Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 802/2018

Nr. 802/2018 27. ágúst 2018

GJALDSKRÁ
HS veitna hf. fyrir heitt vatn.

I. KAFLI

1. gr.

HS veitur hf. selja afnot af heitu vatni úr veitukerfum þeim, sem gerð hafa verið og verða gerð, eftir þeim reglum, sem settar eru í gjaldskrá þessari.

2. gr.

HS veitur hf. láta hverju húsi, sem er í sambandi við vatnsæðar hennar, í té vatnsmagn, er ætla má að nægi til fullrar hitunar, enda séu ofnar hússins nægilega stórir, að dómi HS veitna hf.

Verður vatnsrennsli að húsinu takmarkað um hemil, eftir því sem þörf krefur eða mælt með þar til gerðum magnmælum.

II. KAFLI

3. gr.

Fyrir afnot af heita vatninu skal húseigandi á Suðurnesjum greiða samkvæmt magnhemli:

      án vsk. m. 11,0% vsk.  
Húshitun m/l á ári (80°C) 44.933,00 49.876,00   kr.
Húshitun m/l á dag (80°C) 123,10 136,27   kr.
Húshitun m/l á ári (90°C) 50.522,00 56.079,00   kr.
Húshitun m/l á dag (90°C) 138,42 153,22   kr.

Verði um sölu á heitu vatni að ræða í öðru formi en að framan greinir á Suðurnesjum, skal hús­eigandi greiða samkvæmt magnmæli:

    án vsk. m. 11,0% vsk. m. 24,0% vsk.  
Til húshitunar (80°C) 126,12 139,99   kr./m³
Til húshitunar (90°C) 138,77 154,03   kr./m³
Til annarra nota   126,12   156,39 kr./m³
Til iðnaðar, sem verulegur hluti framleiðslukostnaðar 107,20   132,93 kr./m³

Fyrir afnot af heita vatninu skal húseigandi í Vestmannaeyjum greiða samkvæmt magnmæli: 

Til íbúða húshitunar   án vsk. m. 11,0% vsk.  
VM1 m³   305,08 323,85   kr./m³
Niðurgreitt pr. m³   -144,20     kr./m³
VM2 m³   76,17 80,85   kr./m³
Niðurgreitt pr. m³   -36,05     kr./m³
VM2 kWst.   5,11 5,43   kr./kWst.
Niðurgreitt pr. kWst.   -2,37     kr./kWst.
         
Til húshitunar annars en íbúða án vsk. m. 11,0% vsk.  
VM3 m³   286,86 318,41   kr./m³
VM4 m³   71,28 79,12   kr./m³
VM4 kWst.   4,76 5,28   kr./kWst.

4. gr.

HS veitur hf. leigja vatnsmæla og hemla og annast viðhald þeirra. Leigan fyrir mæli eða hemil skal greidd jafnhliða gjaldi fyrir vatnsnotkun og skal vera fyrir hvern mæli eða hemil sem hér segir á Suðurnesjum:

  án vsk. m. 11,0% vsk. m. 24,0% vsk.  
Mælir eða hemill allt að 20 mm 8.408,00 9.333,00 10.426,00   kr./ár
Mælir eða hemill allt að 20 mm 23,04 25,50 28,49   kr./dag
Mælir eða hemill 25–50 mm 16.846,00 18.699,00 20.889,00   kr./ár
Mælir eða hemill 25–50 mm 46,15 51,09 57,07   kr./dag
Mælir eða hemill 65 mm og stærri 33.660,00 37.363,00 41.738,00   kr./ár
Mælir eða hemill 65 mm og stærri 92,22 102,08 114,04   kr./dag

HS veitur hf. leigja vatnsmæla og annast viðhald þeirra. Leigan fyrir mæli skal greidd jafnhliða gjaldi fyrir vatnsnotkun og skal vera fyrir hvern mæli sem hér segir í Vestmannaeyjum:

Flokkur og stærð mæla án vsk. m. 11,0% vsk.  
MV1 Fyrir mæla 20 mm og minni 24.821,00 27.551,00   kr./ár
MV1 Fyrir mæla 20 mm og minni 68,00 75,28   kr./dag
MV2 Fyrir mæla 25–50 mm 49.455,00 54.895,00   kr./ár
MV2 Fyrir mæla 25–50 mm 135,49 149,99   kr./dag
MV3 Fyrir mæla 65 mm og stærri 99.137,00 110.042,00   kr./ár
MV3 Fyrir mæla 65 mm og stærri 271,61 300,66   kr./dag

5. gr.

Hitaveitugjöld skv. 3. og 4. gr. má krefja mánaðarlega. Gjalddagi hitaveitugjalda er við framvísun reiknings eða tilkynningar um reikningsupphæð. Sé reikningurinn ekki greiddur við fyrstu sýningu, ber gjaldanda að greiða hann, þar sem HS veitur hf. ákveða. Það eru vanskil, ef gjöldin eru ekki að fullu greidd innan 15 daga frá gjalddaga.

6. gr.

Heimæðargjald skal greitt fyrir hverja heimæð er tengir hús við veitukerfi HS veitna hf. Heim­æðar­gjald skal greitt þegar lagningu heimæðar er lokið.

Heimæðargjald skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð:

Rúmmál húss utanmál m³ án vsk. m. 11,0% vsk.  
Allt að 400 m³ 196.500,00 218.115,00   kr.
Yfir 400–2.000 m³ 160,33 177,97   kr./m³
2.000 m³ 453.000,00 502.830,00   kr.
Yfir 2.000–6.000 m³ 131,85 146,35   kr./m³
6.000 m³ 980.000,00 1.087.800,00   kr.
Yfir 6.000–10.000 m³ 116,69 129,53   kr./m³
10.000 m³ 1.447.000,00 1.606.170,00   kr.
Yfir 10.000 m³ 101,49 112,65   kr./m³
Bráðabirgðatenging, t.d. vinnuskúrar 32.200,00 35.742,00   kr.

Nú eru fleiri en eitt hitunarkerfi í húsinu með sérstökum hemlum eða mælum frá HS veitum hf. og skal þá greiða fyrir hverja grind:

  án vsk. m. 11,0% vsk.  
Aukagrind 24.400,00 27.084,00   kr.

9. gr.

Eftirlitsmanni HS veitna hf. skal hvenær sem er frjáls aðgangur að öllum hemlum, mælum, hita­gjöfum og vatnsæðum sem eru í sambandi við hitaveituna. Er húseiganda skylt að hlíta tafar­laust fyrirmælum hans um viðgerðir á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn mis­notkun á heita vatninu.

10. gr.

Virðisaukaskattur, 11,0%, bætist við öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, nema á sölu vatns til annars en húshitunar og opnunargjald þar sem virðisaukaskatturinn er 24,0%.

Í gjaldskránni er ekki tekið tillit til 2% orkuskatts á smásöluverð.

IV. KAFLI

11. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af stjórn HS veitna hf. staðfestist hér með skv. orku­lögum, nr. 58/1967, til að öðlast gildi 1. september 2018. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjald­skrá sama efnis nr. 770/2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. ágúst 2018.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 31. ágúst 2018