Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 419/2025

Nr. 419/2025 4. apríl 2025

REGLUGERÐ
um (46.) breytingu á reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í III. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 8/2025 frá 7. febrúar 2025, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1647 frá 23. september 2022 um breytingu á tilskipun 2003/90/EB að því er varðar undanþágu fyrir lífrænt ræktuð yrki nytjaplantna í landbúnaði sem henta til lífrænnar framleiðslu. Tilskipunin er birt í EES-við­bæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17 frá 20. mars 2025, bls. 462.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvegaráðuneytinu, 4. apríl 2025.

 

Hanna Katrín Friðriksson.

Svava Pétursdóttir.


B deild - Útgáfud.: 15. apríl 2025