Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1257/2016

Nr. 1257/2016 15. desember 2016

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um skil á upplýsingum á árinu 2017, vegna framtalsgerðar o.fl.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að eftirtöldum upplýsingum og gögnum vegna ársins 2016 skuli skilað eigi síðar en 20. janúar 2017. Upplýsingum þessum skal skilað á tölvutæku formi og samkvæmt lýsingum á vef ríkisskattstjóra á slóðinni www.rsk.is.

  1. Launa- og verktakaupplýsingar o.fl. (RSK 2.01). Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi launagreiðslur, hlunnindi (þ.m.t. kaup- og söluréttarsamningar), lífeyri, bætur, styrki, happdrættis- og talnavinninga (skattskylda sem óskattskylda), greiðslur til verktaka fyrir þjónustu (efni og vinnu) eða aðrar greiðslur (þ.m.t. umsýslu- eða umboðsgreiðslur, s.s. í ferðaþjónustu o.fl.).
  2. Bifreiðahlunnindamiðar (RSK 2.035). Skilaskyldir eru allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri starfsemi hafa látið launamönnum eða öðrum vélknúin ökutæki í té til afnota.
  3. Hlutafjármiðar (RSK 2.045). Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög, samlags­hlutafélög, sam­vinnu­hlutafélög og sparisjóðir.
  4. Stofnsjóðsmiðar (RSK 2.065). Skilaskyld eru öll samlagsfélög, sameignarfélög og sam­vinnu­félög, þ.m.t. kaupfélög. Skila skal m.a. upplýsingum um eign eigenda í félaginu í árslok og úttektir af höfuðstól á árinu.
  5. Launaframtali (RSK 1.04, RSK 1.06 eða RSK 4.05) skal skila rafrænt með almennu skatt­framtali.
  6. Viðskipti með hlutabréf/afleiður. Skilaskyldir eru bankar, verðbréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem annast kaup og sölu, umboðsviðskipti og aðra umsýslu með hlutabréf og/eða afleiður. Sundurliða skal upplýsingar um hver viðskipti á kennitölu eða erlent skatt­auðkennis­númer (TIN) viðskiptaaðila.
  7. Innstæður. Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir og aðrir aðilar sem taka við fjármunum til ávöxtunar eða hafa milligöngu um ávöxtun eða aðra ráðstöfun fjármuna, s.s. vegna söfnunarlífeyristrygginga. Tilgreina skal, sundurliðað á kennitölu eða erlent skatt­auðkennis­númer (TIN) viðskiptaaðila, upplýsingar um alla bankareikninga, innstæður og vaxtatekjur, þ.m.t. verðbætur, afföll og gengishagnað, hvort heldur greitt hefur verið til erlendra eða innlendra aðila og afdregna staðgreiðslu af þeim, og stöðu reikninganna í árslok. Þá skal upplýsa um alla vexti af kröfum greiddum erlendum aðilum, sbr. 8. tölul. 3. gr. laga nr. 90/2003 og afdrátt staðgreiðslu og stöðu þessara krafna í árslok.
  8. Viðskipti með verðbréf, önnur en hlutabréf og afleiður, sbr. 6. tölul. að framan. Skila skal, sundurliðað á kennitölu eða erlent skattauðkennisnúmer (TIN) viðskiptaaðila, upplýsingum um öll verðbréf, s.s. kröfur og hlutdeildarskírteini. Tilgreina skal vaxtatekjur, þ.m.t. verð­bætur, afföll og gengishagnað, hvort heldur greitt hefur verið erlendum eða innlendum aðilum og afdregna staðgreiðslu af þeim, og stöðu í árslok.
    Flokka skal fjármálagerninga í almenna og sérstaka (kúlubréf, s.s. spariskírteini). Vaxta­tekjur af sérstökum verðbréfum, sem seld voru eða innleyst á árinu 2016, þarf að sundur­liða eftir því sem þær hafa áunnist. Sjá nánar í skilalýsingu á vef ríkisskattstjóra.
  9. Lánaupplýsingar (bankalán, fasteignaveðlán, bílalán og önnur lán). Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir (bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög, fjármögnunarleigur, greiðslukortafyrirtæki o.s.frv.) sem hafa lánað fé til einstaklinga og lögaðila. Jafnframt skal veita upplýsingar um kröfur sem hafa verið afskrifaðar að hluta eða öllu leyti.
  10. Takmörkuð skattskylda - greiðsluyfirlit (RSK 2.025). Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera takmarkaða skattskyldu hér á landi, og skattskyldar eru skv. 3. tölul. (þjónusta eða starfsemi innt af hendi hér á landi) og 6. tölul. (leiga og greiðslur fyrir afnot eða hagnýtingu einkaleyfa og hvers konar annarra leyfa, réttinda, sérþekkingar, o.fl.) 3. gr. laga nr. 90/2003.
  11. Greiðslumiðar - leiga eða afnot (RSK 2.02). Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölul. C-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, svo og fyrir greiðslur fyrir sérhver önnur afnot af réttindum, s.s. aflaheimildum, einkaleyfum eða sérþekkingu, enda sé ekki gerð grein fyrir þessum greiðslum á öðrum skilagreinum sem taldar eru upp hér að framan.
  12. Hlutabréfakaup skv. staðfestri kaupréttaráætlun (RSK 2.085). Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög og samlagshlutafélög sem gert hafa kaupréttarsamninga við starfsmenn sína samkvæmt staðfestri kaupréttaráætlun, sbr. 10. gr. laga nr. 90/2003. Sama á við um söluréttarsamninga.
  13. Staðfesting á tilteknum hlutabréfakaupum (listi yfir þátttakendur). Skilaskyld eru öll hluta­félög og einkahlutafélög sem fengið hafa staðfestingu ríkisskattstjóra á að þau uppfylli skil­yrði fyrir því að kaup einstaklinga á hlutum í hlutafjáraukningu félagsins geti veitt rétt til skatt­frádráttar sbr. B-lið 1. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003.
  14. Fjármagnstekjur. Þeir sem innheimt hafa vexti (þ.m.t. verðbætur og dráttarvexti), skulu skila upplýsingum um slíkar fjármagnstekjur, sundurliðað á móttakendur, og staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts sem haldið hefur verið eftir. Hér er einkum um að ræða innheimtu­aðila, t.d. lögmannsstofur, óháð því hvort veitt hefur verið undanþága frá afdrætti stað­greiðslu við innheimtu á vaxtatekjum einstaklinga.

Ef skilað er röngum eða gölluðum upplýsingum, eða ef þær eru á annan hátt ekki samkvæmt skila­lýsingu, þarf skilaskyldur aðili, eftir atvikum, að greiða þann kostnað sem af því kann að hljótast.

Allar fyrirspurnir vegna gagnaskila má senda á netfangið [email protected].

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt 92. og 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

Reykjavík, 15. desember 2016.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2016