Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1297/2021

Nr. 1297/2021 17. nóvember 2021

REGLUGERÐ
um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi.

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra toll­kvótum samkvæmt sérstökum samningi milli Íslands, Bretlands og Noregs um viðskipti með land­búnaðar­vörur, samkvæmt 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993 og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005. Reglu­gerð þessi gildir um innflutning á þeim vörum sem taldar eru upp í 2. gr. frá Bretlandi og með uppruna­vottorð þaðan.

 

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

 

  Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Úr tollskrárnr.     kg % kr./kg
ex0406 Ostur og ystingur (**) 01.01. - 31.12.22 11.000 0 0
0406 Ostur og ystingur 01.01. - 31.12.22 19.000 0 0
1602 Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum 01.01. - 31.12.22 18.000 0 0

(**) PDO eða PGI. Skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.

 

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, sem birt er á heimasíðu þess, þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar.

 

4. gr.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Tilboð skulu ráða úthlutun. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkom­andi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt. Einnig er heimilt í stað ábyrgðar­yfirlýsingar að greiða andvirði tollkvóta á reikning fjársýslunnar og láta kvittun fylgja tilboðsgögnum. Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is.

Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs.

Úthlutun er ekki framseljanleg.

 

5. gr.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings vara úr vörulið ex 0406(**) en auglýstum tollkvóta nemur, skal ráðherra úthluta tollkvóta vegna vöruliðarins eftir hlutkesti. Hver tilboðsgjafi skal þó að hámarki hljóta 15% af heildarmagni auglýsts tollkvóta ef viðkomandi vara er skráð í samræmi við reglur um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.

 

6. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 1250/2019, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins, með síðari breytingum.

 

7. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

 

8. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breyt­ingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2022. Við gildistöku hennar fellur úr gildi reglugerð nr. 1321/2020 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. nóvember 2021.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Benedikt Árnason.

Elísabet Anna Jónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 18. nóvember 2021