1. gr.
Vatnsgjald Vatnsveitu Hraunhrepps er kr. 33.000 á árinu 2024 af hverju íbúðarhúsi og sumarhúsi sem tengd eru vatnsveitunni.
2. gr.
Til viðbótar vatnsgjaldi sem fram kemur í 1. gr. skal notandi greiða aukavatnsgjald sem nemur 34,50 kr./m³. Vatnsnotkun skal áætluð í samræmi við búfjárskýrslu og skal miða við eftirfarandi töflu:
|
Kind |
5 l/dag |
|
Geldneyti |
26 l/dag |
|
Kálfar |
13 l/dag |
|
Kýr |
65 l/dag |
|
Hross |
17,5 l/dag |
|
Svín |
10 l/dag |
|
Grísir |
5 l/dag |
Þegar mælir hefur verið settur upp hjá notendum skal aukavatnsgjaldið innheimt samkvæmt notkun.
3. gr.
Vatnsgjald skv. 1. gr. skal innheimt með fasteignagjöldum en aukavatnsgjald skal innheimta sérstaklega og er gjalddagi þess 1. maí og eindagi mánuði síðar.
4. gr.
Gjaldskrá þessi er samin með heimild í 10. gr. laga nr. 32/2004 um vatnsveitur sveitarfélaga og 11. gr. reglugerðar um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005.
5. gr.
Gjaldskrá þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1002/2023.
Samþykkt af stjórn Vatnsveitu Hraunhrepps 9. janúar 2024 og sveitarstjórn Borgarbyggðar 11. janúar 2024.
Borgarnesi, 12. janúar 2024.
Stefán Broddi Guðjónsson sveitarstjóri.
|