1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglnanna:
- Í stað orðanna „grunn- og meistarastigi“ í 1. mgr. kemur: grunn-, meistara- og doktorsstigi.
- 2. málsliður 2. mgr. fellur brott.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglnanna:
- Í stað orðanna „gerir tillögu“ í 1. mgr. kemur: veitir umsögn til rektors.
- Í stað „16. gr.“ í 1. mgr. kemur: 17. gr.
- Í stað orðsins „stundakennurum“ í 2. mgr. kemur: deildarfundi.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglnanna:
- Í stað „17. gr.“ í 1. mgr. kemur: 18. gr.
- 2. mgr. orðast svo: Í deildaráði eiga sæti auk forseta fræðasviðs, staðgengill hans, deildarformenn, brautarstjórar, tveir fulltrúar kennara í hverri deild, valdir af deildarfundi til tveggja ára í senn og einn fulltrúi nemenda í hverri deild tilnefndur af félagssamtökum þeirra til eins árs í senn.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „tveggja“ í 3. mgr. kemur: fjögurra.
- Í stað „15. gr.“ í 4. gr. reglnanna kemur: 16. gr.
- Í stað „14. gr.“ í 4. gr. reglnanna kemur: 15. gr.
5. gr.
3. mgr. 5. gr. reglnanna fellur brott.
6. gr.
1. málsliður 2. mgr. 6. gr. reglnanna orðast svo: Sæti í deild og þar með seturétt og tillögurétt á deildarfundum eiga aðjúnktar, lektorar, dósentar og prófessorar sem ráðnir eru í stöðu við deildina, einn fulltrúi stundakennara við deildina tilnefndur af deildarfundi til eins árs í senn og tveir fulltrúar nemenda sem tilnefndir eru af félagssamtökum þeirra til eins árs í senn og einn fulltrúi doktorsnema, valinn af doktorsnemum við deildina til eins árs í senn.
7. gr.
Orðin „og tölvunarfræði“ í 2. mgr. 8. gr. reglnanna falla brott.
8. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar voru af háskólaráði, eru settar með heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, með síðari breytingum, sbr. einnig 14. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009, öðlast þegar gildi.
Háskólanum á Akureyri, 25. júní 2020.
Eyjólfur Guðmundsson rektor.
|