Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 765/2019

Nr. 765/2019 15. ágúst 2019

REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1155/2013 um styrki vegna hjálpartækja.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á fylgiskjalinu „Hjálpartæki Sjúkratrygginga Íslands“ með reglu­gerðinni:

Á flokknum 21 Hjálpartæki til tjáskipta, upplýsinga og viðvörunar verður eftirfarandi breyting:

3. tölul. í flokknum 2151 Viðvörunarkerfi. Öryggiskallkerfi orðast svo:

Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands tekur aðeins til íbúða þar sem Sjúkratryggingar Íslands eða aðrir opinberir aðilar greiða ekki kostnað af rekstrinum eða annast þjónustu/gæslu að einhverju eða verulegu leyti s.s. ef íbúð er samtengd eða í næsta nágrenni við slíka þjónustu/gæslu sem stendur til boða.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 26. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 15. ágúst 2019.

Svandís Svavarsdóttir.

Elsa B. Friðfinnsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 5. september 2019