Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 599/2016

Nr. 599/2016 30. júní 2016

GJALDSKRÁ
Hitaveitu Húnaþings vestra.

1. gr.

Hitaveita Húnaþings vestra selur heitt vatn úr hitaveitukerfum þeim, sem gerð hafa verið eða kunna að verða gerð í lögsagnarumdæmi sveitarfélagsins Húnaþings vestra og hún hefur umráðarétt yfir eftir þeim reglum, sem settar eru í gjaldskrá þessari, sbr. reglugerð nr. 1192/2012 með síðari breytingum staðfesta af iðnaðarráðherra fyrir Hitaveitu Húnaþings vestra.

2. gr.

Hitaveita Húnaþings vestra lætur hverju húsi, sem er í sambandi við vatnsæðar hennar í té vatnsmagn, er ætla má að nægi til hitunar á húsinu. Hitaveitan lætur setja rennslismæli, orkumæli eða stillanlegan hemil fyrir hámarksrennsli til hvers upphitunarkerfis og miðast gjald hitaveitunnar fyrir selt heitt vatn við rúmmetra samkvæmt rennslismælinum, orkuinnihaldi eða það hámark, sem hemillinn er stilltur á. Hitaveitan ræður gerð rennslismæla, orkumæla og hemla og sér um viðhald og endurnýjun þeirra.

3. gr.

Einungis starfsmenn hitaveitunnar mega breyta stillingu innsiglaðra tengihluta.

Hitaveitan breytir stillingu hemils eftir óskum húseiganda fyrsta árið, sem hús hans er tengt við hitaveitukerfið, en síðan verður hemilsstillingu að jafnaði breytt einu sinni á ári og skal skrifleg beiðni um breytingu koma fram við hitaveituna fyrir 1. september ár hvert. Hámarksstilling hemils gildir allt árið þótt vatnsnotkun verði minni hluta úr ári. Minnsta sala gegnum hemil skal vera 1,5 mínútulítrar. Selt vatnsmagn standi ávallt á heilum eða hálfum mínútulítra.

Ef kaupandi óskar að hemill eða mælir sé prófaður skal hann senda skriflega beiðni þar um til hitaveitunnar. Komi í ljós við þá athugun að frávik sé 5% eða minna, er heimilt að gera kaupanda að greiða álestrargjald. Sé frávik meira skal hitaveitan greiða kostnað við prófunina og leiðrétta reikning kaupanda í samræmi við niðurstöður hennar, þó ekki fyrir lengra tímabil en tvo mánuði nema kaupandi eða Hitaveita Húnaþings vestra, eftir því sem við á, geti sannað að um lengra tímabil hafi verið að ræða, þó lengst fjögur ár.

4. gr.

Hitaveita Húnaþings vestra rekur 4 aðskilin hitaveitusvæði og dreifikerfi með vatni sem hefur mismunandi hita eftir svæðum.

Þessi svæði eru:

a) á Hvammstanga og í dreifbýli við Miðfjörð, Hrútafjörð og í Víðidal,
b) á Laugarbakka í Miðfirði,
c) á Reykjatanga við Hrútafjörð og
d) á Borðeyri.

Gjald fyrir einingu af heitu vatni (m³, rennslismælir, eða l/mín, hemill) verður því mishátt eftir svæðum en þar sem innheimt er eftir orkumæli (kr./kwst.) er gjald fyrir einingu miðað við orku­innihald og það sama á öllum svæðum. Viðmiðunarhitastig á bakrás orkumælingar er 30°C.

5. gr.

Gjöld fyrir afnot af hitaveituvatninu eru sem hér segir:

a) Orkugjald, skv. orkumæli kr. 2,90  pr. kwst.
b) Hvammstangaveita, skv. mæli kr. 124  pr. m³
c) Laugarbakkaveita, skv. mæli kr. 99  pr. m³
d) Reykjatangaveita, skv. mæli kr. 99  pr. m³
e) Borðeyrarveita kr. 99  pr. m³
f) Hvammstangaveita, skv. hemli kr. 2.642  pr. mín.lítra
g) Laugarbakkaveita, skv. hemli kr. 2.035  pr. mín.lítra
h Reykjatangaveita, skv. hemli kr. 2.035  pr. mín.lítra
i) Fastagjald hemils eða mælis, allar veitur      
  A 15 mm   14.597  kr./ár
  B 20-25 mm   28.444  kr./ár
  C 32-50 mm   60.893  kr./ár
  D 65 mm og stærri   83.127  kr./ár
j) Vatnsgjald, skv. mæli, fyrir gróðurhús   21  kr. pr. m³
k) Vatnsgjald, skv. mæli, fyrir sundlaugar, skal vera 25% af taxta viðkomandi veitna      
l) Lokunargjald kr. 4.400   

6. gr.

Heimæðargjald Hitaveitu Húnaþings vestra skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð í þéttbýli:

  Þvermál pípu stál Þvermál pípu plast Heimæðargjald Viðmiðunarstærðir húsnæðis  
  20 mm 25 mm kr. 280.159 allt að 1.200 m³
  25 mm 32 mm kr. 411.726 1.200-2.600 m³
  32 mm 40 mm kr. 624.054 2.600-4.000 m³
  40 mm 50 mm kr. 1.153.550 4.000-10.000 m³

Ef um sverari heimæðar er að ræða skal semja um það sérstaklega.

Lengdargjald í þéttbýli, greiða skal fyrir hvern metra umfram 25 metra innan lóðarmarka, 4.376 kr./m.

Stofngjald fyrir hvern aðrennslismæli umfram einn á sama inntak er kr. 38.748.

Heimæðargjald Hitaveitu Húnaþings vestra í dreifbýli, frávik og breytingar. Gjöld fyrir hita­veitu­lagnir í dreifbýli og aðrar stærðir heimæða en um getur að ofan svo og fyrir breytingar greiðist samkvæmt skriflegu tilboði hverju sinni.

Sé um óskipulagt svæði að ræða, eða aðstæður óvenjulegar, er heimilt að krefjast sérstaks auka­gjalds af húsráðanda eða gera honum að greiða fyrir heimtaugina samkvæmt kostnaði, en gera skal honum aðvart um það fyrirfram.

7. gr.

Heimæðargjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar október 2012 577,1 stig. Hitaveitunni er heimilt að breyta heimæðagjöldum þessum í samræmi við breyt­ingu á nefndri vísitölu.

8. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka fjárnámi á kostnað gjaldanda skv. 79. gr. laga nr. 58/1967, með síðari breytingum.

9. gr.

Hitaveita Húnaþings vestra hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð notanda, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með fimm daga fyrirvara. Allan kostnað af lokun og opnun greiðir sá sem vanskilum veldur hverju sinni.

Eftirlitsmanni Hitaveitu Húnaþings vestra skal, hvenær sem er, frjáls aðgangur að öllum hitakerfum, sem tengd eru við hitaveituna. Er húseiganda skylt að hlíta tafarlaust fyrirmælum hans um viðgerð á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn misnotkun á heita vatninu. Við gjaldskrána bætist virðisaukaskattur eins og hann er samkvæmt lögum á hverjum tíma.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar þann 14. apríl 2016, staðfestist hér með samkvæmt orkulögum, nr. 58/1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 5/2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. júní 2016.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Helga Halldórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 4. júlí 2016