 mm 95,52 1,91 108,15 kr./dag
J1C Fast verð C: 65 mm og stærri 193,28 3,87 218,84 kr./dag

Fast verð er hluti af almennum taxta og í öllum öðrum samningum þar sem selt er samkvæmt mæli.

Fast verð er fyrir föstum kostnaði og er háð stærð mælis. Gjaldinu er dreift jafnt niður á tímabil reikninga.

4. gr.

Gróðurhús og sundlaugar.

Taxti Tegund Tegund Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
H3 Einingaverð Gróðurhús 61,34 1,23 69,45 kr./m³
H4 Einingaverð Sundlaugar 61,34 1,23 69,45 kr./m³

Skýringar:

Taxtar H3 og H4 eru ekki forgangsvatn. Taxtarnir gilda þar sem nægilegt vatn er til staðar og full­nægjandi flutningsgeta í veitukerfinu að mati Orkuveitu Reykjavíkur.

H4 taxtinn gildir fyrir sundlaugar, set- og vaðlaugar. Heimilt er að tengja baðvatn þessum taxta ef sundlaugin er aðalþáttur í starfsemi kaupanda.

H3 taxtinn gildir fyrir gróðurhús sem framleiða garðyrkjuafurðir í atvinnuskyni.

5. gr.

Snjóbræðsla, fiskeldi, íþróttavellir utanhúss og iðnaðarvatn í framleiðsluferla.

Taxti Tegund Tegund Kr. 2% skattur Með 24% vsk Grunnur
V1 Einingaverð Snjóbræðsla 122,75 2,46 155,26 kr./m³
V2 Einingaverð Fiskeldi 61,34 1,23 77,59 kr./m³
V3 Einingaverð Íþróttavellir, utanhúss 92,16 1,84 116,56 kr./m³
V4 Einingaverð Iðnaðarvatn í framleiðsluferla 61,34 1,23 77,59 kr./m³

Skýringar:

Taxtar V1 til V4 eru ekki forgangsvatn. Þeir gilda þar sem nægilegt vatn er til staðar og full­nægjandi flutningsgeta í veitukerfinu að mati Orkuveitu Reykjavíkur.

V1 taxtinn gildir fyrir sértengt snjóbræðslukerfi.

V2 taxtinn gildir fyrir fiskeldisfyrirtæki í framleiðslu.

V3 taxtinn gildir fyrir upphitaða íþróttavelli utanhúss.

V4 taxtinn gildir fyrir atvinnustarfsemi sem nýtir heitt vatn beint í framleiðsluferla. Taxtinn gildir í engum tilvikum fyrir húshitun eða kranavatn.

5.1

Snjóbræðsla.

S1. Snjóbræðslutaxti, framrásarvatn (aðeins í þéttbýli).

Taxti Tegund   Kr. 2% skattur Með 24% vsk Grunnur
  Fast verð   514,19 10,28 650,34 kr./dag
SR1 Lágverð Mælt þegar útihiti er hærri en -5°C 61,34 1,23 77,59 kr./m³
SR1 Háverð Mælt þegar útihiti er lægri en -5°C 184,10 3,68 232,85 kr./m³

Skýringar:

Mæling á heitu vatni fer fram á afhendingarstað með mælitækjum (tímamæling), sem Orkuveita Reykjavíkur leggur til.

Sækja þarf skriflega um taxtann á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem Orkuveita Reykjavíkur leggur til.

S2. Snjóbræðslutaxti, framrásarvatn með flatargjaldi (aðeins í þéttbýli).

Taxti Tegund   Kr. 2% skattur Með 24% vsk Grunnur
  Fast verð   514,19 10,28 650,34 kr./dag
SR2 Lágverð Mælt þegar útihiti er hærri en -5°C 61,34 1,23 77,59 kr./m³
SR2 Háverð Mælt þegar útihiti er lægri en -5°C 184,10 3,68 232,85 kr./m³
SR2 Daggjald Fyrir hvern m² snjóbræðsluflatar 0,14 0,003 0,17 kr./m²

Skýringar:

Mæling á heitu vatni fer fram á afhendingarstað með mælitækjum (tímamæling), sem Orkuveita Reykjavíkur leggur til.

Taxtinn miðast við að tvöfalt dreifikerfi sé til staðar hjá kaupanda. Daggjaldið er á hvern m² snjóbræðsluflatar.

Sækja þarf skriflega um taxtann á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem Orkuveita Reykjavíkur leggur til.

6. gr.

Frístundahús – hemlataxtar.

Veitusvæði Taxti   Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
Dreifbýli Grunnverð Kr. á dag fyrir 3 mínútulítra 299,37 5,99 338,95 kr./dag
Einingaverð Kr./dag pr. mín.lítra umfr. 3 l 59,88 1,20 67,80 kr./dag

Skýringar:

Gildir fyrir frístundahús á svæðum Austurveitu, Grímsnesveitu, Hlíðaveitu, Ölfusveitu, Skorra­dals­veitu, Munaðarnesveitu og Norðurárdalsveitu.

Hitaveituvatn til frístundahúsa er selt um hemil til takmörkunar á rennsli. Mínútulítri táknar það rennsli sem gefur 1 lítra af vatni á 1 mínútu.

Innifalið í grunnverði eru 3 mínútulítrar, sem er minnsta magn sem afhent er til sumarhúsa.

Hægt er að sækja um aukið vatnsmagn hvenær sem er en umsókn um minnkun er aðeins fram­kvæmd mánuðina apríl og maí ár hvert.

Hugsanlegt er að svæðisbundið sé ekki nægt vatn til að verða við óskum um að kaupa aukið vatns­magn.

Heimilt er að innheimta 30% af áætluðum vatnskaupum hjá þeim húseigendum sem ekki eru farnir að kaupa heitt vatn um heimæð ári eftir að hún er tilbúin til notkunar.

7. gr.

Verðskrá fyrir Rangárveitu dreifbýli.

Samkvæmt reglugerð nr. 10/2012 um breytingu á reglugerð nr. 297/2006, um Orkuveitu Reykja­víkur með síðari breytingum, nær veitusvæði fyrirtækisins til Hellu og Hvolsvallar og nær­liggjandi sveita, eins og það veitusvæði er skilgreint í samningi frá 25. janúar 2005 milli Orku­veitu Reykja­víkur, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra og Ásahrepps. Í 3. mgr. 6. gr. reglu­gerðar um Orku­veitu Reykjavíkur segir einnig að í þeim tilvikum þar sem á veitusvæði Orku­veitu Reykjavíkur gilda mis­munandi taxtar í þéttbýli og dreifbýli skal skilgreining á milli þétt­býlis og dreifbýlis fylgja því hvernig viðkomandi sveitarfélag skilgreinir þéttbýli á aðalskipulagi. Ákvæði 7. gr. gjaldskrár þessarar gilda eingöngu fyrir dreifbýli á því svæði sem framangreindur samn­ingur tekur til. Önnur ákvæði gjaldskrárinnar, s.s. ákvæði 8. gr. um heimlagnir gilda einnig á því svæði eftir því sem við á.

7.1

Mæld notkun.

Taxti Tegund Veitusvæði Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
J1A Einingaverð Sala í dreifbýli 162,00 3,24 183,42 kr./m³

 7.2

Fast verð.

Taxti Tegund Stærð mælis Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
J1A Fast verð A: 15 mm til 20 mm 45,82 0,92 51,88 kr./dag
J1B Fast verð B: 25 mm til 50 mm 95,52 1,91 108,15 kr./dag
J1C Fast verð C: 65 mm og stærri 193,28 3,87 218,84 kr./dag

 7.3

Íbúðarhús – blandaður taxti.

Taxti Tegund Grunnur Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
HR5 Grunnverð Grunndagverð 52,34 1,05 59,26 kr./dag
Einingaverð Kr./dag pr. mín.lítra 59,74 1,19 67,63 kr./dag
Einingaverð Neysluvatn um rennslismæli 155,95 3,12 176,57 kr./m³

 7.4

Frístundahús – hemlataxti.

Taxti Tegund Grunnur Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
HR4 Grunnverð Kr. á dag fyrir 3 mínútulítra  299,37 5,99 338,95 kr./dag
Einingaverð Kr./dag pr. mín.lítra umfram 3 l   59,88 1,20 67,80 kr./dag

8. gr.

Heimlagnir – almennt.

Almennt verð heimlagna gildir í þéttbýli á nýbyggingarsvæðum. Verð gildir ekki þar sem búið er að ganga varanlega frá yfirborði og fullnægjandi veitulagnir ekki komnar að lóðarmörkum. Reiknist áætlaður heildarkostnaður við heimlögnina meira en 50% hærri en verðskrá segir til um þá greiðir umsækjandi til viðbótar allan kostnað sem verður umfram þessi 50%. Viðbótarkostnaður sam­kvæmt þessari reiknireglu er ekki innheimtur samhliða innheimtu yfirlengdargjalda. Geri hús­eigandi breytingu á skipulagi húss frá útgefnu skipulagi sveitarfélags t.d. með því að færa til bíl­skúr eða annan inntaksstað ber hann til viðbótar allan kostnað við færslu eða breytingu lagna. Hús­eig­andi sem óskar eftir breytingu eða færslu á inntaksbúnaði eða inntaksstað ber af því allan kostnað. Sama gildir um tímabundna aftengingu.

8.1

Heitt vatn – heimæðagjöld.

Neðangreint verð gildir í þéttbýli þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 50 m, 2% yfir­lengdar­gjald er tekið fyrir hvern metra. Sama gildir um hvern metra sem lengd heimæðar fer yfir 20 m innan lóðarmarka. Stærð heimæðar fyrir almenna upphitun tekur mið af rúmmáli hús­næðis en stærð heimæðar fyrir aðra notkun ákvarðast af tilgreindri vatnsþörf í umsókn að höfðu sam­ráði við Orkuveituna. Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðagjöld fyrir heimæðar til hús­hit­unar en 24% á heimæðagjöld til annarra nota.

Taxti Málstærð Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
H1H 20 mm 305.868 339.513 379.276
H1H 25 mm 477.918 530.489 592.618
H1H 32 mm 783.022 869.154 970.947
H1H 40 mm 1.223.470 1.358.052 1.517.103
H1H 50 mm 1.911.671 2.121.955 2.370.472

Skýringar:

Ein tengigrind er innifalin í hverju heimæðargjaldi. Fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af heimæðargjaldi viðkomandi málstærðar. Kostnaðarverð heimæða stærri en 50 mm er reiknað sérstaklega fyrir hvert tilvik og m.a. tekið mið af flutningsgetu heimæðar, stofnæða og aðveitu.

8.2

Heitt vatn – bráðabirgðatengingar.

Taxti Málstærð Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
H2H 20 mm 91.761 101.855 113.784

Skýringar:

Verðið gildir fyrir tengingu við heimæðarenda sem kominn er inn fyrir lóðarmörk ásamt einni tengi­grind. Við aðrar aðstæður og fyrir stærri tengingu er hún gjaldfærð í samræmi við raun­­kostnað.

8.3

Heimæðagjöld í dreifbýli (lögbýli og heilsárshús).

Neðangreind verð gilda þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 70 m, 2% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra. Stærð heimæðar ákvarðast af tilgreindu vatnsmagni í umsókn en stærð heimæðar til upphitunar húsnæðis tekur mið af rúmmáli þess. Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðagjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 24% á heimæðagjöld til annarra nota.

Taxti Málstærð
m.v. stál 
Málstærð
m.v. PEX
Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
H3H 20 mm 25 mm 397.629 441.368 493.060
H3H 25 mm 32 mm 621.293 689.635 770.403
H3H 32 mm   1.017.927 1.129.899 1.262.229

Skýringar:

Ein tengigrind er innifalin í hverju heimæðargjaldi. Fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af heimæðargjaldi viðkomandi málstærðar. Kostnaðarverð stærri heimæða en 32 mm er reiknað sérstaklega fyrir hvert tilvik og m.a. tekið mið af flutningsgetu heimæðar, stofnæða og aðveitu.

8.4

Heimæðagjöld fyrir frístundahús (í samræmi við byggingarleyfi).

Neðangreind verð gilda í frístundahúsabyggðum þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 100 m, 2% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra. Virðisaukaskattur reiknast 11% á heimæðagjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 24% á heimæðagjöld til annarra nota.

Málstærð Skýring Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
15 mm PEX Heimæð lögð stök frá stofn- eða götuæð 576.444 639.853 714.791
15 mm PEX Heimæð lögð samtímis og í sama skurði og kaldavatnsæð OR 405.863 450.508 503.270

Skýringar:

Heitavatnsheimæðar fyrir frístundahús eru 15 mm. Ósk um stærri heimæð fellur undir mat Orku­veitunnar á styrk dreifikerfis og verði ósk samþykkt greiðir umsækjandi allan viðbótarkostnað sem fylgir stærri heimæð og þ.m.t. styrkingu á aðveitu.

9. gr.

Þjónustugjöld.

Texti Kr. Með 11% vsk Með 24% vsk
Seðilgjald 193   239
Tilkynningar- og greiðslugjald 92   114
Aukaálestur 1.955 2.170 2.424
Skipting orkureiknings 2.698 2.995 3.346
Innheimtuviðvörun¹ 950 1.055 1.178
Lokunargjald 2.788 3.095 3.457
Lokunargjald v/sumarhúss eða lokun að beiðni notanda 13.955 15.490 17.304
Endurkoma vegna tengingar sumarhúss² 17.443 19.362 21.629
Útkall v/búnaðar notanda í sumarhúsi³ 13.955 15.490 17.304
Gjald fyrir innheimtuaðgerð þar sem nauðsynlegt er að grafa niður á heimæð4 305.868 339.513 379.276

Skýringar:

¹ 20 dögum eftir gjalddaga.

² Gjald fyrir endurkomu þegar umsækjandi hefur ekki uppfyllt sín skilyrði við áhleypingu.

³ Gjald fyrir útkall vegna tilkynningar notanda um bilun sem reynist vera í búnaði húseiganda.

Sé leitað eftir þjónustu utan dagvinnutíma reiknast 55% álag.

4 25% álag reiknast á innheimtuaðgerð utan þéttbýlis.

Gjaldskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum nr. 136/2013 um Orkuveitu Reykjavíkur og orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, sbr. reglugerð fyrir Orkuveitu Reykjavíkur nr. 297/2006, með síðari breytingum, til að öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum og birtast til eftir­breytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis nr. 570/2015.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. janúar 2016.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Ingvi Már Pálsson.


B deild - Útgáfud.: 11. janúar 2016