Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 577/2023

Nr. 577/2023 26. maí 2023

REGLUGERÐ
um breytingar á reglugerðum sem varða þvingunaraðgerðir gagnvart Sómalíu, Mið-Afríkulýðveldinu, Jemen, Haítí, Írak, Líbanon og Sýrlandi.

1. gr.

Almenn ákvæði.

Með reglugerð þessari eru sett ákvæði um þvingunaraðgerðir sem varða Sómalíu, Mið-Afríku­lýðveldið, Jemen, Haíti, Írak, Líbanon og Sýrland til að framfylgja ályktunum öryggisráðs Samein­uðu þjóðanna, ákvörðunum framkvæmdanefnda þess um þvingunaraðgerðir og/eða sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópu­sambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993.

Ákvæði reglugerðar nr. 119/2009 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða eiga við um framkvæmd reglugerðar þessarar.

 

2. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi reglugerðum er breytt sem hér segir:

a. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu, nr. 792/2015, ásamt síðari breytingum.
  Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:
  1.18 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/338 frá 14. febrúar 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins og sameiginlegum afstöðum að því er varðar þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.18.
  2.13 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/331 frá 14. febrúar 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.13.
b. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Mið-Afríkulýðveldið, nr. 760/2014, ásamt síðari breytingum.
  Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:
  1.31 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/338 frá 14. febrúar 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins og sameiginlegum afstöðum að því er varðar þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.31.
  2.30 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/331 frá 14. febrúar 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.30.
c. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Jemen, nr. 880/2015, ásamt síðari breytingum.
  Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:
  1.12 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/338 frá 14. febrúar 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins og sameiginlegum afstöðum að því er varðar þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.12.
  2.12 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/331 frá 14. febrúar 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.12.
d. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Haíti, nr. 55/2023, ásamt síðari breytingum.
  Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:
  1.1 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/338 frá 14. febrúar 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins og sameiginlegum afstöðum að því er varðar þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.1.
  2.1 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/331 frá 14. febrúar 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.1.
e. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Írak, nr. 851/2015, ásamt síðari breytingum.
  Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:
  1.7 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/338 frá 14. febrúar 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins og sameiginlegum afstöðum að því er varðar þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.7.
  2.15 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/331 frá 14. febrúar 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.15.
f. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Líbanon, nr. 835/2015, ásamt síðari breytingum.
  Eftirfarandi töluliður skal bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:
  4.1 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/338 frá 14. febrúar 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins og sameiginlegum afstöðum að því er varðar þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 4.1.
g. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Sýrland, nr. 456/2014, ásamt síðari breytingum.
  Eftirfarandi töluliður skal bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:
  14.1 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/331 frá 14. febrúar 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 14.1.

 

3. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunar­aðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 26. maí 2023.

 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 13. júní 2023