Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1208/2014

Nr. 1208/2014 17. desember 2014
GJALDSKRÁ
Hitaveitu Grímnes- og Grafningshrepps.

I. KAFLI

1. gr.

Hitaveita Grímsnes- og Grafningshrepps selur afnot hitaorku úr hitaveitukerfum þeim, sem gerð hafa verið eða kunna að verða gerð í lögsagnarumdæmi hitaveitunnar og hún hefur umráðarétt yfir, eftir þeim reglum sem settar eru í gjaldskrá þessari sbr. reglugerð staðfesta af iðnaðarráðherra nr. 252/2001, með síðari breytingum fyrir Hitaveitu Gríms­nes- og Grafningshrepps.

2. gr.

Hitaveitan lætur hverju húsi, sem er í sambandi við vatnsæðar hennar í té vatnsmagn, er ætla má að nægi til hitunar á húsinu. Hitaveitan lætur setja rennslismæli eða stillanlegan hemil fyrir hámarksrennsli til hvers upphitunarkerfis og miðast gjald hitaveitunnar fyrir selda orku við rúmmetra samkvæmt rennslismælinum eða það hámark, sem hemillinn er stilltur á. Hitaveitan ræður gerð rennslis-mæla og hemla og sér um viðhald og endur­nýjun þeirra.

3. gr.

Einungis starfsmenn hitaveitunnar mega breyta stillingu innsiglaðra tengihluta. Hitaveitan breytir stillingu hemils eftir óskum húseiganda fyrir árið, sem hús hans er tengt við hitaveitukerfið, en síðan verður hemilsstillingu að jafnaði breytt einu sinni á ári og skal skrifleg beiðni um breytingu koma fram við hitaveituna fyrir 1. september ár hvert. Hámarksstilling hemils gildir allt árið þótt vatnsnotkun verði minni hluta úr ári. Minnsta sala gegnum hemil skal vera 3 l/mín. Selt vatnsmagn standi ávallt á heilum lítra. Ef kaupandi óskar að hemill eða mælir sé prófaður skal hann senda skriflega beiðni þar um til hitaveitunnar. Komi í ljós við þá athugun að frávik sé 5% eða minna, er heimilt að gera kaupanda að greiða álestrargjald. Sé frávik meira skal hitaveitan greiða kostnað við prófunina og leiðrétta reikning kaupanda í samræmi við niðurstöður hennar, þó ekki fyrir lengra tímabil en tvo mánuði nema kaupandi eða hitaveitan, eftir því sem við á, geti sannað að um lengra tímabil hafi verið að ræða, þó lengst fjögur ár.

II. KAFLI

4. gr.

Hitaveita Grímsnes- og Grafningshrepps rekur tvö hitaveitusvæði með aðskildum dreifi­kerfum. Þessi svæði eru annars vegar á og við Borgarsvæðið með vatn frá Vaðnesi, hins vegar austari hluti Grímsness, með vatn frá Kringlu.

5. gr.

Verðskrá:

A. Hemlagjald (varmagjald):

Fyrir sumarbústaði, snjóbræðslukerfi og notkun samkvæmt sérsamningum skal greiða hemlagjald.Lágmarksstilling er 3,0 l/mín. Hemlagjald fyrir hvern mínútulítra er kr. 2.279.

B. Eldri samningar:

Þar sem vatnið er keypt skv. hemli beint úr stofnlögn er gjald fyrir hvern mínútulítra kr. 2.033.

C. Rúmmetragjald skv. mæli:

Almennt íbúðar- og iðnaðarhúsnæði og gróðurhús greiða varmagjald. Varmagjald fyrir hvern rúmmetra vatns er kr. 108,40.

Sumarbústaður sem er með mæli og greiðir skv. rúmmetragjaldi skal þó aldrei greiða minna en sem nemur 3,0 l/mínútu eða sem nemur kr. 6.837 á mánuði, sbr. A-lið 5. gr.

Mælagjald á mánuði:

 

C1 Stærð mælis/hemils DN 15

1.087 kr.

 

C2 Stærð mælis/hemils DN 20

1.553 kr.

 

C3 Stærð mælis/hemils DN 25

1.921 kr.

 

C4 Stærð mælis/hemils DN 32

2.289 kr.

 

C5 Stærð mælis/hemils DN 40

2.659 kr.

 

C6 Stærð mælis/hemils DN 50

3.639 kr.

D. Stofngjöld:

Í þéttbýli sér sveitarfélagið um frágang heimæða að mæli.

 

D1

Íbúðarhús allt að 300 m³ og gróðurhús allt að 200 m³

kr.

580.192

 
  

Fyrir hvern rúmmetra/fermetra þar yfir skal greiða

 

220

 kr./m³

 

D2

Vélageymslur og gripahús allt að 300 m³

kr.

337.265

 
  

Fyrir hvern rúmmetra fermetra þar yfir skal greiða

 

220

 kr./m³

 

D3

Fyrir sumarhús

   
  

Stofngjald fyrir húsveitu

kr.

580.192

 
 

D4

Gjald fyrir auka mælagrind

kr.

86.565

 

Auk stofngjalds, sem að framan greinir, skal greiða 4.335 kr. fyrir hvern lengdarmetra heimæðar frá stofnæð.

E. Önnur gjöld:

 

Lokunargjald

kr.

16.600

 

Aukaálestur

kr.

7.600

6. gr.

Hitaveitugjöld skv. 5. gr. verða krafin þriðja hvern mánuð og skulu þau greiðast til skrifstofu Hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps, í bönkum eða pósthúsum. Gjalddagi er við framvísun reiknings eða tilkynningar um reikningsupphæð. Það eru vanskil, ef gjöldin eru ekki að fullu greidd innan 15 daga frá gjalddaga.

Sé um óskipulagt svæði að ræða, eða aðstæður óvenjulegar, er heimilt að krefjast sérstaks aukagjalds af húsráðanda eða gera honum að greiða fyrir heimtaugina skv. kostnaði, en gera skal honum aðvart um það fyrirfram.

7. gr.

Gjöld skv. 5. gr. eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar. Er veitustjórn heimilt að breyta þeim í samræmi við þær breytingar, sem á nefndri vísitölu verða.

III. KAFLI

8. gr.

Öll gjöld skv. gjaldskrá þessari má taka lögtaki/fjárnámi á kostnað gjaldanda, sbr. 28. gr. reglugerðar fyrir Hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps og 79. gr. laga nr. 58/1967 með síðari breytingum.

9. gr.

Hitaveita Grímsnes- og Grafningshrepps hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð notanda, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með fimm daga fyrirvara, sbr. 27. gr. reglugerðar fyrir Hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps.

Allan raunkostnað við lokun og opnun á ný greiðir sá, sem í vanskilum er.

Eftirlitsmanni hitaveitunnar skal veittur hvenær sem er frjáls aðgangur að öllum hita­kerfum, sem tengd eru við hitaveituna. Er húseiganda skylt að hlíta tafarlaust fyrir­mælum hans um viðgerð á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn mis­notkun á heita vatninu.

Við gjaldskrána bætist virðisaukaskattur.

10. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps þann 20. nóvember 2014, staðfestist hér með samkvæmt orkulögum, nr. 58/1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi 1. janúar 2015 og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis nr. 1192/2013.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. desember 2014.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2014