Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 190/2020

Nr. 190/2020 19. febrúar 2020

SAMÞYKKT
um stjórn sameinaðs sveitarfélags Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar.

I. KAFLI

Um skipan sveitarstjórnar, sjálfstjórn hennar og verkefni sveitarfélagsins.

1. gr.

Skipan sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn sveitarfélagsins er skipuð ellefu fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna.

 

2. gr.

Sjálfstætt stjórnvald.

Sveitarfélagið er sjálfstætt stjórnvald, sem er stjórnað af lýðræðislega kjörinni sveitarstjórn í umboði íbúa sveitarfélagsins.

 

3. gr.

Verkefni sveitarfélagsins.

Sveitarfélagið annast þau lögmæltu verkefni sem því eru falin í lögum, sbr. og leiðbeinandi aug­lýs­ingu frá ráðuneytinu.

Sveitarfélagið vinnur að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum tíma.

Sveitarfélaginu er heimilt að taka að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa þess, enda sé það ekki falið öðrum að lögum.

 

II. KAFLI

Um sveitarstjórn.

4. gr.

Hlutverk sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn fer með stjórn sveitarfélagsins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, með síðari breytingum, annarra laga og samþykkt þessari.

Sveitarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur og ráðstöfun eigna og um framkvæmd verkefna sveitarfélagsins.

 

5. gr.

Verkefni sveitarstjórnar.

Meðal verkefna sveitarstjórnar er:

  1. Að sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að fylgt sé viðeigandi reglum í störfum sveitarfélagsins.
  2. Að kjósa forseta og varaforseta sveitarstjórnar, sbr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga, byggðarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla sveitarstjórnarlaga, að ráða löggiltan endur­skoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun hjá sveitarfélaginu, sbr. VII. kafla sveitarstjórnarlaga.
  3. Að setja sveitarstjórn siðareglur, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
  4. Að ákveða stjórnskipan sveitarfélagsins, ráða sveitarstjóra, sbr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga.
  5. Að móta stefnu fyrir starfsemi sveitarstjórnar, deilda og stofnana, setja starfsemi sveitar­stjórnar reglur, setja samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  6. Að fara með fjárstjórnarvald sveitarfélagsins, sbr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga og gera fjár­hags­áætlanir, sbr. 62. gr. sömu laga.
  7. Að bera ábyrgð á fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja, sbr. 77. gr. sveitarstjórnarlaga og VIII. kafla samþykktar þessarar og taka ákvarðanir um verulegar skuldbindingar sveitarfélagsins til lengri tíma.
  8. Að hafa eftirlit með framkvæmd samstarfsverkefna og þjónustusamninga, sbr. IX. kafla sveitarstjórnarlaga.
  9. Að veita íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess upplýsingar um málefni sem snerta hagi þeirra og um samstarf sem sveitarfélagið hefur við önnur sveitarfélög, sbr. 103. gr. sveitarstjórnarlaga.
  10. Sveitarstjórn staðfestir samþykktir fyrir nefndir, ráð og stjórnir þar sem kveðið er á um hlut­verk þeirra, valdsvið, starfshætti og framsal til fullnaðarákvörðunar og starfshætti þeirra í samræmi við lög, reglugerðir og almennar samþykktir sveitarstjórnar.

 

6. gr.

Ný sveitarstjórn tekur til starfa.

Nýkjörin sveitarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag. Jafnlengi heldur fráfarandi sveitar­stjórn umboði sínu, með þeim takmörkunum sem leiðir af lögum um kosningar til sveitar­stjórna. Nýkjörin sveitarstjórn hefur einungis umboð til töku ákvarðana um málefni sveitarstjórnar­innar eða sveitarfélagsins eftir að hún tekur við störfum.

Sá fulltrúi í nýkjörinni sveitarstjórn sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórn boðar til fyrsta fundar ekki síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar. Hann stýrir fundi þar til forseti hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar setið jafnlengi í sveitarstjórn fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari málsgrein.

Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.

 

7. gr.

Kjör forseta og varaforseta.

Á fyrsta fundi kýs sveitarstjórn forseta og tvo varaforseta. Skulu þeir kjörnir til eins árs í senn. Kjósa skal sérstaklega um 1. varaforseta og 2. varaforseta, með sama hætti og kjör forseta fer fram.

Njóti forseti eða varaforsetar ekki lengur stuðnings sveitarstjórnar skal kjósa í þau embætti að nýju. Hið sama á við ef forseti eða varaforseti forfallast varanlega eða fær lausn frá starfi. Tilkynna skal kosningu forseta og varaforseta til ráðuneytis þegar að því loknu.

Sá telst rétt kjörinn forseti sem fær atkvæði meiri hluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju. Við aðra umferð telst sá rétt kjörinn sem fær meiri hluta atkvæða þeirra fulltrúa sem sitja fundinn eða ef viðkomandi er sá eini sem fær atkvæði. Fáist ekki niðurstaða við aðra umferð skal kosið þriðja sinni en þá á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu við aðra umferð. Ef nauðsynlegt reynist skal varpa hlutkesti um það milli hverra tveggja verður kosið. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn ræður hlut­kesti.

Þegar að lokinni kosningu forseta skal kjósa varaforseta. Kosning varaforseta fer fram með sama hætti og forseta, enda fari ekki um kosningu hans skv. næstu málsgrein.

Sveitarstjórn kýs tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi kjörinna fulltrúa. Skrifarar skulu telja atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í sveitarstjórn.

Sé enginn forseti á fundi gegnir aldursforseti forsetastörfum nema sveitarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.

 

III. KAFLI

Fundir sveitarstjórnar og fundarsköp.

8. gr.

Fundir sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn skal á fyrsta fundi sínum ákveða fundardaga og fundartíma sveitarstjórnar fyrir kjör­tímabilið.

Aukafundi skal halda þegar forseti eða sveitarstjóri telur það nauðsynlegt eða ef þriðjungur sveitar­stjórnarfulltrúa óskar þess.

Sveitarstjórn er heimilt að fella niður reglulegan fund sinn, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mót­atkvæðalaust á næsta fundi sveitarstjórnar á undan.

Sveitarstjórn er heimilt að ákveða að tiltekinn reglulegur fundur eða aukafundur skuli fara fram á öðrum fundarstað í sveitarfélaginu, á öðrum degi eða öðrum fundartíma en áður hefur verið ákveðið.

Sveitarstjórn er heimilt að fella niður reglulega fundi sveitarstjórnar vegna leyfa sveitarstjórnar.

 

9. gr.

Boðun sveitarstjórnarfunda.

Sveitarstjóri í samráði við forseta sveitarstjórnar boðar sveitarstjórnarfundi.

Heimilt er að senda fundarboð og dagskrá rafrænt til fulltrúa í sveitarstjórn, aðalmanna og vara­manna. Fundarboðið og dagskrá ásamt fylgigögnum er þá aðgengilegt rafrænt í gegnum aðgang kjörinna fulltrúa á fundargátt sveitarfélagsins. Heimilt er að boða fundi byggðarráðs og fasta­nefnda rafrænt með sama hætti og boðun funda sveitarstjórnar.

Fundarboð skal berast sveitarstjórnarmönnum ekki síðar en tveimur sólarhringum fyrir fund.

Aukafund skal boða ekki síðar en tveimur virkum dögum eftir að ósk þar um barst þeim er boða skal fund. Fundarboð vegna aukafundar skal berast sveitarstjórnarmönnum svo fljótt sem auðið er og ekki síðar en sólarhring fyrir fund. Fundarboði skal fylgja dagskrá fundar og þau gögn sem eru nauðsynleg til að sveitarstjórnarmenn geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind.

 

10. gr.

Dagskrá sveitarstjórnarfundar.

Sveitarstjóri semur dagskrá sveitarstjórnarfundar í samráði við forseta og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar s.s. kosningar forseta sveitarstjórnar, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarstjórnar, svo og ráðningu sveitarstjóra og endurskoðanda.
  2. Fundargerðir byggðarráðs, heimastjórna, nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins.
  3. Ályktanir og tillögur sem fram koma í fundargerðum, sbr. 2. tölul. hér að framan og þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar, skal tilgreina sérstaklega í dagskrá.
  4. Önnur mál sem falla undir verksvið sveitarstjórnar og sveitarstjóri eða forseti ákveða að taka á dagskrá eða einhver sveitarstjórnarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá.

Sveitarstjórnarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal tilkynna það sveitarstjóra skriflega í tæka tíð til þess að unnt sé að taka það á dagskrá.

 

11. gr.

Tilkynning til íbúa um fundi sveitarstjórnar.

Í upphafi kjörtímabils sveitarstjórnar tekur sveitarstjórn ákvörðun um hvar og hvenær sveitar­stjórnarfundir eru haldnir, sbr. 8. gr. samþykktar þessarar, og skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitar­­félagsins með tryggum hætti.

Íbúum sveitarfélagsins skal kynnt með auglýsingu á vefsíðu sveitarfélagsins um fyrirhugaða fundi sveitarstjórnar ásamt dagskrá, innan sömu tímafresta og við á um sveitarstjórnarmenn, enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi.

 

12. gr.

Opnir fundir sveitarstjórnar.

Fundir sveitarstjórnar eru opnir. Þeir skulu jafnan sendir út í beinni útsendingu og birtir á vef sveitarfélagsins. Heimilt er að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls. Forseti eða sveitarstjórn getur jafnframt ákveðið að ræða fyrir luktum dyrum tillögu um lokun fundar.

Þrátt fyrir að fundi sé lokað er heimilt að ákveða að tilteknir starfsmenn sveitarfélagsins séu við­staddir. Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í sveitarstjórn.

 

13. gr.

Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.

Sveitarstjórn getur enga ályktun gert nema meira en helmingur sveitarstjórnarfulltrúa sé við­staddur á fundi, eða í fjarfundarbúnaði, sbr. 14. gr.

Á sveitarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæða­greiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.

 

14. gr.

Fjarfundarbúnaður.

Heimilt er að nota fjarfundarbúnað á sveitarstjórnarfundum, fundum byggðarráðs og annarra ráða og nefnda. Fulltrúar í sveitarstjórn skulu þó að jafnaði mæta á fundarstað, nema brýnar ástæður mæli með því að slíkur búnaður sé notaður. Sveitarstjórnarfulltrúi sem hyggst sækja fund í gegnum fjarfundarbúnað skal tilkynna það forseta eða formanni ráðs eða nefndar með nægjanlegum fyrir­vara.

Fulltrúum í byggðarráði og öðrum ráðum og nefndum er almennt heimilt að nota fjarfundar­búnað.

Til að sækja fjarfund er skilyrði að fulltrúi geti verið í fullnægjandi aðstöðu til að sækja fundinn.

Sveitarstjórn skal setja nánari reglur um framkvæmd fjarfunda, þar sem fjallað er um, kröfur til aðstöðu einstakra fulltrúa, kröfur til búnaðar, staðfestingu fundargerða og fleira.

 

15. gr.

Tvær umræður í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn skal hafa tvær umræður, með a.m.k. einnar viku millibili um:

  1. Samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra.
  2. Staðfestingu ársreiknings.
  3. Stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til sveitarfélagsins í heild eða meiri hluta þess.
  4. Tillögu um sameiningu við annað sveitarfélag skv. 2. mgr. 120. gr. sveitarstjórnarlaga.

Þá skal sveitarstjórn hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins skv. 57. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við fjárhagsáætlanir.

 

16. gr.

Fundarsköp og ritun fundargerða.

  1. Fundarstjórn. Forseti stjórnar umræðum á fundum sveitarstjórnar. Hann setur fund, kannar lög­mæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Hann sér um að fundargerðir séu færðar og að allar tillögur og ályktanir séu rétt og nákvæmlega bókaðar, svo og hverja afgreiðslu þær hljóta. Ritun fundargerðar skal vera í samræmi við aug­lýs­ingu um leiðbeiningar um ritun fundargerða sveitarstjórnar, nr. 22/2013. Undirritun fundar­manna sem sækja fjarfund skal gerð með rafrænum hætti.
    Forseti sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum sveitarstjórnar. Hann úrskurðar um skilning á fundarsköpum samkvæmt samþykkt þessari en skjóta má úrskurði hans til úrlausn­ar sveitarstjórnar. 
  2. Vald forseta. Skylt er sveitarstjórnarfulltrúa að lúta valdi forseta í hvívetna varðandi það að gætt sé góðrar reglu.
    Ef sveitarstjórnarfulltrúi ber aðra menn brigslum eða víkur verulega frá umræðuefninu skal for­seti víta hann. Ef sveitarstjórnarfulltrúi er víttur tvisvar á sama fundi getur forseti lagt til við sveitar­stjórn að hann verði sviptur málfrelsi það sem eftir er fundar. Skal sú tillaga afgreidd umræðulaust.
    Ef sveitarstjórnarfulltrúi hlýðnast ekki úrskurði forseta eða almenn óregla kemur upp á fundi skal forseti gera hlé um stundarsakir eða ef nauðsyn krefur fresta eða slíta fundi.
    Ef áheyrandi á sveitarstjórnarfundi raskar fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal. Leyfi forseta þarf til að taka myndir í fundarsal sveitarstjórnar. 
  3. Afgreiðsla mála. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í þeirri röð sem dagskrá kveður á um nema sveitarstjórn eða forseti ákveði að önnur röð skuli höfð. Forseti getur ákveðið að tiltekið mál í fundargerð sem er á dagskrá verði gert að sérstökum dagskrárlið á fundinum. Heimilt er að taka mál á dagskrá þótt ekki sé þess getið í fundarboði, enda samþykki 2/3 viðstaddra sveitarstjórnarfulltrúa þau afbrigði.
  4. Málfrelsi sveitarstjóra. Sveitarstjóri skal sitja fundi sveitarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í sveitarstjórn.
  5. Málfrelsi. Sveitarstjórnarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum sveitar­stjórnar.
    Sveitarstjórnarfulltrúi sem taka vill til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu menn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Heimilt er að víkja frá þessu ef um er að ræða sveitarstjóra eða framsögumann svo og sveitarstjórnarfulltrúa sem gera vill stutta athugasemd, bera af sér ámæli eða veita andsvar. Ef tveir eða fleiri kveða sér samtímis hljóðs ákveður forseti í hvaða röð þeir tala.
    Sveitarstjórnarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti leyfi annað. 
  6. Ávarp ræðumanns. Sveitarstjórnarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta.
    Sveitarstjórnarfulltrúi skal ávarpa einstaka sveitarstjórnarfulltrúa með fullu nafni.
    Þegar til umræðu er fundargerð skal ræðumaður taka fram hvaða lið í fundargerð hann óskar að ræða.
  7. Hve oft má tala. Sveitarstjórnarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó sveitarstjórnarfulltrúa að taka oftar til máls, til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athuga­semd um fundarstjórn forseta. Sveitarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (tals­maður flutningsmanna) mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls. Sveitar­stjóri hefur óbundið málfrelsi.
  8. Ræðutími. Ef forseti telur umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers sveitarstjórnarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á til­teknum tíma eða að umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver sveitarstjórnarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur. Sveitarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðu­laust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál meira en svo að hún standi skemur en í tvær klukku­stundir ef einhver sveitarstjórnarfulltrúi kveður sér hljóðs.
  9. Tillögur og afgreiðsla. Sveitarstjórnarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu í samræmi við almennar reglur um fundarsköp.
    Forseti sker úr því hvernig atkvæðagreiðslum um tillögur skuli hagað. 
  10. Réttur til bókunar. Þeir sem hafa rétt til að taka þátt í umræðum í sveitarstjórn eiga rétt á að fá bókaðar í fundargerð stuttar athugasemdir um afstöðu til þeirra mála sem til umræðu eru.
  11. Atkvæðagreiðsla. Atkvæðagreiðsla á sveitarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handa­upprétt­­ingu. Sveitarstjórnarfulltrúi greiðir atkvæði úr sæti sínu. Forseti biður þá sveitar­stjórnar­fulltrúa sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.
    Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.
    Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur fulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafna­skrá sveitarstjórnarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða sveitarstjórnar­fulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar fulltrúi, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða á móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.
    Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef sveitarstjórnarfulltrúi óskar og sveitarstjórn samþykkir. 
  12. Kosningar. Kosningar sem fara fram í sveitarstjórn, skv. 43. gr. sveitarstjórnarlaga, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar, sé þess óskað. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við forsetakjör. Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar.

 

17. gr.

Hæfi til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála.

Um hæfi sveitarstjórnarfulltrúa, nefndarfulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins til þátttöku í með­ferð eða afgreiðslu mála þar sem á, eða til greina kemur, að taka stjórnvaldsákvörðun skv. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gilda ákvæði stjórnsýslulaga. Þá verður starfsmaður sveitar­­félags­ins ekki vanhæfur vegna vanhæfis yfirmanns ef eðli máls eða uppbygging stjórnkerfis sveitar­­félagsins þykir ekki gefa tilefni til slíks.

Í öðrum tilvikum en skv. 1. mgr. ber sveitarstjórnarfulltrúa, nefndarfulltrúa eða starfsmanni sveitar­­félagsins að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána vensla­­menn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af.

Þessi regla tekur einnig til gerðar samninga fyrir hönd sveitarfélagsins. Að öðru leyti vísast til 20. gr. sveitarstjórnarlaga.

 

18. gr.

Varamenn í sveitarstjórn.

Varamenn taka sæti í þeirri röð sem þeir voru kosnir til sveitarstjórnar eða eftir samkomulagi sem aðilar að sameiginlegum framboðslista hafa komið sér saman um. Tilkynning um slíkt sam­komu­lag skal lögð fram í upphafi kjörtímabils og gildir hún til loka þess.

 

IV. KAFLI

Réttindi og skyldur sveitarstjórnar.

19. gr.

Skyldur sveitarstjórnarfulltrúa.

Sveitarstjórnarfulltrúa ber skylda til að taka þátt í öllum sveitarstjórnarfundum og fundum í nefndum og ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli.

Aðal- og varamönnum í sveitarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitar­félagsins, sem og til annarra trúnaðarstarfa á vegum sveitarfélagsins. Sá sem verið hefur for­seti heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan sveitarstjórnar jafnlangan tíma eða lengur getur skorast undan kosningu til þess starfs jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið með höndum. Ósk um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi nefnd eða trúnaðarstarf fer fram.

Hverjum sveitarstjórnarfulltrúa er skylt að inna af hendi störf sem sveitarstjórn felur honum og varða verkefni sveitarstjórnarinnar.

Sveitarstjórnarfulltrúar skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

 

20. gr.

Réttur sveitarstjórnarfulltrúa.

Sveitarstjórnarfulltrúar eru sjálfstæðir í störfum sínum. Þeir eru einungis bundnir af lögum og eigin sannfæringu um afstöðu til einstakra mála.

Sveitarstjórnarfulltrúi á rétt á að tekið verði á dagskrá sveitarstjórnarfundar hvert það málefni sem sérstaklega varðar hagsmuni sveitarfélagsins eða verkefni þess.

Mál sem ekki er tilgreint á boðaðri dagskrá sveitarstjórnarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á viðkomandi fundi án samþykkis 2/3 hluta fundarmanna.

Sveitarstjórnarfulltrúar hafa málfrelsi á fundum sveitarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í fundarsköpum sveitarstjórnar. Þeir hafa tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum sveitarstjórnar.

Vilji sveitarstjórnarfulltrúi ekki una úrskurði forseta um stjórn fundar og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til sveitarstjórnar sem sker úr án umræðna.

 

21. gr.

Aðgangur að gögnum.

Vegna starfa sinna í sveitarstjórn á sérhver sveitarstjórnarfulltrúi rétt á að kynna sér gögn og upplýsingar sem fyrir liggja í stjórnsýslu sveitarfélagsins og varða málefni sem komið geta til umfjöllunar í sveitarstjórn.

Sveitarstjórnarfulltrúi skal eiga eðlilegan aðgang að skrifstofum og stofnunum sveitarfélagsins í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi sveitarfélagsins og rekstur.

Óski kjörinn fulltrúi gagna skal hann beina því til sveitarstjóra og viðkomandi embættis­manns, sem veita honum afrit af gögnum og upplýsingum. Að jafnaði skal miðað við að aðgangur að umbeðnum gögnum sé veittur innan þriggja virkra daga frá því að beiðni barst.

Séu gögn viðamikil eða undanþegin upplýsingarétti almennings er heimilt að ákveða að afhend­ing gagna til skoðunar fari fram á þeirri skrifstofu þar sem gögnin eru vistuð. Afritun þeirra gagna er óheimil.

Varði málefni viðkvæma persónulega hagi einstaklings sem ekki er til umfjöllunar í sveitar­stjórn er heimilt að neita um afhendingu gagna og upplýsinga.

 

22. gr.

Siðareglur og góðir starfshættir.

Sveitarstjórnarfulltrúi skal í störfum sínum fara eftir þeim siðareglum sem sveitarstjórn setur sér, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.

 

23. gr.

Lausn frá störfum.

Telji sveitarstjórnarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum í sveitarstjórn án óhæfilegs álags, getur hann óskað eftir því við sveitarstjórn að hún:

  1. létti af honum störfum eða
  2. veiti honum lausn úr sveitarstjórn um tiltekinn fyrirframákveðinn tíma eða til loka kjör­tímabils.

Þegar sveitarstjórnarfulltrúi flytur úr sveitarfélaginu um stundarsakir má sveitarstjórn ákveða, að ósk hans, að hann skuli víkja úr sveitarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í sveitarfélaginu. Slík ákvörðun skal tekin áður en fulltrúi flytur um stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein missir fulltrúi kjörgengi við skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi.

Missi sveitarstjórnarfulltrúi kjörgengi skal hann víkja úr sveitarstjórn. Ef sveitarstjórnarfulltrúi missir fjárforræði skal sveitarstjórn veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

 

24. gr.

Boðun varamanna.

Þegar aðalmaður er vanhæfur til meðferðar máls í sveitarstjórn skal boða varamann hans til með­ferðar þess og afgreiðslu. Að afgreiðslu máls lokinni tekur aðalmaður sæti sitt á viðkomandi fundi á ný. Verði innköllun varamanns ekki við komið getur vanhæfur sveitarstjórnarfulltrúi krafist þess að umræðu og afgreiðslu máls verði frestað til næsta fundar. Frestun nær þó ekki fram að ganga ef 2/3 hlutar viðstaddra sveitarstjórnarfulltrúa greiða atkvæði gegn frestun eða ef frestun hefur í för með sér að gengið sé gegn lögbundnum afgreiðslutíma máls.

Þegar aðalmaður getur ekki mætt til fundar eða þarf að víkja af fundi af heilsufarsástæðum eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum tekur varamaður hans sæti í sveitarstjórn á þeim fundi. Aðal­maður skal tilkynna forföll til fundarboðanda skv. samþykkt þessari, eins fljótt og auðið er og óska eftir því að varamaður verði boðaður. Forföll samkvæmt þessari málsgrein taka ávallt til viðkomandi fundar í heild, eða til loka fundar sé um það að ræða.

Þegar fyrirséð er að aðalmaður í sveitarstjórn mun taka hlé frá störfum vegna atvika sem greinir í 2. mgr. í a.m.k. einn mánuð skal varamaður hans taka sæti í sveitarstjórninni frá og með næsta fundi, enda séu þá ástæður forfalla enn til staðar. Þegar forföllum lýkur tekur aðalmaður sæti sitt að nýju frá og með næsta fundi.

Þegar aðalmaður fellur frá, missir kjörgengi eða fær lausn frá starfi í sveitarstjórn skal varamaður hans taka sæti í sveitarstjórn frá og með næsta fundi. 

 

25. gr.

Þóknun o.fl.

Sveitarstjórnarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í sveitarstjórn. Ef um langan veg er að fara milli heimilis sveitarstjórnarfulltrúa og fundarstaðar sveitarstjórnar skal fulltrúi fá hæfilega greiðslu vegna ferðakostnaðar. Takist sveitarstjórnarfulltrúi á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnarinnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.

Sveitarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

Sveitarstjórnarfulltrúi má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar greinar.

 

26. gr.

Réttindi og skyldur varamanna.

Ákvæði þessa kafla, um réttindi og skyldur sveitarstjórnarfulltrúa, eiga einnig við um varamenn þegar þeir taka sæti í sveitarstjórn.

 

V. KAFLI

Byggðarráð.

27. gr.

Kosning byggðarráðs.

Sveitarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa fimm aðalmenn í byggðarráð til eins árs í senn. Aðalmenn í sveitarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í byggðar­ráð, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga. Varamenn af sama framboðslista og hinn kjörni byggðar­ráðs­­maður verða varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann þegar kosið var til sveitarstjórnar. Sveitarstjórn kýs formann og varaformann byggðarráðs úr hópi kjörinna byggðar­ráðs­manna.

Kosning í byggðarráð skal vera leynileg og bundin hlutfallskosning sé þess óskað.

Starfsmaður byggðarráðs annast fundarritun. Um ritun fundargerða byggðarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitarstjórnar.

 

28. gr.

Fundartími byggðarráðs.

Byggðarráð skal að jafnaði halda fjóra fundi mánaðarlega, vikulega á hefðbundnum dagvinnu­tíma.

Aukafundi skal halda ef sveitarstjóri sveitarfélagsins, formaður byggðarráðs eða aðalfulltrúi í byggðarráði óskar þess.

 

29. gr.

Boðun funda byggðarráðs.

Sveitarstjóri undirbýr byggðarráðsfundi í samráði við formann byggðarráðs.

Hann sér um að byggðarráð sé boðað til fundar með rafrænu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. tveimur sólarhringum fyrir fund.

Geti byggðarráðsmaður ekki sótt fund skal hann tilkynna sveitarstjóra um forföll og óska eftir því að varamaður verði boðaður.

 

30. gr.

Stjórnun byggðarráðs.

Formaður byggðarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar byggðarráðsins.

Heimilt er að taka mál til meðferðar í byggðarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver byggðarráðsmanna óskar þess.

Byggðarráðsfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina frá ummælum einstakra fundarmanna á fundum utan þeirra. Sérstaklega skal gætt að þessu við gerð reglna um fjar­fundi skv. 14. gr. samþykktar þessarar.

Skylt er starfsmönnum sveitarfélagsins að sitja fundi byggðarráðs ef þess er óskað. Heimilt er að boða aðra á fundi byggðarráðs til viðræðna um tiltekin mál.

 

31. gr.

Áheyrnarfulltrúar í byggðarráði.

Hafi sveitarstjórn verið kjörin bundinni hlutfallskosningu og einhver framboðsaðili sem fulltrúa á í sveitarstjórn nær ekki kjöri í byggðarráð, er fulltrúum þessa aðila heimilt að tilnefna áheyrnar­fulltrúa til þátttöku á fundum byggðarráðs. Um áheyrnarfulltrúa gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um aðra nefndarmenn.

Áheyrnarfulltrúar í byggðarráði skulu vera aðalmenn í sveitarstjórn, sbr. 3. mgr. 50. gr. sveitar­stjórnarlaga. Varamenn af sama framboðslista og áheyrnarfulltrúar verða varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann þegar kosið var til sveitarstjórnar.

 

32. gr.

Verkefni byggðarráðs.

Byggðarráð fer ásamt sveitarstjóra með framkvæmdastjórn og fjármálastjórn sveitarfélagsins að því leyti sem þessi mál eru ekki öðrum falin.

Byggðarráð hefur eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélagsins og fjármálastjórn þess, semur drög að fjárhagsáætlun og viðaukum við hana og leggur þau fyrir sveitarstjórn.

Þá sér byggðarráð um að ársreikningar sveitarfélagsins séu samdir reglum samkvæmt og lagðir fyrir sveitarstjórn til meðferðar og afgreiðslu.

Byggðarráð í umboði sveitarstjórnar semur kjörskrá vegna almennra kosninga, fjallar um athuga­semdir, gerir nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurðar um ágreiningsmál sem upp kunna að koma fram að kjördegi.

Byggðarráð fer með verkefni jafnréttisnefndar skv. 12. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.

Byggðarráð fer með atvinnu- og menningarmál, verkefni bókasafnsstjórnar skv. 8. gr. bóka­safna­laga nr. 150/2012, og húsnæðisnefndar skv. 6. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998.

Meðan sveitarstjórn er í leyfi fer byggðarráð með sömu heimildir og sveitarstjórn hefur ella. Sveitarstjórn getur falið byggðarráði fullnaðarafgreiðslu mála, nema lög mæli á annan veg.

 

33. gr.

Heimild byggðarráðs til fullnaðarákvörðunar.

Byggðarráði er heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag sveitarsjóðs eða stofnana hans, enda sé ekki ágreiningur innan ráðsins eða við sveitarstjóra um ákvörðunina. Verði ágreiningur um afgreiðslu mála í byggðarráði fer málið til afgreiðslu í sveitarstjórn og ber forseta að taka það þar til sérstakrar afgreiðslu.

Byggðarráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka skv. fjár­hags­áætlun, s.s. til gatnagerðar, nýbygginga og óvissra útgjalda.

Byggðarráð úrskurðar um heimild til endurupptöku mála sem hljóta afgreiðslu samkvæmt þessari grein með hliðsjón af 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

 

VI. KAFLI

Fastanefndir, ráð og stjórnir aðrar en byggðarráð.

34. gr.

Kosning í fastanefndir og kjörtímabil.

Sveitarstjórn kýs fulltrúa í ráð og nefndir eftir því sem fyrir er mælt í lögum og samþykkt þessari. Þó skulu íbúar taka þátt í kjöri á fulltrúum í heimastjórnir, sbr. 36. gr. samþykktarinnar. Slíkar nefndir teljast fastanefndir sveitarstjórnar.

Kjörtímabil fastanefnda og ráða er hið sama og sveitarstjórnar, nema annað leiði af lögum eða samþykkt þessari.

Að loknum sveitarstjórnarkosningum halda fastanefndir og ráð þó umboði sínu þar til nýkjörin sveitarstjórn hefur kjörið nýja nefnd eða ráð í þeirra stað en með sömu takmörkunum valdheimilda og fyrri sveitarstjórn sætti að afloknum kosningum, sbr. 12. gr. og 2. mgr. 37. gr. sveitar­stjórnar­laga.

 

35. gr.

Kosning og kjörgengi.

Kosningar í fastanefndir og ráð sveitarstjórnar, nefndir fyrir hluta sveitarfélagsins, nefndir til að fara með einstök verkefni eða málaflokka og aðrar nefndir og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef þess er óskað, sjá þó ákvæði 36. gr. um heima­stjórnir. Framkvæmd kosninga skal þá vera í samræmi við ákvæði 44. og 45. gr. sveitar­stjórnarlaga.

Ef ekki er kosið hlutfallskosningu til ráðs eða nefndar, sbr. 1. mgr. 43. gr., sveitarstjórnarlaga, skal sveitarstjórn gæta þess að fullnægja kröfum um kynjahlutfall skv. 2. tölul. 44. gr. laganna við skipun í viðkomandi ráð eða nefnd.

Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir sem hafa kosningarrétt í sveitarfélaginu, nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga.

Kosning í heimastjórnir fer eftir ákvæðum í 36. gr. samþykktarinnar.

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. Sveitarstjórn getur þó ákveðið að víkja frá þessu ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starfið er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum vegna nefndarsetu. 

 

36. gr.

Kosning og kjörgengi í heimastjórnir.

Kjósa skal til fjögurra heimastjórna sem fara með afmörkuð málefni og málaflokka í hluta sveitar­félagsins skv. 38. gr. sveitarstjórnarlaga. Heimastjórnir eru eftirfarandi:

  1. Heimastjórn Borgarfjarðar.
  2. Heimastjórn Djúpavogs.
  3. Heimastjórn Fljótsdalshéraðs.
  4. Heimastjórn Seyðisfjarðar.

Valdmörk hverrar heimastjórnar miðast við sveitarfélagamörk Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogs­hrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar eins og þeim er lýst á sveitarfélagakorti Land­mælinga Íslands frá maí 2014.

Heimastjórnir skulu skipaðar þremur fulltrúum.

Einn fulltrúi og annar til vara eru kjörnir af sveitarstjórn og skulu þeir vera aðalfulltrúar í sveitarstjórn. Kjör þeirra skal fara fram á sama fundi og sveitarstjórn kýs fulltrúa í fastanefndir og ráð skv. 48. gr. samþykktarinnar. Sveitarstjórn kýs formann úr hópi aðalmanna í heimastjórn á þeim sama fundi.

Tveir fulltrúar og tveir til vara skulu kosnir beinni kosningu. Framkvæmd kosningarinnar er þannig að hver kjósandi kýs einn aðalmann í heimastjórn. Kjósandi skrifar á kjörseðil fullt nafn og heimilisfang þess sem hann kýs. Þeir tveir einstaklingar sem fá flest atkvæði eru kjörnir aðalmenn og varamenn þar á eftir í samræmi við fjölda atkvæða. Fái fulltrúar jafnmörg atkvæði skal varpa hlut­kesti. Kosningarnar skulu fara fram samhliða sveitarstjórnarkosningum.

Komi til þess að heimastjórn verði ekki fullmönnuð og a.m.k. 2 varamenn tiltækir skal sveitar­stjórn kjósa fulltrúa í heimastjórn á eftir þeim einstaklingum sem hlotið hafa kosningu. Þetta getur t.d. átt við ef færri en 4 einstaklingar fá atkvæði við kosningar eða ef fulltrúar missa kjörgengi síðar á kjörtímabili og varamenn ekki tiltækir. Reglur um kjörgengi við kosningu til heimastjórnar skulu gilda um slíka fulltrúa.

Kosningarrétt og kjörgengi í kosningum til heimastjórna hafa íbúar viðkomandi hluta sveitar­félags­ins í samræmi við þá afmörkun sem lýst er í 1. mgr. samkvæmt kjörskrá.

Undirbúningur og framkvæmd kosninga til heimastjórnar skal fara fram í samræmi við megin­reglur laga nr. 5/1998 um kosningar til sveitarstjórna, sérstaklega með hliðsjón af reglum sem gilda við óbundnar kosningar og eftirfarandi ákvæðum:

Gerðar skulu sérstakar kjörskrár vegna kosninga til hverrar af fjórum heimastjórnum, byggðar á kjörskrárstofni sveitarfélagsins. Um breytingar á þeim kjörskrám skulu gilda sambærilegar reglur og gilt hefðu ef hver kjörskrá gilti um sérstakt sveitarfélag. Þótt kjós­andi nýti á kjördegi heimild til að greiða atkvæði í sveitarstjórnarkosningum í annarri kjör­deild en kjörskrá greinir, sbr. 56. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna, leiðir það ekki til breytingar á kjörskrá vegna heimastjórnarkosninga.
Yfirkjörstjórn annast undirbúning kosninga til heimastjórna, s.s. varðandi gerð kjörgagna og annað skipulag. Sérstakar gerðarbækur skulu haldnar vegna framkvæmdar kosninga í heima­stjórnir.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar skal fara fram vegna heimastjórnarkosninga. Fyrirkomulag utankjörfundaratkvæðagreiðslu skal fela í sér að lágmarki, að unnt verði að kjósa utan kjör­fundar á skrifstofum sveitarfélagsins á almennum opnunartíma. Yfirkjörstjórn sér um frek­ara skipulag utankjörfundaratkvæðagreiðslu sem skal byggja á meginreglum laga þar um, m.a. að sækjast eftir aðkomu sýslumannsembætta samhliða því að kjósandi greiðir utan­kjörfundaratkvæði í sveitarstjórnarkosningum. Atkvæðabréfum með utankjörfundar­atkvæð­um skal skila til yfirkjörstjórnar, en á kjördegi skal jafnframt heimilt að skila þeim til undirkjörstjórna á meðan kjörfundur stendur yfir.
Á kjörfundi skulu vera sérstakir atkvæðakassar vegna heimastjórnarkosninga.
Atkvæðatalning skal fara fram á vegum yfirkjörstjórnar. Úrslit kosninga skulu kynnt þegar þau liggja fyrir. Yfirkjörstjórn skal tilkynna aðalmönnum og varamönnun um kosningu þeirra.
Vilji einhver kæra framkvæmd heimastjórnarkosningar skal bera kæru upp við sveitarstjórn innan sjö daga frá því úrslitum kosninga var lýst.

Ákvæði 44. gr. samþykktarinnar um áheyrnarfulltrúa á ekki við þar sem meiri hluti fulltrúa í heima­stjórn er kjörinn af íbúum viðkomandi hluta sveitarfélagsins.

 

37. gr.

Valdsvið nefnda og framsal sveitarstjórnar til fastanefnda
á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála.

Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð getur sveitarstjórn ákveðið með viðauka að fela kjörnum nefndum, ráðum og heimastjórnum sem talin eru upp í 48. gr. samþykktar þessarar að afgreiða, án staðfestingar sveitarstjórnar, mál á verksviði þeirra ef:

  1. lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því,
  2. þau varða ekki fjárhag sveitarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun, og
  3. þau víkja ekki frá stefnu sveitarstjórnar í veigamiklum málum.

Framsalsheimildir nefnda til fullnaðarafgreiðslu skulu koma fram í viðauka I með samþykkt þessari.

 

38. gr.

Afgreiðsla á fundargerðum.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna skulu lagðar fyrir sveitarstjórn til kynningar eða afgreiðslu og staðfestingar.

Þær ályktanir eða tillögur í fundargerðum sem þarfnast staðfestingar byggðarráðs eða sveitar­stjórnar eru lagðar fyrir sem sérstök mál og eru afgreidd með formlegum hætti.

Ályktun ráðs eða nefndar sem hefur fjárútlát í för með sér skal lögð fyrir sveitarstjórn eftir því sem fyrir er mælt í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.

 

39. gr.

Fundir ráða og nefnda og ályktunarhæfi.

Fundir ráða og nefnda skulu almennt haldnir fyrir luktum dyrum. Nefnd er heimilt að opna fundi sína komi fram ósk um slíkt svo fremi sem lög eða eðli máls hamli því ekki. Sveitarstjórn skal setja reglur um boðun og framkvæmd opinna funda ráða og nefnda.

Um fundi nefnda, ályktunarhæfi og atkvæðagreiðslur gilda ákvæði III. kafla samþykktar þessarar og sveitarstjórnarlaga eftir því sem við getur átt.

 

40. gr.

Fundarstjórn og fundargerðir.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.

Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Nefnd getur ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða, nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitarstjórnar, sbr. 16. gr. samþykktar þessarar. 

 

41. gr.

Varamenn.

Varamenn taka sæti í nefndum í þeirri röð sem þeir eru kosnir.

Þegar kosið er til nefndar hlutbundinni listakosningu eða listi hefur verið sjálfkjörinn og aðal­maður í nefnd er forfallaður taka varamenn þess lista sem aðalmaður er kjörinn af sæti í nefnd í þeirri röð sem þeir skipa listann eftir að endurröðun á hann hefur farið fram skv. 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar til sveitarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista við hlutbundna kosningu í nefnd sveitarstjórnar geta þeir komið sér saman um að varamenn á listanum vegna nefndarkosningarinnar, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista og sá aðalmaður í nefnd sem um ræðir, taki sæti hans í nefndinni í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri sama framboðslista og aðalmaður tilheyrði þegar kosning í nefnd fór fram taka varamenn af listanum sæti eftir venjulegum reglum.

Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta sveitarstjórnarfundi eftir að nefndarkosning fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í nefnd að nýju.

 

42. gr.

Boðun varamanna.

Um boðun varamanna á nefndarfundi gilda ákvæði 24. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á.

Þegar aðalmaður í nefnd fellur frá, missir kjörgengi, fær lausn frá nefndarstarfi eða forfallast varanlega frá því að sitja í nefnd tekur varamaður hans sæti í nefndinni nema sveitarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju, ella skipar sveitarstjórn nýjan varamann til setu í nefndinni.

Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar um varamenn taka einnig til varaáheyrnarfulltrúa eftir því sem við getur átt.

 

43. gr.

Lausn frá nefndarsetu og endurskipun.

Fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins, sem ekki eru aðal- eða varamenn í sveitarstjórn, er heimilt að segja af sér nefndastörfum hvenær sem er á kjörtímabili. Aðrir fulltrúar geta óskað eftir því við sveitarstjórn að þeim verði veitt lausn tímabundið eða út kjörtímabilið og metur hún þá hvort skilyrði til þess séu fyrir hendi.

Sveitarstjórn getur hvenær sem er á kjörtímabili ákveðið að skipta um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sem hún kýs eða skipar ef ekki er um það ágreiningur innan sveitarstjórnar eða málefna­legar ástæður mæla með slíkri breytingu, svo sem ef nefndarmaður, án lögmætra forfalla, mætir ekki á fundi nefndar eða brýtur gegn þagnarskyldu. Enn fremur getur sveitarstjórnarfulltrúi krafist þess að nefnd verði endurskipuð telji hann ástæðu til. Sveitarstjórn er þó heimilt að hafna slíkri beiðni ef hún er bersýnilega tilefnislaus að því tilskildu að 2/3 fundarmanna greiði atkvæði með tillögu um höfnun. Við framangreindar breytingar á skipan fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins skal kjósa alla fulltrúa að nýju og fer þá um kjör þeirra skv. 1. mgr. 43. gr. sveitarstjórnarlaga nema enginn ágreiningur sé innan sveitarstjórnar um breytingarnar.

Breytingar á nefndaskipan samkvæmt þessari grein skulu fullnægja skilyrðum 2. tölul. 44. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga um kynjahlutföll.

 

44. gr.

Áheyrnarfulltrúar.

Framboðslisti sem fulltrúa á í sveitarstjórn en ekki í fastanefnd má tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu í fastanefnd með málfrelsi og tillögurétt. Um áheyrnarfulltrúa á fundum nefnda gilda sömu þagnar­skylduákvæði laga og eiga við um aðra nefndarmenn. Áheyrnarfulltrúi og vara­áheyrnar­fulltrúi skulu fullnægja kjörgengisskilyrðum í viðkomandi nefnd.

Áheyrnarfulltrúar í því ráði sem fer með verkefni barnaverndarnefndar skulu víkja af fundi þegar barnaverndarmál eru til umræðu og afgreiðslu.

 

45. gr.

Þóknun.

Sveitarstjórn er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins hæfilega þóknun fyrir þau störf, samkvæmt mati sveitarstjórnar, í samræmi við reglur sem hún setur. Sveitarstjórn er með sama hætti heimilt að ákveða að greiða áheyrnar­fulltrúum þóknun fyrir störf þeirra í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitar­félags­ins.

 

46. gr.

Önnur réttindi og skyldur.

Nefndarmönnum er skylt að sækja fundi nefndar.

Ákvæði III. og IV. kafla samþykktar þessarar gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á. Réttindi takmarkast þó eftir eðli máls við það sem fulltrúum er þörf á vegna starfa í viðkomandi nefnd.

 

47. gr.

Aðrar nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að.

Sveitarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að samkvæmt við­komandi lögum eða samþykktum. Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar eiga við um slíka fulltrúa eftir því sem við getur átt.

Að því leyti sem nefnd, ráð eða stjórn lögaðila, sem sveitarstjórn kýs fulltrúa til skv. 1. mgr., fer með framkvæmd eða ábyrgð á verkefni sem sveitarfélaginu væri ekki sjálfu heimilt að sinna, þá er fulltrúi sveitarfélagsins í viðkomandi nefnd, ráði eða stjórn ekki bundinn af fyrirmælum sveitar­stjórnarinnar um þau störf. Hið sama á við að því leyti sem það leiðir af lögum sem gilda um rekstur og starfsemi viðkomandi lögaðila.

 

48. gr.

Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að.

Sveitarstjórn kýs í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir til fjögurra ára.

Á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum:

A.   Fastanefndir og heimastjórnir.

  1. Heimastjórn. Kjósa skal einn sveitarstjórnarfulltrúa sem aðalmann og annan til vara skv. 38. og 132. gr. sveitarstjórnarlaga og 36. gr. samþykktar þessarar, til viðbótar við þá tvo er kjörnir eru beinni kosningu. Heimastjórn annast þau störf sem sveitarstjórn felur henni og snýr að við­komandi byggðahluta. Heimastjórnir hafa vald til fullnaðarafgreiðslu mála, sbr. viðauka við sam­þykkt þessa.
    Heimastjórn afgreiðir, eftir umfjöllun umhverfis- og framkvæmdaráðs, tiltekin verkefni skipu­­lags­­laga nr. 123/2010 án staðfestingar sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. 6. gr. skipulags­laga, þ.m.t. um deiliskipulag á hafnarsvæðum.
    Heimastjórn afgreiðir tiltekin verkefni laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 án stað­festingar sveitarstjórnar.
    Heimastjórn fer með verkefni náttúruverndarnefndar skv. 14. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013.
    Heimastjórn skal fá til umsagnar tillögur um breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins, innan sinna staðarmarka.
    Heimastjórn tekur ákvarðanir sem sveitarstjórn skal taka samkvæmt lögum nr. 6/1986 um afréttamálefni, fjallskil o.fl. að frátalinni ákvörðun um staðfestingu fjallskilasamþykktar, sbr. 3. gr. laganna.
    Heimastjórn tekur ákvarðanir sem sveitarstjórn skal taka samkvæmt lögum nr. 38/2013 um búfjár­hald, að frátöldum ákvörðunum samkvæmt 4. gr. um takmörkun búfjárhalds.
    Heimastjórn veitir umsagnir samkvæmt 13., 15. og 17. gr. jarðalaga nr. 81/2004, varðandi landskipti, sameiningu jarða og umsókn um lögbýlisrétt.
    Heimastjórn afgreiðir umsagnir og önnur verkefni sem varða sveitarstjórn samkvæmt ákvæðum laga nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Heimastjórnir skulu því m.a. veita umsagnir, skv. 10. og 17. gr. laganna. 
    Heimastjórn fer með umsjón menningarverkefna, félagsheimila, menningarhúsa, og tjaldstæða í viðkomandi byggðahluta, þar sem það á við.
    Heimastjórn veitir umsögn um tiltekin hafnamál til umhverfis- og framkvæmdaráðs, svo sem að veita leyfi til starfsemi á hafnarsvæði og ákvarðanir um bann eða takmörkuð afnot hafnar­­svæðis fyrir starfsemi sem hún telur torvelda eðlilega hafnarstarfsemi.
    Fjárhagsáætlun skal koma til umsagnar heimastjórnar áður en hún er tekin til umræðu í sveitar­stjórn. Nánar um verkefni og valdheimildir heimastjórna fer samkvæmt viðauka um framsals­heimildir.
  2. Byggðarráð. Kjósa skal fimm sveitarstjórnarfulltrúa sem aðalmenn skv. 35. gr. sveitar­stjórnar­­laga og 27. gr. samþykktar þessarar.
  3. Fjölskylduráð. Sjö aðalmenn og jafnmargir til vara. Ráðið annast þau störf sem sveitarstjórn felur ráðinu á sviði fræðslu-, félagsþjónustu-, frístunda- og forvarnamála ásamt því að fara með verkefni á grundvelli laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018. Fjölskylduráð fer með verkefni skólanefnda, sbr. 6. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008, málefni tónlistarskóla, sbr. 2. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985, og verkefni leikskólastjórnar skv. 4. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008. Ráðið annast einnig þau störf sem sveitarstjórn felur ráðinu á sviði fjölskyldumála og velferðar ásamt því að fara með verkefni barnaverndarnefndar skv. III. kafla barnaverndarlaga nr. 80/2002 og félags­málanefndar skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Nánar um störf ráðsins fer samkvæmt erindisbréfi sem sveitarstjórn setur.
  4. Umhverfis- og framkvæmdaráð. Sjö aðalmenn og jafnmargir til vara. Ráðið annast þau störf sem sveitarstjórn felur ráðinu á sviði umhverfis-, framkvæmda- og hafnarmála ásamt því að fara með verkefni skipulagsnefndar skv. 6. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, bygg­ingar­nefndar skv. 7. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 og umferðarfræðslu skv. 112. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
    Ráðið fer með verkefni hafnarstjórnar og ber stjórnunarlega ábyrgð á höfnum sveitar­félagsins í samræmi við hafnalög nr. 61/2003 og hafnarreglugerðir nr. 292/2005, 295/2005 og nr. 275/2006, með síðari breytingum.
    Nánar um valdheimildir heimastjórna og ráða fer samkvæmt viðauka um framsalsheimildir og um verkefni samkvæmt erindisbréfi sem sveitarstjórn setur því. Ráðum er heimilt, með sam­þykki sveitarstjórnar, að skipa verkefnabundna starfshópa skv. F-lið 48. gr.
  5. Kjörstjórn við sveitarstjórnar- og alþingiskosningar. Kjósa skal fimm aðalmenn og jafnmarga til vara skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og skv. 10. gr. laga um kosn­ingar til Alþingis nr. 24/2000. Kjörstjórn kýs sér oddvita og ritara úr sínum hópi. Kjörstjórnir fara með þau verkefni sem þeim eru falin samkvæmt ákvæðum laga um kosningar til sveitarstjórna og laga um kosningar til Alþingis. Enn fremur kýs sveitarstjórn:
    1. Undirkjörstjórnir, jafnmargar og kjördeildir eru: Þrjá aðalmenn í hverja og jafnmarga vara­menn.

B.   Önnur ráð og stjórnir.

  1. Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf. (HEF). Sveitarstjórn tilnefnir fimm fulltrúa og fimm til vara. Af aðalfulltrúum skal minnst einn vera kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn. HEF fer með stjórn hita­veitu, rafveitu, vatnsveitu og fráveitu innan sveitarfélagsins. Sjá m.a. lög um vatnsveitur sveitar­félaga nr. 32/2004, orkulög nr. 58/1967 og lög nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitna.
  2. Öldungaráð. Þrír fulltrúar kosnir af sveitarstjórn, fjórir fulltrúar tilnefndir af félögum eldri borg­ara og einn fulltrúi frá heilsugæslunni í samræmi við 38. gr. laga um félagsþjónustu nr. 40/1991.
  3. Ungmennaráð. Ellefu fulltrúar og ellefu til vara skipaðir af grunn- og framhaldsskólum innan sveitarfélagsins ásamt fulltrúum frá félagasamtökum eins og tilgreint er í erindisbréfi ung­menna­ráðs.
  4. Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks. Þrír fulltrúar kosnir af sveitarstjórn og fjórir full­trúar tilnefndir af hagsmunasamtökum fatlaðs fólks skv. 2. mgr. 42. gr. laga um félags­þjónustu sveitar­félaga nr. 40/1991.

C.   Tilnefningar í sameiginlegar nefndir og stjórnir.

  1. Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi. Sveitarstjórn kýs aðal- og varafulltrúa sam­kvæmt samþykktum samtakanna.
  2. Almannavarnanefnd Múlaþings. Sveitarstjórn skipar fjóra aðalmenn og jafnmarga til vara skv. 9. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008, í samráði við aðrar sveitarstjórnir í umdæmi sýslu­mannsins á Austurlandi sem er formaður nefndarinnar.
  3. Fasteignafélag Iðavalla ehf. Þrír fulltrúar skipaðir á aðalfundi til árs í senn.
  4. Fulltrúaráð Austurbrúar ses. Sveitarstjórn kýs aðal- og varafulltrúa samkvæmt samþykktum félagsins.
  5. Fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands. Sveitarstjórn kýs aðal- og vara­fulltrúa í fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands, sbr. 9. gr. laga um Eignar­halds­félagið Brunabótafélag Íslands nr. 68/1994.
  6. Fulltrúaráð Héraðsskjalasafns Austurlands. Um kjörið fer eftir samþykktum þar að lútandi.
  7. Fulltrúaráð Skólaskrifstofu Austurlands. Um kjörið fer eftir samþykktum þar að lútandi.
  8. Heilbrigðisnefnd Austurlands. Sveitarstjórnir á Austurlandi kjósa sameiginlega fimm aðal­menn og jafnmarga til vara í nefndina skv. 11. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
  9. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Kosnir aðal- og varafulltrúar samkvæmt lögum Sambands íslenskra sveitarfélaga.
  10. Stjórn Brunavarna á Austurlandi. Einn fulltrúi og einn til vara. Fulltrúi í sex manna stjórn. Um er að ræða sameiginlegan rekstur sex sveitarfélaga á slökkviliði og slökkvistöðvum. Að jafnaði sitja framkvæmdastjórar sveitarfélaganna í stjórninni. Stjórnin skiptir með sér verkum.
  11. Stjórn Minjasafns Austurlands. Þrír aðalfulltrúar og þrír til vara.
  12. Stjórn Vísindagarðsins ehf. Einn fulltrúi og einn til vara. Fulltrúi Fljótsdalshéraðs er formaður stjórnarinnar. Fulltrúi í fimm manna stjórn. Aðrir fulltrúar eru tilnefndir af fjármála- og efna­hags­ráðuneytinu fyrir hönd ríkisins og SamVís.
  13. Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs, austursvæði. Tveir fulltrúar.
  14. Svæðisskipulagsnefnd Austurlands. Tveir fulltrúar og tveir til vara.

D.   Kosningar í byggðasamlög, sbr. 94. gr. sveitarstjórnarlaga.

  1. Ársalir bs. Tveir aðalmenn og tveir til vara. Fulltrúar í þriggja manna stjórn. Fljóts­dals­hreppur tilnefnir sinn fulltrúa. Fulltrúi sveitarfélagsins er formaður stjórnar.
  2. Stjórn Brunavarna á Héraði bs. Tveir fulltrúar og tveir til vara. Fulltrúar í þriggja manna stjórn. Um er að ræða sameiginlegan rekstur sveitarfélaga á Fljótsdalshéraði á búnaði og fasteignum til brunavarna. Stjórnin skiptir með sér verkum.

E.   Tilnefningar í staðbundnar stjórnir og nefndir.

  1. Stjórn Landbótasjóðs Norður-Héraðs. Heimastjórn Fljótsdalshéraðs tilnefnir þrjá fulltrúa og þrjá til vara í samræmi við skipulagsskrá fyrir sjóðinn.
  2. Ráðgjafanefnd um uppgræðslustarf. Heimastjórn Fljótsdalshéraðs tilnefnir einn fulltrúi í þriggja manna ráðgjafanefnd um uppgræðslustarf í samræmi við 10. gr. skipulagsskrár Land­bótasjóðs Norður-Héraðs og 3. gr. samkomulags milli Landsvirkjunar og virkj­unar­nefndar Norður-Héraðs um ýmis mál sem tengjast Kárahnjúkavirkjun, frá 10. september 2002 og viðauka með því. Aðrir fulltrúar í nefndina eru skipaðir af Landsvirkjun og Land­græðsl­unni.
  3. Stjórn Fjarðarborgar. Heimastjórn Borgarfjarðar fer með verkefni stjórnar félagsheimilisins Fjarðarborgar í samræmi við samþykktir félagsins.
  4. Stjórn Nönnusafns. Heimastjórn Djúpavogs tilnefnir einn fulltrúa og annan til vara í sam­ræmi við samþykktir félagsins.
  5. Stjórn Ríkarðshúss. Heimastjórn Djúpavogs tilnefnir þrjá fulltrúa og þrjá til vara í samræmi við samþykktir félagsins.
  6. Stjórn Kvennasmiðjunnar. Heimastjórn Djúpavogs tilnefnir tvo fulltrúa og tvo til vara í sam­ræmi við samþykktir félagsins.
  7. Tækniminjasafn Austurlands. Heimastjórn Seyðisfjarðar tilnefnir tvo fulltrúa og tvo til vara í samræmi við samþykktir félagsins.
  8. Skaftfell, miðstöð myndlistar ses. Heimastjórn Seyðisfjarðar tilnefnir einn fulltrúa og annan til vara í samræmi við samþykktir félagsins. 

F.    Verkefnabundnir starfshópar.

Sveitarstjórn getur skipað starfshópa til að vinna að afmörkuðum verkefnum í tiltekinn tíma. Umboð slíkra starfshópa fellur sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils sveitarstjórnar eða fyrr ef verki starfshópsins er lokið. Sveitarstjórn getur afturkallað umboð starfshóps hvenær sem er.

 

VII. KAFLI

Sveitarstjóri og aðrir starfsmenn sveitarfélagsins.

49. gr.

Ráðning sveitarstjóra

Sveitarstjórn ræður sveitarstjóra til þess að annast framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar og verkefni sveitarfélagsins. Sveitarstjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við sveitarstjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin. Ráðningartími sveitarstjóra skal að jafnaði vera sá sami og kjör­tímabil sveitarstjórnar.

 

50. gr.

Hlutverk sveitarstjóra.

Sveitarstjóri er æðsti yfirmaður annars starfsliðs sveitarfélagsins. Hann skal sjá um að stjórn­sýsla sveitarfélagsins samræmist lögum, samþykktum og viðeigandi fyrirmælum yfirmanna.

Sveitarstjóri skal sitja fundi sveitarstjórnar. Þar hefur hann málfrelsi, tillögurétt og rétt til bókana en ekki atkvæðisrétt nema hann sé jafnframt kjörinn fulltrúi í sveitarstjórninni. Hann hefur jafnframt rétt til setu á fundum nefnda og ráða sem sveitarstjórn skipar.

Sveitarstjóri skal sjá um að fundir sveitarstjórnar, byggðarráðs og annarra nefnda sveitarstjórnar séu vel undirbúnir, m.a. í þeim tilgangi að mál sem þar eru afgreidd séu vel upplýst. Hann sér einnig um að ákvarðanir þær sem teknar eru af hálfu sveitarstjórnar og annarra nefnda komist til fram­kvæmda, hafi sveitarstjórn ekki falið það öðrum.

Sveitarstjóri er prókúruhafi sveitarfélagsins. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni sveit­ar­félagsins prókúru að fengnu samþykki sveitarstjórnar. Prókúruhafar skulu vera fjár síns ráðandi.

Sveitarstjóri undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki sveitar­stjórnar þarf til.

 

51. gr.

Ráðning í æðstu stjórnunarstöður.

Æðstu embættismenn sveitarfélagsins, aðrir en sveitarstjóri, eru fjármálastjóri og skrifstofu­stjóri. Sveitarstjóri, í samráði við byggðarráð, ræður æðstu embættismenn í umboði sveitarstjórnar skv. 1. ml. 56. gr., sbr. 2. mgr. 35. gr. og 2. mgr. 42. gr. sveitarstjórnarlaga.

 

52. gr.

Um ráðningu annarra starfsmanna.

Um ráðningu annarra starfsmanna fer samkvæmt sérstökum reglum sem sveitarstjórn sam­þykkir. Í þeim verði fjallað um ráðningarsamband, hvað telst til fastra starfa, hvernig skuli standa að auglýsingu starfa, hvernig skuli staðið að ráðningu lausráðinna starfsmanna, heimildir forstöðu­manna til ráðninga og önnur atriði sem mikilvæg eru.

Sveitarstjóri í samráði við viðkomandi heimastjórn ræður fulltrúa sveitarstjóra á hverjum stað. Fulltrúi sveitarstjóra starfar með viðkomandi heimastjórn.

 

53. gr.

Framsal sveitarstjórnar til starfsmanna til fullnaðarafgreiðslu mála.

Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð getur sveitarstjórn ákveðið með viðauka að fela sviðsstjórum fullnaðarafgreiðslu mála á sama hátt og með sömu skil­yrðum og nefnd eru í 37. gr. samþykktar þessarar. Framsalsheimildir sviðsstjóra til fullnaðar­afgreiðslu skulu koma fram í viðauka með samþykkt þessari. Sveitarstjórn skal setja skýrar reglur um afgreiðslu sviðsstjóra en viðkomandi fagráð hafa eftirlit með þeim og kalla reglulega eftir skýringum og upplýsingum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli þeirra.

 

54. gr.

Þagnarskylda starfsmanna.

Starfsmenn sveitarfélagsins og aðrir sem sveitarfélagið ræður til vinnu við ákveðin verkefni eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara sam­kvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

 

55. gr.

Um starfskjör og réttindi starfsmanna.

Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélagsins fer eftir ákvæðum kjarasamn­inga hverju sinni og ákvæðum ráðningarsamninga.

 

VIII. KAFLI

Fjármál sveitarfélagsins.

56. gr.

Fjárstjórnarvald sveitarstjórnar.

Einvörðungu sveitarstjórn getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjármál sveitar­félagsins. Til slíkra málefna teljast m.a. ákvarðanir um eftirtalin atriði séu ekki gerðar beinar undantekningar þar á með lögum:

  1. staðfestingu ársreiknings,
  2. fjárhagsáætlun næstkomandi árs,
  3. fjárhagsáætlun til fjögurra ára,
  4. viðauka við fjárhagsáætlanir skv. 2. og 3. tölul.,
  5. lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins,
  6. sölu eigna sveitarfélagsins og annarra réttinda þess,
  7. álagningu skatta og gjalda,
  8. ráðningu eða uppsögn endurskoðanda.

 

57. gr.

Afgreiðsla og form fjárhagsáætlunar.

Sveitarstjórn skal á hverju ári afgreiða fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og næstu þrjú ár þar á eftir. Byggðarráð eða sveitarstjóri, eftir því sem kveðið er á um í samþykkt þessari, leggur sam­kvæmt 1. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga tillögu um fjárhagsáætlun fyrir sveitarstjórn eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Sveitarstjórn skal fjalla um hana á tveimur fundum sem fram skulu fara með minnst tveggja vikna millibili. Að lokinni umræðu sveitarstjórnar skal afgreiða tillöguna, þó ekki síðar en 15. desember ár hvert.

Fjárhagsáætlanir skulu gefa glögga mynd af rekstri sveitarfélagsins, efnahag og breytingum á handbæru fé. Einnig skal þar koma fram greinargott yfirlit um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjárheimildir sveitarfélagsins. Við gerð fjárhagsáætlana skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs og stofnana sveitarfélagsins við upphaf áætlunartímabilsins.

Heimastjórnir skulu fá tillögu að fjárhagsáætlun til umsagnar áður en sveitarstjórn tekur tillög­una til fyrri umræðu, og aftur fyrir síðari umræðu ef breytingar hafa verið gerðar á áætlun milli umræðna.

Sveitarstjórn skal senda ráðuneytinu fjárhagsáætlun innan fimmtán daga frá afgreiðslu hennar, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga. Sama á við um viðauka við fjárhagsáætlun.

 

58. gr.

Bindandi áhrif ákvörðunar um fjárhagsáætlun ársins.

Ákvörðun sem sveitarstjórn tekur skv. 56. gr. samþykktar þessarar og 62. gr. sveitarstjórnarlaga um fjárhagsáætlun næstkomandi árs er bindandi regla um allar fjárhagslegar ráðstafanir af hálfu sveitarfélagsins. Aðrir geta þó ekki byggt sjálfstæðan rétt til fjárframlaga eða annarrar fyrirgreiðslu sveitarfélagsins á fjárhagsáætlunum.

Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráð­stafanir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í fjárhagsáætlun í þegar samþykktri áætlun. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.

Þrátt fyrir 2. mgr. má í undantekningartilvikum gera þær ráðstafanir sem skylt er samkvæmt lögum eða öðrum bindandi réttarreglum án þess að sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka, enda þoli þær ekki bið. Viðhlítandi heimildar sveitarstjórnar skal þá afla svo fljótt sem auðið er. Skal erindi um slíka heimild lagt fyrir þegar á næsta fundi sveitarstjórnarinnar.

 

59. gr.

Fjármálareglur og viðmið um afkomu sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveitarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum, sbr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga og ákvæði reglugerðar nr. 502/2012 um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.

 

60. gr.

Ábyrg meðferð fjármuna og heimildir til fjárskuldbindinga.

Sveitarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna sveitarfélagsins og varðveita fjármuni með ábyrgum hætti, svo sem á innlánsreikningum fjármálastofnana eða með því að kaupa ríkis­tryggð verðbréf. Um heimildir til fjárfestinga í hagnaðarskyni fer skv. ákvæðum 65. gr. sveitar­stjórnarlaga.

Áður en sveitarstjórn tekur ákvörðun um fjárfestingu, framkvæmd eða aðra skuldbindingu sem nemur hærri fjárhæð en 20% af skatttekjum sveitarfélagsins yfirstandandi reikningsár er skylt að gera sérstakt mat á áhrifum hennar á fjárhag sveitarfélagsins, sbr. ákvæði 66. gr. sveitar­stjórnar­laga.

Um heimildir sveitarfélagsins til veðsetninga og að gangast í ábyrgðir fer skv. 68. og 69. gr. sveitarstjórnarlaga.

 

61. gr.

Ársreikningur.

Gera skal ársreikning fyrir sveitarsjóð, stofnanir sveitarfélagsins og fyrirtæki þess. Jafnframt skal gera samstæðureikning fyrir sveitarfélagið, þ.e. sveitarsjóð, stofnanir þess og fyrirtæki með sjálfstætt reikningshald, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga. Ársreikningur skal gerður samkvæmt lögum um ársreikninga, reglum settum samkvæmt þeim lögum og sveitarstjórnarlögum, sem og góðri reikningsskilavenju.

Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður og samþykktur af byggðarráði eða sveitarstjóra sveitarfélagsins og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir 15. apríl ár hvert.

Sveitarstjórn skal hafa lokið staðfestingu ársreiknings sveitarfélagsins, stofnana og fyrirtækja þess eigi síðar en 15. maí ár hvert.

Ársreikning sveitarfélagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, skal senda ráðuneyti sveitar­stjórnar­mála og Hagstofu Íslands ekki síðar en 20. maí ár hvert.

 

62. gr.

Endurskoðun ársreikninga.

Sveitarstjórn ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endur­skoðun ársreikninga hjá sveitarfélaginu. Endurskoðun fer eftir lögum um endurskoðendur, lögum um ársreikninga og alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum, sem og fyrirmælum 72. og 73. gr. sveitar­stjórn­ar­laga.

 

IX. KAFLI

Samráð við íbúa – Þátttökulýðræði.

63. gr.

Almenn atkvæðagreiðsla að frumkvæði íbúa.

Ef 20% þeirra sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu óska almennrar atkvæðagreiðslu skv. 108. gr. sveitarstjórnarlaga skal sveitarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því að slík ósk berst.

Um framkvæmd undirskriftasöfnunar, hlutverk sveitarstjórnar og framkvæmd almennrar atkvæða­greiðslu fer skv. 107. og 108. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

 

64. gr.

Viðauki um fullnaðarafgreiðslur.

Samþykkt þessari fylgir viðauki I um fullnaðarafgreiðslur í samræmi við heimildir 37. gr. sam­þykktarinnar og um fullnaðarafgreiðslu sviðsstjóra innan stjórnsýslu sveitarfélagsins í samræmi við heimildir 53. gr. samþykktarinnar, sbr. 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

 

65. gr.

Gildistaka.

Samþykkt þessi sem stjórn til undirbúnings sameiningar Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Seyðisfjarðarkaupstaðar og Fljótsdalshéraðs hefur sett samkvæmt 2. mgr. 122. gr. sveitarstjórnar­laga, nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast gildi við gildistöku sameiningar sveitarfélaganna 3. maí 2020, sbr. auglýsingu nr. 115/2020. Á sama tíma falla úr gildi samþykkt um stjórn og fundar­sköp Borgarfjarðarhrepps, nr. 500/2013, með síðari breytingum, samþykkt um stjórn og fundarsköp Djúpavogshrepps, nr. 730/2013, með síðari breytingum, samþykkt um stjórn Seyðisfjarðar­kaupstaðar, nr. 622/2013, með síðari breytingum og samþykkt um stjórn og fundarsköp Fljótsdals­héraðs, nr. 799/2013, með síðari breytingum.

 

Bráðabirgðaákvæði.

Ákvæði 14. gr. samþykktar þessarar varðandi notkun fjarfundarbúnaðar er sett með vísan til 132. gr. sveitarstjórnarlaga.

Þá er staðfest með vísan til 132. gr. sveitarstjórnarlaga að heimastjórnir þar sem meiri hluti full­trúa er kosinn með beinni kosningu íbúa og fara með fullnaðarákvörðunarvald vegna málefna nær­samfélagsins, skuli starfa í sveitarfélaginu að minnsta kosti út kjörtímabil sem líkur 2030. Ákvæði þetta kemur ekki í veg fyrir breytingu á ákvæðum samþykktarinnar að öðru leyti.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 19. febrúar 2020.

 

F. h. r.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Hermann Sæmundsson.


VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 9. mars 2020