Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1589/2022

Nr. 1589/2022 13. desember 2022

REGLUGERÐ
um hámarksverð fyrir lúkningu símtala.

1. gr.

Gildissvið og markmið.

Reglugerð þessi gildir um fjarskiptafyrirtæki og fjarskiptanet í skilningi laga um fjarskipti, nr. 70/2022. Hún gildir um lúkningu símtala í bæði farnetum og föstum netum innan Evrópska efna­hags­svæðsins, svo og við þriðju ríki að uppfylltum nánari skilyrðum.

Með reglugerðinni er kveðið á um hámarksverð fyrir lúkningu símtala, þ.e. heildsöluverð sem fjarskiptafyrirtæki tekur fyrir að tengja endanotanda í sínu fjarskiptaneti við endanotanda í öðru fjarskiptaneti sem efnir til símtals.

 

2. gr.

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/654 frá 18. desember 2021 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1972 með því að ákvarða eitt hámarksverð fyrir lúkningu símtala í farsíma í Sambandinu og eitt hámarksverð fyrir lúkningu fastlínusímtala í Sambandinu, sem birt er sem fylgiskjal 1 við reglu­gerð þessa, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 335/2022 frá 9. desember 2022 um breytingu á XI. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið með þeim breytingum og við­bótum sem leiðir af XI. viðauka, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins.

 

3. gr.

Eftirlit og viðurlög.

Fjarskiptastofa hefur eftirlit með framkvæmd laga um fjarskipti, nr. 70/2022, þar á meðal að því er varðar hámarksverð fyrir lúkningu símtala, sem nánar eru útfærðar í reglugerð þessari.

Um framkvæmd eftirlits, aðgang Fjarskiptastofu að upplýsingum og úrlausn deilumála fer sam­kvæmt lögum um Fjarskiptastofu, nr. 75/2021.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum XV. kafla laga um fjarskipti, nr. 70/2022.

 

4. gr.

Heimild og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 53. gr., sbr. 107. gr. laga um fjarskipti, nr. 70/2022, og öðlast þegar gildi.

 

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. desember 2022.

 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Ásdís Halla Bragadóttir.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2022