1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast einn nýr töluliður, 51. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/80 frá 19. janúar 2022 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Breska konungsríkið í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar sem nefnd er í 1. gr. er birt sem fylgiskjal 1 við þessa reglugerð.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, öll með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 7. desember 2022.
Svandís Svavarsdóttir.
Iðunn María Guðjónsdóttir.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|