Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1/2019

Nr. 1/2019 3. september 2019

AUGLÝSING
um innleiðingu á viðauka II um staðlaðar matsaðferðir fyrir hávaða í tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/996 frá 19. maí 2015 um að koma á sameiginlegum matsaðferðum fyrir hávaða samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/49/EB, sbr. reglugerð nr. 830/2019.

1. gr.

Eftirfarandi viðauki öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 830/2019 um (1.) breytingu á reglu­gerð nr. 1000/2005 um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir sem birt er í B-deild Stjórnar­­tíðinda: Viðauki II um staðlaðar matsaðferðir fyrir hávaða í tilskipun framkvæmda­stjórnar­innar (ESB) 2015/996 frá 19. maí 2015 um að koma á sameiginlegum mats­aðferðum fyrir hávaða sam­kvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/49/EB, sem vísað er til í tölulið 32ga VI. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 207/2017, þann 27. október 2017. Við­aukinn er birtur á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með stoð í 15. tölul. 5. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunar­varnir, sbr. heimild í 2. mgr. 4. gr., sbr. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 15/2005 um Stjórnartíðindi og Lög­birt­inga­blað og öðlast þegar gildi.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 3. september 2019.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 20. september 2019