Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 867/2020

Nr. 867/2020 21. ágúst 2020

AUGLÝSING
um breytingu á gjaldskrá fyrir heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlit á svæði Heilbrigðiseftirlits Norðurlandssvæðis eystra, nr. 670/2009.

1. gr.

1. og 2. mgr. 2. gr. gjaldskrárinnar orðist svo:

Tímagjald kr. 14.500
Gjald fyrir rannsókn á hverju sýni m.t.t. örvera og eðlisþátta kr. 23.000
Gjald fyrir flutning (dráttargjald) á skráningarskyldum ökutækjum án skráningarmerkja, tækjum, kerrum, vinnuvélum, bátum og lausa­mun­um skv. samþykkt nr. 463/2002 um umgengni og þrifnað utanhúss á starfs­svæði heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis eystra kr. 25.000
Gjald fyrir geymslu (geymslugjald) á skráningarskyldum ökutækjum án skráningarmerkja, tækjum, kerrum, vinnuvélum, bátum og lausa­mun­um skv. samþykkt nr. 463/2002 um umgengni og þrifnað utan­húss á starfs­svæði heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis eystra kr.   1.000 á dag

 

2. gr.

3. gr. gjaldskrárinnar orðist svo:

Af starfsleyfisskyldri starfsemi, er aðildarsveitarfélögum heimilt að innheimta gjald fyrir starfsleyfi eins og hér segir:

Endurnýjun starfsleyfis:  
  Starfsleyfisgjald eitt og hálft tímagjald
  og auglýsingakostnaður ef við á  
   
Ný starfsemi:  
  Starfsleyfisgjald eitt og hálft tímagjald
  og eftirlitsgjald viðkomandi fyrirtækjaflokks  
  ásamt auglýsingagjald ef við á  
   
Önnur starfsleyfi sem ekki eru í eftirlitsáætlun:  
  Starfsleyfisgjald eitt og hálft tímagjald
  og gjald skv. reikningi vegna undirbúnings, ferðar,  
  úttektar og frágangs ásamt auglýsingakostnaði ef við á  

 

3. gr.

Gjald skv. viðauka gjaldskrárinnar orðist svo:

  1. flokkur kr. 7.883
  2. flokkur kr. 15.765
  3. flokkur kr. 31.531
  4. flokkur kr. 47.968
  5. flokkur kr. 60.538
  6. flokkur kr. 88.731
  7. flokkur kr. 110.172
  8. flokkur kr. 129.091
  9. flokkur kr. 163.588
10. flokkur kr. 217.004
11. flokkur kr. 245.199
12. flokkur kr. 270.420

 

4. gr.

Gjaldskrárbreyting þessi er samin með heimild samkvæmt 12. gr. laga um hollustuhætti og meng­unarvarnir nr. 7/1998 með síðari breytingum, samkvæmt 21. gr. laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003 með síðari breytingum, samkvæmt 25. gr. laga um matvæli nr. 93/1995 með síðari breyt­ingum og samkvæmt 8. gr. laga um tóbaksvarnir nr. 6/2002 með síðari breytingum. Gjaldskrár­breytingin var samþykkt í heilbrigðisnefnd þann 17. september 2019 og öðlast gildi við birtingu auglýs­ingar­innar.

 

Akureyri, 21. ágúst 2020.

 

Alfreð Schiöth,
framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlandssvæðis eystra.


B deild - Útgáfud.: 4. september 2020