Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1253/2022

Nr. 1253/2022 17. nóvember 2022

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 989/2016, um skipsbúnað, með síðari breytingum.

1. gr.

B-liður 1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1157 frá 4. júlí 2022 um hönnunar-, smíða- og nothæfiskröfur sem og prófunarstaðla fyrir búnað um borð í skipum og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/1158, skv. ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 227/2022 frá 8. júlí 2022. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 70, frá 27. október 2022 bls. 316.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 24. gr. skipalaga nr. 66/2021 og öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 17. nóvember 2022.

 

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Eggert Ólafsson.


B deild - Útgáfud.: 21. nóvember 2022