1. gr.
Almenn ákvæði.
Gjaldskrá þessi fyrir Hornafjarðarhöfn er sett skv. heimild í 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003.
Gjaldskráin er við það miðuð að Hornafjarðarhöfn geti haft nægar tekjur til þess að standa undir rekstri hafna, sbr. 3. gr. 5. tölulið hafnalaga.
2. gr.
Um gjaldtöku tengda stærð skipa.
Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969.
Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar.
3. gr.
Skipagjöld.
3.1 Lestargjöld:
Af öllum skipum skal greiða lestargjald 14,49 kr. á mælieiningu skv. 2. gr. en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.
3.2 Bryggjugjöld:
Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða samkvæmt eftirfarandi:
Skip við bryggju 4,07 kr. á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 12 tíma, sem skip liggur bundið, hámark 26 sinnum í mánuði.
Heimilt er að taka lestar- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum, sem mánaðargjald, 90,29 kr. á mælieiningu, en þó aldrei lægra en 11.092 kr. á mánuði. Bátar minni en 20 brt greiði þó aldrei lægra en 6.454 kr. á mánuði.
Lægsta gjald fyrir einstaka komu til hafnarinnar skal vera 4.065 kr.
4. gr.
Vörugjöld.
Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, eða á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður en skip hefur siglingu, nema sérstaklega sé samið um annað. Farmflytjandi ber ábyrgð á vörugjaldi og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð.
Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.
Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.
Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, þó með þeim undantekningum er síðar getur.
Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til annarrar hafnar, innlendrar eða erlendrar, en eru látnar á land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land. Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna skemmda á skipi.
Af vörum, sem fluttar eru á skip og fara eiga til annarra hafna innanlands greiðist hálft vörugjald.
Af vörum sem koma frá útlöndum og fara eiga áfram til útlanda er heimilt að innheimta fullt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land.
Þessar vörur eru algjörlega undanþegnar vörugjaldi:
|
a) |
Umbúðir sem endursendar eru. |
|
b) |
Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar. |
|
c) |
Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna. |
|
d) |
Úrgangur sem fluttur er til eyðingar. |
Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri eða afgreiðslumaður skips skal láta höfninni í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn. Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.
Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:
4.1 Vörugjaldskrá:
1. fl.: |
Gjald 315 kr. fyrir hvert tonn: |
|
Kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, bensín, brennsluolíur, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu. |
2. fl.: |
Gjald 590 kr. fyrir hvert tonn: |
|
Lýsi og fiskimjöl. |
3. fl.: |
Gjald 630 kr. fyrir hvert tonn: |
|
Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, veiðarfæri, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda. Pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir. |
4. fl.: |
Gjald 1,60%. Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum. Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans. |
|
Gjald af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast af helmingi heildarverðmætis. |
|
Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu heildarverði. |
|
Seljanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um seldan afla um leið og sala hefur átt sér stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. Kaupandi aflans innheimtir gjaldið hjá seljanda og er ábyrgur fyrir því til hafnarsjóðs þótt hann vanræki innheimtu þess. |
|
Hámarksgjald samkvæmt lið þessum er 6.683 kr. hvert tonn. |
|
Lágmarksgjald í öllum flokkum er 243 kr. |
5. gr.
Hafnsögugjöld.
Hafnsögugjöld skulu greidd samkvæmt eftirfarandi gjaldskrá aðra leið:
Fyrir leiðsögu til og frá höfninni 4.983 kr. fyrir hvert skip, auk 7,88 kr. fyrir hvert brúttótonn.
5.1 |
Þjónusta lóðsbátsins Björns lóðs samkvæmt tímagjaldi, án mannskaps: |
|
Tímagjald, Björn lóðs |
31.162 kr. |
|
Tímagjald hafnarstarfsmanns í dagvinnu |
3.500 kr. |
|
Tímagjald hafnarstarfsmanns í yfirvinnu |
5.000 kr. |
|
Lágmarksgjald vegna útkalls |
70.962 kr. |
5.2 |
Festargjöld: |
|
|
Fyrir hvern festarmann í dagvinnu |
7.000 kr. |
|
Fyrir hvern festarmann í yfirvinnu |
10.000 kr. |
5.3 |
Farþegagjald: |
|
|
Gjald fyrir hvern farþega á skemmtiferðaskipum |
200 kr. |
6. gr.
Þjónustugjöld.
6.1 |
Vatnssala: |
|
|
Vatnsafgreiðslugjald |
10.000 kr./hver afgreiðsla utan dagvinnutíma |
|
Vatn til skipa |
360 kr./m³ |
|
Vatn til stærri |
2.468 kr./mán. |
|
Vatn til heimasmábáta |
1.444 kr./mán. |
6.2 |
Sorpgjald: |
|
|
Sorpurðunargjald fer eftir gjaldskrá sveitarfélagsins. |
|
|
Fyrir sorphirðu rukka starfsmenn hafnarinnar: |
|
|
Fyrir hverja sérferð |
7.000 kr. |
|
Sérferð utan dagvinnu |
10.000 kr. |
|
Almennt sorpgjald, stærð skips < 10 tonn |
534 kr./mán. |
|
Almennt sorpgjald, stærð skips 10-100 tonn |
2.531 kr./mán. |
|
Almennt sorpgjald, stærð skips > 100 tonn |
3.890 kr./mán. |
|
Fyrir hverja losun |
5.692 kr. |
6.3 |
Vogargjald: |
|
|
Almenn vigtun |
153 kr./tonn |
|
Lágmarksgjald fyrir einstaka vigtun |
906 kr. |
|
Skráningargjald afla |
100,60 kr./tonn |
|
Yfirvinna vigtarmanns |
5.000 kr. pr. klst. |
Magnafsláttur er veittur á skráningargjaldi fyrir uppsjávarfisk (síld, loðnu o.fl.) skv. eftirfarandi reglum: |
|
1 - 10.000 tonn á ári |
32,54 kr./tonn |
|
10.001 - 20.000 tonn á ári |
16,27 kr./tonn |
|
20.001 og meira á ári |
8,13 kr./tonn |
6.4 |
Kranagjald: |
|
|
Kranagjald (hámark 10 skipti á mán.) |
826 kr. |
6.5 |
Raforkusala: |
|
|
Almennt raforkugjald án vsk. |
15,30 kr./kwst. |
|
Raforkusala tekur sömu breytingum og viðmiðunartaxti RARIK |
|
|
Tengigjald |
10.000 kr. hver afgreiðsla utan dagvinnutíma |
6.6 |
Geymslugjald á eða við hafnarbakka 111,84 kr. á m² í viku. Eftir þann tíma reiknast til viðbótar 2.300 kr. á dag. |
|
6.7 |
Móttaka skipa sem falla undir ISPS-kóða: |
|
|
Öryggisgjald fyrir hverja skipakomu |
35.587 kr. |
|
Öryggisgæsla og farmvernd í dagvinnu |
7.000 kr. |
|
Öryggisgæsla og farmvernd í yfirvinnu |
10.000 kr. |
6.8 |
Leiga á gámasvæði – geymsla bátakerra: |
|
|
|
Lóð fyrir 40 feta gám |
2.033 kr. á mán. |
24.396 kr. á ári |
|
Lóð fyrir bátakerru |
2.033 kr. á mán. |
24.396 kr. á ári |
|
Geymsla á geymslusvæði |
32,54 kr. m² á mánuði |
6.9 |
Leiga mælingatækja: |
|
|
GPS Base og Rover |
3.500 kr./klst. |
|
Tæki til dýptarmælinga |
15.000 dagur |
7. gr.
Aðstoð Björns lóðs við hjálparvana skip.
Fyrir skip sem eigi komast til hafnar fyrir eigin vélarafli (hjálparvana) en eru þó ekki í yfirvofandi hættu fer um greiðslu samkvæmt samkomulagi frá 16. september 1987 milli Samsteypu íslenskra fiskiskipatrygginga og Landhelgisgæslu Íslands annars vegar og Landhelgisgæslu Íslands og LÍÚ hins vegar (á við skip 100 brl eða stærri).
7.1 |
Skip innan við 100 brúttótonn: |
|
|
Grunngjald |
128.443 kr. |
|
Fyrir hverja rúmlest 20-70 |
2.250 kr. |
|
Fyrir hverja rúmlest 70-100 |
3.586 kr. |
|
Tímagjald í lausakeyrslu |
32.360 kr. |
|
Tímagjald fyrir báta í drætti |
41.701 kr. |
|
Tímagjald fyrir lausakeyrslu og drætti fyrir báta < 20 brt |
31.162 kr. |
|
Að auki kemur tímagjald áhafnar: |
3.500 kr. dagvinna |
|
|
5.000 kr. yfirvinna |
7.2 |
Skip stærri en 100 brúttórúmlestir: |
|
|
Grunngjald, lágmark |
875.590 kr. |
|
Grunngjald, hámark |
1.476.000 kr. |
|
Tonnagjald |
2.557 kr./brt |
|
Hver klst. í lausakeyrslu |
51.122 kr./klst. |
|
Hver klst. með skip í drætti |
76.679 kr./klst. |
8. gr.
Um innheimtu og greiðslu gjalda.
Hafnarstjóri sér um innheimtu allra gjalda skv. gjaldskrá þessari og skal greiða gjöldin á skrifstofu hafnarinnar. Heimilt er að leita samþykkis skrifstofunnar til notkunar greiðslumiðlunar við uppgjör skulda.
Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.
Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Hornafjarðarhafnar vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa hafnarstjóra upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr. 326/2004 um hafnamál og afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.
Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.
9. gr.
Tryggingar vegna gjaldheimtu.
Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi.
Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðkröfum, sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Hornafjarðarhöfn er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.
10. gr.
Virðisaukaskattur.
Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Hornafjarðarhöfn er skylt að innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.
11. gr.
Gildistaka.
Gjaldskrá þessi fyrir Hornafjarðarhöfn er skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004.
Gjaldskráin öðlast gildi þann 1. apríl 2017 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir Hornafjarðarhöfn nr. 510/2015.
Sveitarfélaginu Hornafirði, 10. mars 2017.
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri.
|