Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1232/2019

Nr. 1232/2019 1. desember 2019

GJALDSKRÁ
Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar.

Gjaldskrá fyrir Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar er byggð á lögum nr. 32/2004, um vatnsveitur sveitar­félaga, ásamt síðari breytingum og reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005.

1. gr.

Vatnsgjald.

Hafi vatnsveita verið tengd við mannvirki á fasteign ber að greiða af henni árlegt vatnsgjald til Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar og skal það vera eftirfarandi:

  a) Vatnsgjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 4.798,66 kr. pr. íbúð og 176,12 kr. pr. fer­metra húss.
  b) Vatnsgjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 14.690,73 kr. pr. eign og 194,22 kr. pr. fermetra húss.
  c) Árleg vatnsgjöld fyrir sveitabýli, eitt íbúðarhús og útihús á sömu kennitölu skulu vera eitt fastagjald og fullt fermetragjald af íbúðarhúsinu og 1/2 fermetragjald af öðrum húsum.
  d) Álagning skv. a-, b- og c-lið skal þó aldrei vera meiri en 0,4% eða minni en 0,1% af fast­eignamati allra húsa og lóða.

2. gr.

Gjalddagar.

Gjalddagar vatnsgjalds skulu vera þeir sömu og gjalddagar fasteignaskatta og greiðist vatns­gjaldið með fasteignasköttum.

3. gr.

Aukavatnsgjald.

Auk vatnsgjalds, skulu fyrirtæki og aðrir, er nota vatn til annars en heimilisþarfa, greiða auka­vatnsgjald sem hér segir:

Aukavatnsgjald kr./m³
fyrstu 100.000 m³ 30,34
100.000 - 250.000 m³ 27,55
eftir 250.000 m³ 25,12

Aukavatnsgjald skal innheimta samkvæmt mæli sem Vatnsveita Dalvíkurbyggðar leggur til.

4. gr.

Mælaleiga.

Greiðendur aukavatnsgjalds skulu á tveggja mánaða fresti greiða mælagjald vegna leigu á vatns­mælum sem hér segir:

Stærð mælis Mælagjald í kr. á dag
að 32 mm 13,72
40 mm 13,72
50 mm 16,28
80 mm 39,15
100 mm 70,70

5. gr.

Heimæðagjald.

Þvermál inntaks Inntaksgjald kr. Yfirlengd
25 mm     210.235  9.864 kr./m
32 mm     303.672  9.864 kr./m
40 mm     385.430  9.864 kr./m
50 mm     513.907  9.864 kr./m
63 mm     724.141  9.864 kr./m
75 mm   1.027.813   9.864 kr./m
90 mm   1.518.360   9.864 kr./m

Yfirlengd reiknast af heimtaug sem er lengri en 50 metrar í lóð viðkomandi mannvirkis. Heim­æðar 110 mm og víðari greiðast samkvæmt reikningi. Heimæðargjald er miðað við vísitölu bygg­ingar­kostnaðar 1. september 2016, 131,6 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu.

6. gr.

Ábyrgð á greiðslu gjalda.

Eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu vatnsgjalds og heimæðargjalds, en notandi, ef hann er annar en eigandi, ber ábyrgð á greiðslu aukavatnsgjalda og leigugjalda. Vatnsgjald og heim­æðar­gjald nýtur aðfararheimildar skv. 9. gr. laga nr. 32/2004. Vatnsgjald og heimæðargjald, ásamt vöxtum og áföllnum kostnaði, nýtur lögveðsréttar í fasteign eiganda næstu 2 ár eftir gjalddaga, með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfaraveði. Aukavatnsgjald og leigugjald, ásamt áföllnum kostn­aði og vöxtum, má taka fjárnámi.

7. gr.

Gjaldskrá þessi sem samþykkt er af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar þann 29. nóvember 2019, er sett með stoð í 10. gr. laga nr. 32/2004 um vatnsveitur sveitarfélaga og 11. gr. reglugerðar nr. 401/2005 um vatnsveitur sveitarfélaga.

Gjaldskráin gildir frá og með 1. janúar 2020. Jafnframt fellur brott eldri gjaldskrá nr. 1080/2016.

Dalvíkurbyggð, 1. desember 2019.

Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 23. desember 2019