Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 317/2017

Nr. 317/2017 28. mars 2017

REGLUGERÐ
um (6.) breytingu á reglugerð nr. 168/2011 um skilyrði og kröfur vegna útgáfu heilbrigðisvottorða við markaðssetningu lagareldisdýra, afurða þeirra og innflutning þeirra inn á EES-svæðið og um skrá yfir tegundir smitferja.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2017, frá 3. febrúar 2017, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1096 frá 6. júlí 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1251/2008 að því er varðar kröfur varðandi setningu á markað á sendingum af tilteknum fisktegundum sem ætlaðar eru aðildarríkjum eða hlutum þeirra sem falla undir landsráðstafanir er varða alfaveiru í laxfiskum (SAV) og voru samþykktar með ákvörðun 2010/221/ESB. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambands­ins nr. 17, frá 16. mars 2017, bls. 17.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli, lög nr. 55/1998 um sjávarafurðir, lög nr. 71/2008 um fiskeldi, lög nr. 54/1990 um innflutning dýra, lög nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lög nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum, nema annað sé ákveðið samkvæmt lögum eða stjórn­valds­fyrirmælum.

3. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum eða fangelsi. Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 93/1995 um matvæli, laga nr. 55/1998 um sjávarafurðir, laga nr. 71/2008 um fiskeldi, laga nr. 54/1990 um innflutning dýra, laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og laga nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 55/1998 um sjávarafurðir, lögum nr. 71/2008 um fiskeldi, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lögum nr. 60/2006 um varnir gegn fisk­sjúkdómum.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. mars 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Iðunn Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 11. apríl 2017