Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1544/2022

Nr. 1544/2022 14. desember 2022

GJALDSKRÁ
fyrir sorphirðu og förgun úrgangs í Hörgársveit.

1. gr.

Sveitarstjórn Hörgársveitar hefur ákveðið, sbr. heimild í samþykkt um sorphirðu sveitarfélaga á Norðurlandi eystra nr. 541/2000, að leggja á sorpgjald í sveitarfélaginu samkvæmt gjaldskrá þessari. Gjaldið skal innheimt með fasteignagjöldum.

 

2. gr.

Sorpgjald heimila er kr. 65.580. Sorpgjald frístundahúsa er kr. 20.435, sem tekur mið af því að þjónusta er ekki veitt að vetri til (1. október – 30. apríl). Sorpgjald búrekstrar er 130 kr. fyrir hverja sauðkind, 515 kr. fyrir hvert hross, 705 kr. fyrir hvert svín og 715 kr. fyrir hvern nautgrip.

 

3. gr.

Gjaldskrá þessi sem var samþykkt í sveitarstjórn Hörgársveitar 30. nóvember 2022 er sett samkvæmt ákvæðum 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 með síðari breyt­ingum. Gjaldskráin tekur þegar gildi og fellur á sama tíma úr gildi gjaldskrá nr. 1750/2021 fyrir sorp­hirðu og förgun úrgangs í Hörgársveit.

Samkvæmt 8. gr. samþykktar um sorphirðu sveitarfélaga á Norðurlandi eystra nr. 541/2000 með síðari breytingu veitti Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra umsögn um gjaldskrána 14. desember 2022.

 

Hörgársveit, 14. desember 2022.

 

Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2022