Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
1020/2017

Nr. 1020/2017 8. nóvember 2017

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 970/2013 um efni sem valda rýrnun ósonlagsins.

1. gr.

Við 13. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  5) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/605 frá 29. mars 2017 um breytingu á VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1005/2009 um efni sem valda rýrnun ósonlagsins, sem vísað er til í tl. 21aa, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 190/2017, þann 22. september 2017. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 67 frá 19. október 2017, bls. 373.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/605 frá 29. mars 2017 um breytingu á VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1005/2009 um efni sem valda rýrnun ósonlagsins.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 8. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 8. nóvember 2017.

Björt Ólafsdóttir.

Sigríður Auður Arnardóttir.


B deild - Útgáfud.: 27. nóvember 2017