FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt: Forsætisráðherra hefur tjáð mér, að vegna þess mikla efnahagsáfalls, sem þjóðin hefur orðið fyrir, hafi þeir flokkar sem nú standa að ríkisstjórninni orðið ásáttir um við myndun hennar að efna sem fyrst til almennra alþingiskosninga. Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með vísan til 24. gr. stjórnarskrárinnar, nr. 33/1944, eins og henni var breytt með 5. gr. stjórnarskipunarlaga nr. 56/1991, sbr. 21. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, er með skírskotun til framanritaðs ákveðið að þing verði rofið 25. apríl 2009 og að almennar kosningar til Alþingis fari fram sama dag. Gjört á Bessastöðum, 13. mars 2009. Ólafur Ragnar Grímsson. (L. S.) Jóhanna Sigurðardóttir. |