Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt nýtt deiliskipulag og deiliskipulagsbreytingu sem hér segir:
Varmárskólasvæði. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að núverandi starfsmannastæði við Varmárskóla eru látin halda sér og sleppistæði sunnan og norðan Skólavegar eru tekin út en aðkomutorg skilgreint. Breytt fyrirkomulag er á biðstöðvum almenningsvagna.
Langavatn 509-f. Nýtt deiliskipulag frístundabyggðar við Langavatn felur í sér að skilgreina byggingarreiti og stærðir bygginga á svæðinu ásamt nýjum byggingarskilmálum. Lóðum er fjölgað um eina með skiptingu á L192752 og eru þá níu talsins.
Ofangreind mál hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 8. júní 2020,
Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi.
|