Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 541/2020

Nr. 541/2020 15. maí 2020

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1202/2016, um frádrátt frá tekjum erlendra sérfræðinga.

1. gr.

A-liður 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi: hann hefur ekki verið búsettur eða heimilisfastur hér á landi á næsta 60 mánaða samfelldu tímabili fyrir upphaf starfa hans hér á landi, en þó þannig að fyrstu þrír mánuðir dvalar hérlendis teljast ekki með; og.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 6. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 15. maí 2020.

 

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.


B deild - Útgáfud.: 2. júní 2020