Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1571/2023

Nr. 1571/2023 21. desember 2023

AUGLÝSING
um staðfestingu reglna Þingvallanefndar um gestagjöld innan þjóðgarðsins á Þingvöllum fyrir veitta þjónustu og dvöl þar.

Með vísan til 1. mgr. 7. gr. laga nr. 47/2004, um þjóðgarðinn á Þingvöllum, sbr. e-lið 6. gr. reglu­gerðar nr. 848/2005, hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra staðfest reglur Þingvalla­nefndar um gestagjöld innan þjóðgarðsins á Þingvöllum fyrir veitta þjónustu og dvöl þar, sem birtar eru sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.

Auglýsingin öðlast gildi 1. janúar 2024. Frá sama tíma fellur úr gildi auglýsing nr. 659/2018 um staðfestingu reglna Þingvallanefndar um gestagjöld innan þjóðgarðsins á Þingvöllum fyrir veitta þjónustu og dvöl þar.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 21. desember 2023.

 

F. h. r.

Stefán Guðmundsson.

Ólafur Darri Andrason.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 28. desember 2023